Skessuhorn - 11.06.1998, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1998
SSESSUHÖEKI
Símenntunarmíðstöb
Undirbúningur í gangi að stofnun símenntunarmiðstöbvar á Vesturlandi.
Frá vinstri: Haukur Gunnarsson endurmenntunarstjóri á Hvanneyri, Ole
Imsland, Þorlákur Björnsson fráfarandi aðstobarrektor á Bifröst og Jónas
Gu&mundsson rektor Samvinnuháskólans.
Undanfarin misseri hefur farið fram
mikil umræða á Vesturlandi um sí-
menntunarmál. Atvinnulífið og stofn-
anir þess era sxfellt betur að gera sér
grein fyrir nauðsyn þess að endur-
menntun starfsfólks sé lykilatriði í
vaxandi samkeppni á flestum sviðum.
I júnímánuði 1996 var haldin
ráðstefna um símenntun á Bifröst.
Niðurstaða hennar var sú að fjöl-
margir aðilar frá atvinnulífinu,
sveitarfélögum og menntakerfinu
lýstu yfir eindregnum vilja til að
stuðla að stofnun einhvers konar
miðstöðvar símenntunar fyrir Vestur-
land. Framhald málsins varð síðan
það að Bændaskólinn á Hvanneyri,
Samvinnuháskólinn á Bifröst,
Farskóli Vesturlands og Atvinnu-
ráðgjöf Vesturlands héldu tvær
námskeiðalotur þar sem boðið var
upp á ýmiskonar námskeið víðsvegar
um kjördæmið. Verkefnið fékk heitið
"Símenntunardagar á Vesturlandi''
Markmiðið með símenntunardög-
unum var að kanna þörfina fyrir
námskeið á ýmsum sviðum og jafn-
framt að komast að því hvemig ofan-
greindum stofnunum gengi að vinna
saman að sameiginlegu verkefni. í
ljósi fenginnar reynslu er það álit
undirbúningshóps, skipuðum full-
trúum þessara stofnana, að rétt sé að
athuga með stofnun símenntun-
Grunnskólunum á Akranesi var
slitið um síðustu mánaðamót.
Grundaskóla var slitið fimmtudaginn
armiðstöðvar á Vesturlandi með aðild
sem flestra sem annaðhvort veita eða
þiggja þjónustu á því sviði.
Norskur abili gefur
rábleggingar
Til þess að freista þess að draga
lærdóm af reynslu nágrannalandanna
af hliðstæðri starfsemi var norskum
fagaðila á þessu sviði boðið hingað til
lands í síðustu viku. Sá heitir Ole
Imsland og er forstöðumaður "Roga-
land kurs og kompetansesenter" í
Rogalandfylki í Noregi. Lýsti hann
reynslu Norðmanna af stofnun
símenntunarmiðstöðvar á fundi í
Bændaskólanum á Hvanneyri þann
26. maí s.l. og kynnti starfsemi
endurmenntunarmiðstöðvar sem
hann veitir forstöðu. Starfsemin
hennar er sniðin að þörfum atvin-
nulífsins á svæðinu. Hún var stofnuð
til eflingar endurmenntunar á lands-
byggðinni líkt og hugmyndin er með
stofnun símenntunarmiðstöðvar á
Vesturlandi.
Endurmenntunarmiðstöðin nýtur
góðs af stórum fyrirtækjum í ná-
grenninu sem sækja til hennar
þjónustu, svo sem olíuvinnslufyrir-
tæki. Ole Imsland sagði m.a. að lögð
væri mikil áhersla á endurmenntun
kennara og færi stór hluti af rekstrar-
28. maí og útskrifuðust þaðan 49
nemendur. Utskrift í Brekkubæjar-
skóla var daginn eftir, þann 29. og
fé starfseminnar til endurmenntunar
og með því væri hægt að bjóða upp á
"ferska" kennslu í endurmenntun
fyrir atvinnulífið hverju sinni. Sagði
hann að lögð væri áhersla á framboð
endurmenntunar bæði fyrir atvinnu-
lífið og einstaklinga í samstarfi við
yfir 30 framhaldsskóla í Rogalands-
fylki.
útskrifuðust þaðan 50 nemendur úr
tíunda bekk. Margvíslegar viðurkenn-
ingar vora veittar fyrir góðan náms-
Að loknu framsöguerindi Ole Ims-
land rakti Jónas Guðmundsson rektor
Samvinnuháskólans forsögu að
stofnun símenntunarmiðstöðvar á
Vesturlandi og framtíðarsýn hennar.
Guðmundur Páll Jónsson starfsman-
nastjóri HB á Akranesi flutti fróðlegt
erindi um tengsl atvinnulífs og
símenntunar. Eftir framsögur þessara
árangur. Bestum árangri útskriftar-
nema í Grundaskóla náði Monika
Freysteinsdóttir en Omar F. Sigur-
björnsson í Brekkubæjarskóla. Að
sögn Helgu Gunnarsdóttur skólafull-
trúa á Akranesi er árangur á sam-
ræmdum prófum í skólunum báðum
sambærilegur við síðustu ár en einkun-
nir voru nálægt landsmeðaltalinu.
Betri skóli
Á nýafstöðnu skólaári var unnið að
þróunarverkefninu „Gerum góða
skóla betri“ en Akranesbær fékk til
þess styrk frá menntamálaráðuneyt-
inu. Einnig hefur fengist styrkur til
áframhaldandi vinnu á næsta skóla-
ári. Verkefnið snýst um mat á skóla-
starfinu og voru þrjú slík verkefni
unnin í hvorum skóla. Þá fengu þrír
kennarar í Grundaskóla styrk úr
sjóðnum til að vinna að breyttum
áherslum í stærðfræðikennslu á
unglingastigi en aðferðafræði þeirra
hefur vakið mikla athygli. Grun-
daskóli er annar tveggja íslenskra
skóla sem vinnur með skólum frá
öðrum Norðurlöndum að gerð heima-
síðu um mat á skólastarfi til að efla
umræðu um það efni.
Sú nýbreytni var reynd í vetur að
bjóða upp á valgreinar í tíunda bekk
sem kenndar voru í FVA. Umsjón og
skipulag þeirrar vinnu var í höndum
kennara FVA. Lögð var áhersla á raf-
magnsfræði og trésmíðar. Þessi
nýjung hefur mælst vel fyrir og stefnt
er að framhaldi þessarar samvinnu.
Mannabreytingar
Að sögn Helgu verða nokkrar
mannabreytingar í grunnskólunum á
næsta ári. Ólína Jónsdóttir lætur af
störfum sem aðstoðarskólastjóri við
Grandaskóla en í hennar stað kemur
Hrönn Ríkharðsdóttir sem kennt
hefur við grunnskólana á Akranesi
um árabil. Helga sagði að ekki væri
búið að ganga frá öllum ráðningum
en það hefur gengið bærilega að fá
fólk. Hinsvegar hefur gengið illa að
fá húsnæði fyrir nýja kennara. G.E.
aðila vora pallborðsumræður þar sem
fundargestir, um 20 talsins, gátu spurt
Ole Imsland um ýmis atriði tengd
símenntunarmálum.
Að sögn Hrefnu B. Jónsdóttur
atvinnuráðgjafa er næsta skref í
símenntunarmálum á svæðinu að
forsvarsmenn skólastofnana á Vestur-
landi hittist og meti hvort raunhæft er
að stofna hliðstæða endurmenntun-
arstofnun í kjördæminu og þá sem
Ole Imsland veitir forstöðu í Noregi.
M.M
Meirihluti
myndaöurí
Grundarfirbi
Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur í Eyrarsveit hafa
gengið frá samkomulagi um
áframhaldandi meirihlutasam-
starf.
Guðni E. Hallgrímsson (B-
hsta) verður oddviti og Sigríður
Finsen (D-lista) formaður
hreppsráðs. Þessir flokkar
störfuðu saman á síðasta
kjörtímabili. Meirihlutinn hefur
fimm hreppsnefndarmenn af
sjö, sjálfstæðismenn 3 fulltrúa
og framsóknarmenn 2. Samið
hefur verið við Björgu Ágústs-
dóttur um að gegna áfram starfi
sveitarstjóra. G.E.
Næg sumar-
vinna í
Stykkishólmi
Að sögn Ólafs Hilmars
Sverrissonar bæjarstjóra í
Stykkishólmi hefur atvinnu-
ástand á staðnum batnað mjög
að undanförnu og útlit er fyrir
næga sumarvinnu fyrir skóla-
krakka. „Atvinnuástandið er
orðið mjög þokkalegt og að því
er ég best veit hefur unglingum
gengið bærilega að fá vinnu í
sumar. Það verður töluverður
fjöldi í vinnu hjá Stykkishólms-
bæ og síðan taka fiskvinnslu-
fyrirtækin á staðnum eitthvað
til sín þannig að þetta lítur
nokkuð vel út", sagði Ólafur
Hilmar. G.E.
Styrkur til
Kirkjuhvols
Listasetrið Kirkjuhvoll á
Akranesi stendur á hverju ári
fyrir fjölmörgum listsýningum
af ýmsum stærðum og skipa
þær stóran sess í menningarlífi
bæjarins. Nýlega styrktu nokk-
ur fyrirtæki á Akranesi Kirkju-
hvol til kaupa á sjötíu stólum
fyrir húsið. Fyrirtækin eru Har-
aldur Böðvarsson hf., Akranes-
veita, Landsbanki Islands og
ístak. Síðar verður sagt frá
þeim sýningum sem framundan
eru í Kirkjuhvoli. GE
Út vil ek
Þjónustuskrá Markaðsráðs
Borgarfjarðar 1998, Út vil ek,
er komin úr prentun. Skránni
hefur nú verið dreift í sumar-
bústaði í Borgarfirði og liggur
auk þess frammi á helstu ferða-
mannastöðum. Upplagið er
10.000 eintök. Meðal efnis í Út
vil ek er umfjöllun um helstu
viðburði sumarsins. kynning á
þjónustufyrirtækjum o.fl.
G.E.
Stjórnendur fyrirtækja og frumkvöðlar;
Kynningarfundur
Verkefnin Vöruþróun '98, Frumkvæði / Framkvæmd og
Frumkvöðlastuðningur verða kynnt sem hér segir:
Borgarnes
á Hótel Borgarnesi
15. júníkl. 17:00-18:00
Stykkishólmi
15. júníkl. 20:00-21:00
Vöruþróun '98 aðstoðar fyrirtæki bæði faglega og
fjárhagslega við þróun nýrra vara
Frumkvæði / Framkvæmd aðstoðar fyrirtæki við að
afla sér ráðgjafar á tilteknum sviðum
Frumkvöðlastuðningur styrkir einstaklinga
Þróunarstarf í grunnskólunum
Skólaslit í Grundaskóla og Brekkubæjarskóla