Skessuhorn - 11.06.1998, Qupperneq 10
10
■.f.llllH...
Kvöld-
stund
✓
a
dans-
Kristján Árnason, skáld frá Kistufelii
í Lundarreykjadal
Seiðandi töframir tónana stíga
teygja sig armamir, rísa og hníga.
Frumeðlið byltist sem brimskaflinn ólmi
boðorða hrœsnina leysa afhólmi.
Brjóstkassar þenjast og fjötramir falla,
frelsið og náttúran þýðlega kalla.
Hamirnir brenndir í logum hins liðna,
lögfestir múramir skekkjast og gliðna.
Líkamir engjast aflöngunar ögun,
Ijósþrá í myrkrinu hrópar á dögun.
Frjómoldin kallar á sáðmannsins sœði,
siðferðið hangir á titrandi þrœði.
Dillandi fætur um dansgólf sig þenja,
í dyrunum standa þær Nauðsyn og Venja.
Kaldlyndir húsbændur kalla á hjúin.
„Komið þið, greyin mín, veislan er búin!“
Kristján Amason
SPEKI VIKUNNAR
Þaö sem áður voru lestir er nú siöur
Scenea
KÝRHAUSINN: Umsjón Glúmur Gellisson
Öfgakenndur
árangur í um-
hverfismálum
í tilefni af umhverfisátaki Skessu-
homs hefur undirritaður tekið að sér
að leiðbeina Vestlendingum til að ná
öfgakenndum árangri í umhverfis-
málum.
* Ofvaxið gras og sina í görðum er
til óprýði. Aftur á móti er sláttur leið-
indavinna og þrælahald er bannað.
Við því er tvennt að gera. A) Hafa
gerfigras á lóðinni. Gerfigrasfræ er
hægt að fá í öllum betri garðyrkju-
vöruverslunum. B) Hafa hross, kind-
ur eða kýr í garðinum. Þeir sem ekki
eiga lífrænar sláttuvélar af þessu tagi
geta ugglaust fengið þær leigðar fyr-
ir lítinn pening.
* Laust msl er víða til vansa. Má
þar nefna dreifibréf, auglýsingapésa,
smokka, tómar flöskur, gömul kosn-
ingaloforð, rúlluplast o.fl. Tvær
lausnir koma til greina á þessu
vandamáli: A) Bíða eftir 8-10 vind-
stigum og vonast til að þetta fjúki
yftr til nágrannans. B) Bæta við ms-
lið (fá jafnvel lánað hjá öðrum)
þangað til það er orðið nógu mikið til
að vekja eftirtekt og laða að ferða-
menn.
* Járnarusl er
gjaman vandamál
við iðnaðarfyrir-
tæki og til sveita,
t.d. gamlar búvél-
ar, skriðdrekar,
geimskip, flæði-
línur, skuttogarar og fleira smálegt.
Þetta er oft kosnaðarsamt að fjar-
lægja en til er ódýr lausn: Best er að
hrúga draslinu saman eða raða því á
óvenjulegan hátt. Þá heitir það ekki
lengur msl heldur nútímalist og er
góður möguleiki á að selja það fyrir
háar upphæðir.
* Sorpflokkun er tímafrek og leið-
inleg. Einfaldast er að hafa eina til
tvær geitur í bakgarðinum. Þær éta
hvað sem er og geta einnig komið að
notum við að verjast ágangi leiðin-
legra gesta, mkkara, frambjóðenda
o.fl.
* Einfaldasta ráðið er þó að eiga
góðan sendiferðabíl og meðfærilega
búslóð og flytja reglulega, þ.e. þegar
ruslið er orðið til vandræða.
Gangi ykkur vel
Glúmur Gellisson
FIMMTyDAGUR 11. JÚNÍ1998 _
Attunda stigs
tónleikar
Áttunda stigs tónleikar Salóme
Guðmundsdóttur verða í Akranes-
kirkju laugardaginn 13. júní n.k
klukkan 13:30. Þar koma fram
Salóme Guðmundsdóttir mezzosópr-
an og Katalín Lörencz sem leikur
undir á orgel. Tónleikamir em liður í
áttunda stigs prófi Salóme í söng og
flutt verða m.a. verk eftir Jónas Tóm-
asson, Áma Þorsteinsson, Björgvin
Þ. Valdimarsson og Handel. Aðgang-
ur er ókeypis og er allir ve'lkomnir.
G.E.
Frá félagi
hjaitasjúklinga
á Vesturlandi
Aðalfúndur félags hjartasjúklinga
á Vesturlandi verður haldinn á Bar-
bró Akranesi laugardaginn 13. 06
n.k. kl. 14:00.
Félagið er áhugamannafélag þeirra
sem vilja bæta hag hjartasjúklinga og
gera líf okkar allra örlítið betra.
Félagið vinnur að fræðslu um
hjartasjúkdóma og aðgerðir til að
spoma við þeim. Við leggjum áher-
slu á að það eigi að vera gefandi og
gaman að starfa með félaginu.
Við viljum hvetja sem allra flesta
til að starfa með okkur.
Félag hjartasjúklinga
á Vesturlandi
Gu&mundur Gubmarsson forstööuma&ur safnahúss Borgarfjar&ar veitir
námsstyrknum vi&töku úr hendi Andreas Kvamm stjórnarformanns
Langesstofnunar
Verslunar
JóhannsLange
minnst
Gamla Pakkhúsið í Borgarnesi
sem byggt var 1888 og stendur við
Brákarsundið var til 1907 hluti af
umfangsmikilli verslun Norðmanns-
ins Jóhanns Lange á íslandi. Hann
rak Langes verslun í Borgamesi frá
1886 til 1907 en seldi þá húsin til
Jóns Bjömssonar frá Bæ og Jóns
Björnssonar frá Svarfhóli. Áður
hafði hann lánað fé til byggingar
verslunarhúsa Akra-Jóns þannig að
hann var þátttakandi í verslun í Borg-
amesi frá upphafi.
í maíbyrjun sendi Langestofnunin
í Bergen fólk hingað til lands til að
setja skjöld á gamla pakkhúsið til að
minnast verslunarstarfsemi Langes
hér á landi en í Borgamesi em heil-
legustu mynjamar um umsvif hans.
Jóhann Lange rak verslanir m.a. á
Akranesi og Borðeyri.
Fulltrúar Langestofnunarinnar
færðu einnig Héraðsskalasafni Borg-
arfjarðar styrk til handa einum náms-
manni í sagnfræði til að stunda nám
við háskólann í Bergen. Styrkurinn
er skilyrtur þannig að viðkomandi
námsmaður skal gera sögu Langes á
íslandi skil. Það er liður í undirbún-
ingi á útgáfu verslunarsögu Langes-
verslunar.
Að sögn Guðmundar Guðmars-
sonar forstöðumanns Héraðsskjala-
safnsins í Borgamesi verður styrkur-
inn veittur í samráði við sagn-
fræðiskor HÍ og Háskólann í Bergen.
Guðmundur sagði hinsvegar ekki
ákveðið hvenær af því yrði.
Sama dag og skjöldurinn var af-
hjúpaður á pakkhúsinu undirritaði
Þór Magnússon þjóðmynjavörður
friðlýsingarskjöl fyrir Langesbryggju
í Borgamesi og fiskireiti á Suðumes-
inu.
Skaga-
menn
skoruðu....
Með hverri umferð Islands-
mótsins í knattspyrnu þyngist
brúnin meir á smðningsmönnum
Skagamanna, svo mjög að í verstu
tilfellunum em menn famir að
stíga á hana. Menn em vissulega
ekki búnir að gleyma hinum sí-
gilda frasa „Skagamenn, skaga-
menn skomðu mörkin" en núna er
lögð sérstök áhersla á þátíðina.
Einn svekktur stuðningsmaður IA
orðaði það á þessa leið.
Á vellinum vönduðu spörkin
og vald höfðu knettinum á.
Já, Skagamenn skoruðu mörkin,
en skelfing er langt síðan þá.
Meiri-
hluta-
Að afloknum kosningum er vítt
og breytt um landið verið að
hnoða saman svokölluðum meiri-
hlutum. Víða gekk það hratt og
vel fyrir sig en annarsstaðar geng-
ur það erfiðlega þar sem nóg virð-
ist vera af minnihlutum en enginn
meirihluti. Til er saga af misskiln-
ingi sem upp kom við meirihluta-
myndun í ónefndu sveitarfélagi.
Upprennandi stjómmálaskömng-
ur hafði verið kjörinn í sveitar-
stjóm í fyrsta sinn. Hann var mjög
upp með sér og ákafur í að standa
sig sem best og vera sómi sinnar
sveitar, sverð hennar og skjöldur.
Einn daginn stendur hann venju
fremur lengi fyrir framan spegil-
inn og prófar hinar og þessar hár-
greiðslur. Það endar með því að
kona hans er orðin hálfundrandi á
þessum útlitsáhyggjum bónda síns
og spyr hverju þetta sæti. „Jú
sjáðu til: Það á að mynda meiri-
hluta í dag og ég ætla ekki að líta
út eins og útigangshross á mynd-
inni góða mín“H
Stefnu-
skrá
I stefnuskrám hinna ýmsu fram-
boðslista til sveitarstjómarkosn-
inga vom miklar yfirlýsingar um
væntanleg stórafrek. Einn ónefnd-
ur frambjóðandi leit yfir stefnu-
skrá síns flokks og þótti jafnvel
vanta eitthvað um hin raunvem-
legu vandamál sem sveitarfélagið
ætti við að glíma:
Stefnan er að styðja allan
fjandann
og stuðla að mörgu bæði þar
og hér.
En minnast helst sem allra
minnst á vandann
sem mœtir okkur hvert sem
litið er