Skessuhorn - 25.03.1999, Page 1
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI - ll.tbl. 2. árg. 25. mars 1999
Kr. 200 í lausasölu
Þessa dagana er verib aö sýna söngleikinn í Tívolí á Akranesi. Hér eru þeir Davíö Steingrímsson og Gunnar Sturla
Hervarsson í hlutverkum sínum sem Frímann júníor og Frímann senjor. Fjallab er um sýninguna á blaösíöu 8.
Mynd: KK
Þjóbfélagsverk Svavars Sigurbssonar
Færöi Akraneslög-
reglunni myndavél
Ólafur Hauksson sýslumaöur tekur viö gjöf Svavars Sigurðssonar.
Sýslumaðurinn á Akranesi tók við
forláta stafrænni myndavél úr hendi
Svavars Sigurðssonar á mánudaginn
var. Myndavélin er ein af sjö sem
Svavar hefur fært lögregluyfirvöld-
um í landinu að gjöf. Svavar er einn
ötulasti baráttumaður landsins gegn
fíkniefnum. Hann ferðast um landið
og safnar fjármunum til að kaupa alls
konar myndavélabúnað fyrir lögregl-
una til að nota í baráttunni við smygl-
ara og eiturlyfjasala. Hefur hann á
undanfömum árum gefið búnað fyrir
á fimmtu milljón króna, og nú var
röðin komin að lögreglunni á Akra-
nesi. Svavar var á ferðinni á Skagan-
um á dögunum og safnaði þá tæplega
70 þúsund krónum. Hann segist nota
peningana til gjafa í þeim byggðar-
lögum þar sem þeir safnast. „Til að
upplýsa myrkraverkin,“ segir Svavar.
Ryskingar í
Reykholtsdal
Hann var seinheppinn hestamaður-
inn sem var á ferð með tveimur
kunningjum síhum á hestum í Reyk-
holtsdalnum s.l. föstudag. Kunningj-
amir áðu í vegarkanti og tóku tal
saman. Þá birtist bifreið ein á nokk-
uni ferð. Ökumaðurinn þeytir gjall-
arhomið með þeim afleiðingum að
hestar ókyrrast og fælast. Umræddur
hestamaður tók þessu illa, stöðvaði
bifreiðina og veitti ökumanninum til-
tal fyrir vítavert kæruleysi í um-
gengni við hross. Rífur hann m.a. í
hálskraga ökumanns og hálflyftir
honum út úr bflnum með tilheyrandi
sérvöldum orðum um athæfi hans.
Hestamaðurinn áttaði sig hins veg-
ar ekki á því að umræddur bfll var sá
fyrsti í sex bfla lest þar sem saman
vom komnir kunningjar „að sunnan"
á leið til fjalla. Þyrptust þeir út úr bfl-
um sfnum og veittust að hestamann-
inum sem skiljanlega varð að láta í
minni pokann fyrir svona fjölmennri
og vasklegri sveit reiðra manna.
Ryskingar urðu nokkrar og var hesta-
maðurinn skallaður í höfuðið. Sök-
um hóflegs framferðis var hinum
hestamönnunum tveimur hlíft við
líkamsmeiðingum, en fengu þó sinn
skammt af óvönduðum kveðjum.
Samkvæmt heimildum Skessu-
homs var ekki um frekari eftirmála
að ræða af samstuði þessu. -MM
Knattspyrnufélag ÍA; meistaraflokkur kvenna
Leó rábinn þjálfari
Um helgina var gengið frá ráðn-
ingu nýs þjáifara fyrir meistara-
flokk kvenna og varð Leó Jóhann-
esson fyrir valinu. Leó er knatt-
spyrnuunnendum á Skaga að góðu
kunnur en hann lék með meistara-
flokki ÍA hér á árum áður.
I samtali við Skessuhom sagði Leó
að hann hefði ekki þurft að hugsa sig
lengi um þegar honum var boðið að
þjálfa meistarflokk kvenna.
„Akvörðunin var tekin án mikillar
umhugsunar. Mér líst mjög vel á
þennan hóp. Þær eru mjög
áhugasamar og hafa greinilega
gaman af knattspyrnu," sagði Leó.
Hann hefur mörg undanfarin ár kennt
við Grundaskóla á Akranesi. Leó
segist hafa fylgst grannt með því sem
hefur verið að gerast í fótboltanum
síðustu ár og segist ætla að byggja á
e 1 g 1 n
reynslu.
„ J a f n -
framt því að
fylgjast með
hefur maður
lært af þeim
sem vit hafa
á knatt-
spymu. Það
hefur vissu-
lega margt
breyst en
grunnþætt-
ina í þjálfun
tel ég vera
hina sömu. Ég veit að það er ekki
auðvelt að koma að þessu eftir langt
hlé en ég hlakka til að takast á við
þetta verkefni. Þetta leggst mjög vel
í mig,“ sagði Leó Jóhannesson.
Leó Jóhannesson
nýráöinn þjáifari
meistaraflokks
kvenna á Akranesi.
Stjörnuleikmaður Skessuhorns
Síðastliðinn sunnudag afhenti
Skessuhorn viðurkenningar þeim
leikmönnum úrvalsdeildarlið-
anna á Vesturlandi sem skarað
hafa fram úr í vetur.
Tómas Holton leikmaður Skalla-
gríms fékk flestar stjömur í stjömu-
gjöf Skessuhoms í vetur. Rob Wil-
son Snæfelli tók flest fráköst og
skoraði flest stig. Kristinn Friðriks-
son Skallagrími var stigahæstur ís-
lensku leikmannanna og Dagur Þór-
isson IA tók flest fráköstin.
Sjá nánar bls 15.