Skessuhorn


Skessuhorn - 25.03.1999, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 25.03.1999, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 25. MARS 1999 aatssunui. S Hin ágætasta skemmtun Söngleikurinn í Tívolí á Akranesi Frímann yngri og Frímann eldri ásamt gellunum sínum. Leiklistarklúbbur NFFA og Skaga- ieikflokkurinn sýna „í Tívolí“ eftir Guðjón Sigvaldason, Steingrím Guðjónsson og leikhópinn. Leik- stjóri er Guðjón Sigvaldason og um tónlistarstjórn sér Flosi Einarsson. Tónlist og söngtextar: Stuðmenn. Fjölmargir leikarar koma að sýn- ingunni og eru 42 nafngreindir í leikskrá. 7 manna hljómsveit sér um tóniistarflutning. Frumsýnt var síðasta föstudags- kvöld fyrir fullu húsi og er skemmst frá því að segja að I Tívolí er hin ágætasta skemmtun. Hér er á ferðinni nokkuð hreinræktaður söngleikur og er höfundum verksins nokkur vandi á höndum að tengja saman lögin og leiðarstef textanna þannig að úr verði heilsteypt verk. Sú leið sem varð fyr- ir valinu er mjög áhugaverð og býður upp á bráðskemmtileg söng- og leik- atriði sem mörg hver ganga ágætlega upp. Söguþráðurinn er ekki mjög flókinn en við fáum að fylgjast með tveimur fjölskyldum, vinum þeirra og kunningjum og því sem gerist einn dag í Tívolíinu og Vetrargarðinum. Helstu persónur eru Dollý sem syng- ur í Dúfunum í Vetrargarðinum og Þormar, drykkfelldur sjómaður en þau eiga soninn Elmar. Ellý, sem einnig tilheyrir Dúfunum á bróður sem er kallaður Gæi og fáum við að fylgjast með samskiptum hans við veikara kynið. Hveitibjörn rekur Vetrargarðinn og sonur hans Frímann á sér annað sjálf í Frímanni flugkappa sem kemur mikið við sögu. Hér eru ekki ferðinni stórkostleg örlög og ástir ofurmenna og kvenna heldur sigrar og ósigrar venjulegs fólks og er lengst af vel um efnið haldið. Tíminn er upphaf sjöunda áratugarins, allar konur eru á háum hælum og Old Spice í hveijum bað- skáp. Búningamir eru í anda tíma- bilsins og hefur verið lögð mikil natni í að gera þá sem best úr garði. Búningahönnuðir sýningarinnar hafa unnið gott starf og næsta víst að margur af kynslóð- inni sem man þessa tíma muni fyllast ljúfsárum söknuði í leikhús- inu. I upphafi sýn- ingarinnar eru per- sónurnar kynntar með myndasýn- ingu á hvíta tjald- inu og áhorfendur búnir undir það sem koma skal. Persónusafnið er æði fjölskrúðugt og í því er reyndar fólginn einn af veikleikum sýn- ingarinnar. Persón- umar, og einkan- lega aukapersón- umar em einfald- lega of margar og fá sumar hverjar ekkert svigrúm til að skapa sér líf á sviðinu. Auk þess fer gjaman tveim sögum fram á svið- inu í einu, og stöðug skipti eiga sér stað á milli þeirra leikara sem flytja textann. Þessi aðferð er mjög krefjandi og tæpast á færi nema þjálfuðustu leik- ara að vinna úr þannig að vel takist. Utkoman er reyndar furðu góð en nokkur atriði urðu hikandi og skrykkjótt og augljóst að þessi leik- aðferð gerir leikendum erfitt fyrir að halda karaktemum. Bjarki Þ. Guðmundsson leikur El- mar og verður að öðmm ólöstuðum að teljast stjarna sýningarinnar. Bjarki er greini- lega efnilegur leikari og hann leyst hlutverk sitt með stakri prýði. Bjarki syngur líka ágætlega, til að mynda í Biðrað- arlaginu. Frí- mann er leikinn af Davíð Stein- grímsyni og náði hann sér oft vel á strik. Gunnar Sturla Hervars- son fór á kostum í hlutverki Frí- manns flug- kappa, var skemmtilega glaðbeittur og líflegur alla sýn- inguna og syng- ur með miklum ágætum. Þórdís Ingibjartsdóttir er þekkt fyrir söng sinn og leiddi Dúfuhóp- inn af öryggi. Hún náði nokk- uð góðum tökum á Dollý þótt dá- lítið hafi skort upp á persónuna frá hendi höf- undanna. Þormar er kannski líka full klisjukennd persóna til þess að hægt sé að gera mikið úr honum en Steingrími tókst að blása í hann lffi, og þá helst í lokasenunni með Bjarka. Júlíanna Omarsdóttir leikur Ellý og Sveinbjöm Hafsteinsson Gæja bróður hennar og stóðu þau sig bæði vel. Sveinbjöm var fullur sjálfs- trausts í söngnum. Hermann V. Guð- mundsson er raddsterkur maður og í hlutverki Hveitibjarnar fékk hann mörg tækifæri til að láta glymja hraustlega í Bíóhöllinni. Persóna Hveitibjamar er ekki flókin og Her- manni tókst að skapa úr honum reffi- legan peningakall. Elsu J. Kiesel gerði Ólínu að lifandi persónu og söng eitt fallegasta lag sýningarinnar. Vera Knútsdóttir var síðan sannfær- andi í hlutverki kjaftforu stelpunnar. Særún Gestsdóttir fór með lítið hlut- verk en hún hefur fallega rödd eins og heyrðist þegar hún söng lagið I speglasalnum. Gellutríóin tvö sem fylgdu Frímönnunum flissuðu af sannri list og aðrar persónur leystu hlutverk sín af hendi eins vel og rammi sýningarinnar bauð upp á. Framsögn var á köflum óskýr og flutningur texta stundum of hraður. Lýsing var að mestu vel unnin og önnur tæknivinnsla góð. Notkun myndefnis kom vel út. Tónlistin og söngurinn verður að teljast aðalsmerki sýningarinnar og naut sín í Bíóhöllinni. Söngvaramir stóðu sig upp til hópa mjög vel og margir fundu sig ágætlega í leiknum. Bandið er þétt og hefur náð góðum tökum á Stuðmannatónlistinni án þess þó að eltast um of við útsetning- ar plötunnar. Sviðsmyndin fannst undirrituðum ekki vel heppnuð þótt hugmyndin væri í sjálfu sér allrar at- hygli verð. Öðmm tuminum á svið- inu var hreinlega ofaukið og hlutverk hans í sýningunni heldur óljóst, auk þess sem hann þrengdi verulega að í hópatriðum. Hljómsveitinni var síðan troðið á bakvið þennan sama tum í stað þess hafa hana fyrir opnum tjöld- um. Full ástæða hefði verið til að gera hlut hennar meiri í sýningunni. KK Hlutavelta Þeir Leó Da&ason, Dagur Jóhannsson, Óli Dór Baldursson og Ögmundur Sveinsson héldu hlutaveltu til styrktar Akranesdeild RKÍ. Upphæ&in sem þeir söfnu&u reyndist vera heilar 3750 krónur. Spurningakeppni slökkvilibsins Ólafur Dór Baldursson vann til verðlauna í árlegri spurningakeppni Landssambands slökkviliðsmanna. Slökkviliðsmenn heimsækja þriðju- bekkinga um allt land og leggja fyr- ir þá spumingar um eldvamir. Um tvöþúsund og fimmhundruð svör bámst og var Ólafur Dór eini Skaga- maðurinn sem fékk verðlaun. Ólafur Dór Baldursson me& ver&- iaunin sín Félag eldri borgara á Akrajiesi og nágrenni Álykta um húsnæbis og kjaramál FEBAN, Félag eldri borgara á Akranesi og nágrenni er tíu ára á þessu ári sem Samein- uðu þjóðirnar hafa tiieinkað öldruðum. Á aðalfundi félags- ins í lok febrúar ályktuðu fundarmenn um húsnæðis- og kjaramál. f ályktun um hús- næðismál er þeim tilmælum beint til bæjarstjórnar Akra- ness að hugað verði að félags- heimili fyrir eldri borgara á Akranesi. I ályktun um kjaramál segir að þeir sem fá lífeyri út úr al- mannatryggingakerfinu eigi að sitja við sama borð og aðrir launþegar í launaþróun. Fund- urinn gerir þá kröfu til ríkis- stjórnar íslands að hún leiðrétti þann mismun sem orðinn er og afturkalli þau lög sem þessu valda. Grunnlífeyrir verður að hækka verulega og endurskoða verður jaðarskatta. Eldri borg- arar neita enn og aftur þeirri tví- sköttun á greiðslur úr lífeyris- sjóðum sem á sér stað og krefj- ast þess að fá mann úr sínum röðum í tryggingaráð. í lok ályktunarinnar um kjaramál eru stjómmálamenn minntir á kosn- ingamar í vor og það rifjað upp að atkvæði eldri borgara eru jafn mikilvæg og atkvæði ann- arra þegna þessa lands. Frá opnun sýningarinnar. Listakonur af Skaganum í Borgarnesi Góbar viötökur Þessa dagana er að ljúka í Safna- húsinu í Borgamesi myndlistarsýn- ingunni Heimurinn okkar. Listakon- urnar sem þar sýna em þær Hrönn Eggertsdóttir og Margrét Jónsdóttir, báðar myndlistarkennarar á Akra- nesi. Sýnir Hrönn olíumálverk á striga og vatnslitamyndir en Margrét verk úr steinleir og jarðleir. Sýningin var opnuð laugardaginn 13.mars og að sögn starfsmanna Safnahússins hefur aldrei verið jafn fjölmennt við opnun sýningar þar, eða 160 manns. Við opnunina söng Sigurður Skagfjörð þjóðleg lög og Ulrik Ólafsson spilaði undir á bar- ónsflygilinn svokallaða, en hann var í eigu Hvítárvallabarónsins sem sagt var frá í síðasta blaði. Þær Margrét og Hrönn em afar ánægðar með móttökur heimamanna og viðtökumar sem þær hafa fengið í Borgarnesi. Sýningunni lýkur 26. mars. KSE Ver&laun fyrír eldvarnaviku Árleg eldvarnavika Landssam- bands slökkviliðsmanna er haldin í desember ár hvert. Lögð er áhersla á að ná til allra grunn- skólabarna í þriðja bekk. Skólar eru heimsóttir af fulltrúum slökkviliðanna á hverjum stað fyr- ir sig. Þar er börnunum leiðbeint um hvemig bregðast skuli við eldsvoða, og hvemig staðið sé að forvömum. Bömin fengu öll rafhlöðu í reyk- skynjara að launum. Þá var þeim boðið að taka þátt í getraun þar sem dregið er úr öllum réttum lausnum. Þátttakendur að þessu sinni vom um 2500. Heppinn vinningshafi í Ólafs- vík var að þessu sinni Kristfinnur Ólafsson í 3. bekk GO. .............................EMK

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.