Skessuhorn


Skessuhorn - 20.01.2000, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 20.01.2000, Blaðsíða 2
1' ! 2 w íjtr,~)A-rnjrN t ' ”! FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 , , - i»-, . aaigasiiwaiBiCT WWW.SKESSUHORN.IS Borgarnesi: Borgarbraul 49 Simi: (BorgarnesogAkranes) 430 2200 Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (Borgomes) 430 2201 SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. 430 2200 Framkv.stjóri: Magnús Magnússon 852 8598 Ritstjóri og óbm: Gisli Einarsson 852 4098 Vefdeild: Bjarki Mór Karlsson 854 6930 Blaóamenn: Bryndís Gylfadóttir 892 4098 Soffía Bæringsdóltir 862 8904 íþróttafréttaritori: Jónns Freysson (Jnmes Fryer) Auglýsingar: Guðrún Björk Friðriksdóttir 430 2200 Silja Allansdóttir 431 4222 Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólafsdóttir 431 4222 Prófarkarlestur: Ágústo Þorvaldsdóttir og Magnús Magnússon Umbrot: Skessuhorn / TölVert Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. skessuhorn@skessuhorn.is ritstjori@skessuhorn.is vefsmidja@skessuhorn.is auglysingor@skessuhorn.is auglysingar@skessuhorn.is bokhald@skessuhorn.is Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrlfenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði verð í lausasölu er 200 kr. 430 2200 Fyrirfram hættur Gísli Einarsson, ritstjóri. Ég hef loks tekið þá tímamótaákvörðun að ég mun ekki gefa kost á mér sem næsti formaður Framsóknarflokksins. Ég mun jafhffamt hafna því að setjast í hásæti Davíðs að honum gengnum og þaðan af síður er ég til viðræðu um að taka að mér hlutverk forystusauðs allra Samfylkinga. Það er ekki held- ur inni í myndinni lengur að ég bjóði mig ffam til forystu fyr- ir Vinstri Rauðgrana né Frjálslynda, Léttlynda eða Fjöllynda. Ég er með öðrum orðum frjáls og óbtmdinn og því er ekkert til fyrirstöðu að ég setjist í stól Seðlabankastjóra um leið og ég hef jafhað mig af flenstmni, jafnvel fyrr. Þarna liggja fyrst og ffemst að baki persónulegar ástæður sem hafa hinsvegar ekkert með mína persónu að gera. Að vel ígrunduðu máli hef ég komist að því að það á ekki við mig að sitja undir ámæli fyrir mín embættisafglöp. Ég get alls ekki sætt mig við að vera skammaður fyrir hvert einasta klúður eða heimskupör sem ég kann að fremja. Ég vill fá að gera mínar vitleysur í ffiði án þess að misvitrir fjölmiðlar eða skyni skroppnir kjósendur séu að velta sér upp úr því. Ofan á allt annað þá þoli ég það hreinlega ekki að verið sé að gera grín að mér. Ég hef því ákveðið að stytta mér leið og í stað þess að ganga í gegnum misheppnaðan pólitískan feril til þess eins að kom- ast að því að þetta á ekki við mig þá fer ég beint í desertinn, bankastjórastólinn. Það hyllir að vísu undir að bankakerfið anni ekki effirspurn effir viðeigandi stólum. Þetta var ekki vandamál á meðan menn byrjuðu ekki í pólitík fyrr en þeir voru komnir af léttasta skeiði og hættu ekki fyrr en þeir voru komnir að fót- um ff am. Núna horfir málið hinsvegar öðruvísi við þegar ung- ir og ferskir menn eins og við Finnur uppgötvum það strax í larnæsku að pólitíkin er of grimm og tannhvöss. Það breytir yví ekki að við eigum sömu heimtingu á okkar stólum og kar- ægu gamalmennin. Sem uppgjafa pólitíkusi þykir mér það þó þunnur þrettándi að hafa ekki úr neinu öðru að velja en starfi bankastjóra og sendiherra. Sendiherrastarfinu hef ég fyrir það fyrsta engan áhuga á. Ég vil helst vera heima hjá mér en ekki að þvælast í ókunnugum löndum sem eru þar að auki full af útlendingum. Hvað bankastjórastarfið varðar þá hef ég ekkert gaman af pen- ingum og alls ekkert vit á þeim en það skiptir þó kannski minnstu máli í því tilfelli. Einhverjir kollega okkar Finns kynnu til dæmis að vilja snúa sér að búskap. Það væri því eðlilegt að ríkið hefði nokkrar jarðir tilbúnar á lager með nokkrum rollum, nýnorskum belj- um og fjölþjóðlegum mjaltakonum. Það er í öllu falli ekki verra en að gefa þær í jólagjafir til vina og vandamanna eins og tíðkast hefur. Þá væri ekki verra að ríkið ætti nokkur knattspyrnulið, fyrir utan hið heimsþekkta stórlið Alþingis þ.e.a.s fyrir okkur sem höfum reynslu og hæfileika til að gerast knattspyrnustjórar. Einhverjir aðrir hefðu hugsanlega fysnir til að stjórna strípi- dúbbum, bjórknæpum eða fást við skylda starfsemi og mér lætti ekki óeðlilegt þótt komið væri á móts við þær óskir og larfir. Það er sífellt verið að væla og vola yfir bágum hag öryrkja og öldunga en það er kominn tími til að menn opni augun fyrir því að það þarf að búa betur að þeim sem þola ekki lengur við í pólitík. Gísli Einarsson, verðandi Seðlabankastjóri Lögreglan á Akranesi Fleiri mál tíl meðferðar Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar á Akranesi voru mál til meðferðar hjá þeim 1511 á liðnu ári en 1155 árið 1998. Mest hefur aukningin verið í umferðarlaga- brotum. Mun fleiri voru teknir fyr- ir of hraðan aksmr. Mál voru alls 659 og aukningin því 314%. Ríf- lega helmingi fleiri voru teknir fyr- ir akstur án réttinda. Athugasemdir lögreglu við vanrækslu á biffeiða- skoðun jukust til muna frá 18 til- Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi hefur hraðaksmr verið með mesta mód á vegum í héraðinu að undanförnu. I síðusm viku var bíll frá Ríkislögreglustjóra á venju- bundnu eftirliti á veginum undir Að sögn Sigvalda Guðmunds- sonar lögreglumanns í Búðardal voru færri umferðaróhöpp í Döl- unum árið 1999 en árið áður. ”Þetta er mjög jákvæð niðurstaða því umferðin hér í gegn hefur auk- ist með bætmm samgöngum” sagði Sigvaldi. Samkvæmt upplýsingum hans um afbrot og óhöpp í Búðardal á Vöruflutningabíll með fullfermi af fiski valt á Utnesvegi við Amar- stapa á Snæfellsnesi um klukkan 3 aðfararnótt sl. fösmdags. Var bíll- Á sjötta tímanum síðastliðinn miðvikudag kom upp eldur í vinnu- skúr á hjólum sem stendur skammt frá Trésmiðjunni Akri á Akranesi. Skúrinn hefur staðið að mestu vikum í 82 tilvik. Svipað mörg til- vik um ölvunarakstur var á milli ára. Tæplega 50% fleiri ökumenn smngu af frá óhöppum árið 1999 en árið áður. Líkamsárásir kærðar til lögreglu vora færri. Eins hefur dregið úr innbromm. Mál í grip- deildum fækkaði um tæplega 50%. 18% aukning var í fíkniefnamál- um milli ára. Eignaspjöll á liðnu ári vora 61 en 79 árið áður. SB Hafnarfjalli og mældi þar nokkra bíla á hraðanum 110 til 136 km á klst. þrátt fyrir að aðstæður gæfu ekki tilefni til að pinninn væri troð- inn svo harkalega. -MM liðnu ári vora tvær líkamsmeiðing- ar kærðar á árinu. 11 sinnum var ekið á búfé og þar af stungu níu ökumenn af. Auðgunarbrot vora fjögur og einn brani. Þrír árekstrar urðu á árinu og níu útafkeyrslur. Afskipti lögreglunnar af ökumönn- um vora 35 og 6 sinnum þurftí að hafa afskipti af mönnum sem fóra inn á leið til Reykjavíkur með fisk er óhappið varð. Bílstjórinn var einn í bflnum en hann sakaði ekki. MM ónotaður um nokkurt skeið. Líkur era til að kveikt hafi verið í skúrn- um. Slökkviliðið á Akranesi kom á staðinn og slökktí eldinn en skúr- inn er ónýtur. -MM Ný störf á Akranesi Með komu Nettó tíl Akra- ness má gera ráð fyrir því að um tíu ný störf fylgí í kjölfar- ið. Að sögn Hannesar Karls- sonar deildarstjóra í Nettó er um að ræða verslunarstjóra, skrifstofustarf og almenna starfsmenn. ”Fólk er nú þegar farið að spyrjast fyrir um öll störfm þó að aðeins hafi verið auglýst eftir verslunarstjóra” segir Hannes Karlsson. SB Bætt aðgengi fyrir fatlaða Ný greinargerð er komin út um aðgengi fatlaðra í opin- berum byggingum á Akranesi. Samkvæmt henni hefur að- gengi fyrir fatlaðá lagast ffá því að fyrri greinargerð var gefin út. Bæjarstjórn hvetur til þess að markvisst verði unnið að því að bæta enn rneira að- gengi að opinberum bygging- um. Hún hefur falið bygg- inga- og skipulagsfulltrúa að leggja fyrir bæjarráð greinar- gerð um kostnað við úrbætur á stofnunum bæjarins. -SB Frumherji að selja Viðræður eru í gangi milli. Heklu hf. og Framherja hf. um sölu þess síðarnefnda á ' huseigninni að Sólbakka 2 í Borgarnesi þar sem rekin hef- ur verið skoðunarstöð bfla síð- astliðin 10 ár. Ekki hefur þó enn verið skrifað undir samn- ing vegna sölunnar. Að sögn Kristjáns Björns- sonar starfsmanns Framherja hf. er ástæða sölunnar sú að skoðunarstöðin í Borgarnesi er ekki opin nema tvisvar í viku og því er húsnæðið mjög vannýtt. Gert er ráð fyrir að Frumherji leigi hluta húsnæð- ísins fyrir skoðunarstöð sem opin verður tvisvar í viku, eins og verið hefur. Hekla hf. mun reka sölu- umboð nýrra og notaðra bfla í húsinu og mun starfsemi Bfla- sölunnar Torgs flytja af þeim sökum ffá Brúartorgi í Sól- bakkann þegar gengið hefiir verið frá kaupunum og lóðin umhverfis húsið hefur verið lagfærð. Sambærilegar þjón- ustustöðvar hefur Hekla hf. nú þegar keypt á Selfossi og í Reykjanesbæ. -MM Krabba- meinsskoðun Krabbameinsskoðun á veg- um Krabbameinsfélga Islands fer fram á Heilsugæslustöð- inni í Borgarnesi dagana 31. janúar til 4. febrúar nk. Allar konur í héraðinu eiga að vera búnar að fá bréf um skoðun- ina. Æskilegt er að konur mæti í krabbameinsskoðun á tveggja ára fresti. (fréttatilkynning) Ovenju mikið um hraðakstur Búðardalur: Færri óhöpp Fiskbíll útaf við Slökkviliðsmenn á Akranesi varfljótir að ráða niðurlögum eldsins. Mynd: MM Kveikt í skúr við Akur

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.