Skessuhorn - 04.05.2000, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 4. MAI 2000
aitU9imu>.
SSV verður áfram til í breyttri mynd
spáir Hrefna B Jónsdóttir sem tekið hefar að sér daglegan rekstur samtakanna
Nú um mánaðamótin lét Guðjón
Ingvi Stefánsson framkvæmdastjóri
af starfi sínu hjá Samtökum sveitar-
félaga í Vesturlandskjördæmi. Þar
'sem framtíð samtakanna og skipu-
lag þeirra er nokkuð óljóst var farin
sú leið að ráða Hrefnu B Jónsdótt-
ur atvinnuráðgjafa í starf skrifstofu-
stjóra samtakanna til haustsins, eða
þar til ákvörðun verður tekin um
framtíðarskipulag samtakanna.
Hrefna mun sjá um daglegan rekst-
|
Hrefiia í Hjarðarholti og Þorvaldur T Jónsson maður hennar byggðu á liðnu ári reisu-
legt hesthús áj'órð sinni enda er hestammnska sameiginlegt áhugamál þeirra beggja. Hér
er Hrefna ásamt uppáhaldshestinum; Ljóma. Myndir MM
ur skrifstofu SSV og Atvinnuráð-
gjafar Vesturlands í Borgarnesi í
samráði við Gunnar Sigurðsson
formann stjórnar SSV. Einnig hefur
hún prókúru samtakanna. Hrefna
mun áfram starfa við atvinnuráð-
gjöf samhliða nýju starfi. Af þessu
tilefni ræddi blaðamaður Skessu-
horns við Hrefnu á heimili hennar í
Hjarðarholti í Borgarbyggð.
Samtök sem þessi eiga
rétt á sér
Aðspurð um nýja starfið segir
Hrefha að einungis sé um tíma-
bundna ráðningu að ræða í þetta
starf. “Stjórn samtakanna hefur gert
tillögu að framtíðar skipulagi sam-
takanna og verður það til umfjöll-
unar á aðalfundi þeirra í haust.
Framtíð SSV er nokkuð óljós ekki
síst í ljósi þess að stærsta sveitarfé-
lagið, Akraneskaupstaður, hefur
sagt sig úr samtökunum frá næstu
áramótum. Hins vegar liggur það
fyrir að landshlutasamtök sem þessi
eiga fullan rétt á sér og munu því
líklega verða til áfram en þó í
breyttri mynd. Meðal annars kom
það fram á fundi landshlutasamtak-
anna í væntanlegu Norðvestur kjör-
dæmi nú í mars að fullur vilji er fyr-
ir áframhaldandi tilveru landshluta-
samtaka sveitarfélaga í lítið breyttri
mynd. Einnig liggur það fyrir að
sveitarfélögin þurfa að stækka og
eflast til að verða í stakk búin til að
takast á við aukin verkefni sem útlit
er fyrir að færast munu ffá ríki til
sveitarfélaga á næstunni. Það er
heilmikið hagsmunamál útfrá dreif-
býlissjónarmiði að fá yfirstjórn ým-
issa málaflokka heim í hérað.
Þannig er mikilvægt að sveitar-
stjórnarfólk haldi vöku sinni hvað
hagsmuni landsbyggðarinnar varð-
ar og beiti til þess samtökum sem
Klukknahljómur
Borgarneskirkja eignast þriðju kirkjuklukkuna
í liðnum mánuði var lokið við að
setja upp þriðju klukkuna í turn
Borgarneskirkju. Fyrir í turninum
voru tvær stærri klukkur þannig að
nú er mögulegt að spila þriggja
hljóma stef í turninum. Þó nýja
klukkan sé þeirra minnst vegur
hún 200 kíló þannig að nokkrar til-
færingar þurfti til að koma henni
fyrir, m.a. þurfd að fjarlægja skíf-
una og hífa nýja gripinn upp með
krana.
Að sögn Hreggviðs Hreggviðs-
sonar starfsmanns kirkjunnar var
um leið tengt nýtt tölvukerfi sem
stýrir hringingum klukknanna
þannig að nú geta starfsmenn for-
ritað hringingar sjálfir og valið stef
sem henta einstökum kirkjulegum
athöfnum. Auk þess hringja klukk-
urnar á korters fresti fram til tíu á
kvöldin.
Það var Asgeir Long sem flutti
klukkurnar inn frá Hollandi og
annaðist uppsetningu þeirra, en
svo skemmtilega vill til að hann
setti einnig upp eldri klukkurnar
tvær fyrir vígslu kirkjunnar árið
1959. Borgarneskirkja átti því
fjörutíu ára vígsluafimæli á síðasta
ári og af því tilefni voru nokkur
fyrirtæki í bæjarfélaginu sem
styrktu kirkjuna í klukkukaupum
þessum.
MM
Borgameskirkja
Mynd: EE
•<f|*
;
I gættinni heima í Hjarðarholti ásamt dætrum sínum þeim Sigriði og Steinunni.
þessum”, segir Hrefna.
Góð verkefhi að baki
Aðspurð um hennar skoðun á
framtíð samstarfs sveitarfélaga á
Vesturlandi segir Hrefna: “Eg sé
ekki hvaða stjómvald ætti að taka
yfir ýmis sameiginleg verkefni ef
SSV leggst af. Þvert á móti þurfa
sveitarfélögin á svæðinu að þjappa
sér enn meira saman og mynda
sterka heild. Undanfarin ár hefur
það sýnt sig að sameiginleg verkefni
okkar hafa verið að skila miklum ár-
angri. Nefni ég sem dæmi stofnun
Símenntunarmiðstöðvar Vestur-
lands, Sorpurðun, UKV, Vestur-
landsvefinn og ýmis fleiri farsæl
samstarfsverkefni. Hins vegar má
segja að samtök sem þessi þurfi að
aðlagast breyttum tímum og endur-
skipulagning samtakann er sjálf-
sögð á þessum tímapunkti”, segir
Hrefiia.
Landfræðilega of stórt
kjördæmi
Hrefna segir að á fundi lands-
hlutasamtaka sveitarfélaga í vænt-
anlegu Norðvestur kjördæmi hafi
komið fram skýr vilji ráðamanna
um að láta Iandshlutasamtökin á-
fram verða til þótt kjördæmið
stækki. Landfræðilega verði nýtt
kjördæmi það stórt að ekki er talið
hagkvæmt að steypa allri starfsem-
inni undir einn hatt. Kom þetta
sjónarmið skýrt ffam bæði í máli
þingmanna og ráðherra að leggja
ætti áherslu á að halda fjórðungs-
samböndunum, treysta tekjustofna
þeirra og efla þannig sveitarstjórn-
arstigið. Reynsla mín og skoðun á
framtíð SSV er í fullu samræmi við
þessar niðurstöður fundarins. Því
held ég að SSV verði áfram til þótt
innra skipulag eigi eftir að taka
breytingum”, segir Hrefna um
samtökin sem hún hefur starfað fyr-
ir s.l. 4 ár.
Hjá SSV og Atvinnuráðgjöfinni
eru nú um 5 stöðugildi; ritari auk
atvinnuráðgjafanna. Um þessar
mundir er verið að auglýsa lausa
stöðu markaðsráðgjafa hjá Atvinnu-
ráðgjöfinni og segir Hrefna að
mörg verkefni séu á borði atvinnu-
ráðgjafanna um þessar mundir.
“Verkefnum er síst að fækka hjá
okkur og mikill kraftur í aðilum
sem byggja vilja upp öflugt atvinnu-
líf á Vesturlandi”, sagði Hrefna B
Jónsdóttir að lokum. MM
Nýíæddir Vesdend-
ingar eru boðnir
velkomnir í heiminn
um leið og
nýbökuðum
foreldrum eru frerðar
hamingjuóskir.
30. apr. kl 18:07- Meybam,- Þyngd:
3740- Lengd: 32 cm. Foreldrar: Val-
gerður Kristín Guðbjömsdóttir og
Bjanii Borgar Jóhannsson. Akranesi.
Ljósmóðir: Bára Jósefsdóttir.