Skessuhorn - 04.05.2000, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 4. MAI 2000
15
Fyrsta maí síðastliðinn hélt hesta-
mannafélagið Dreyri hina árlegu
firmakeppni félagsins. Er þessi
keppni haldin í tilefni af afmælisdegi
félagsins. Var þátttaka þónokkuð góð
og allt fór fram eins og best var á
kosið. Ahorfendur streymdu að til að
fylgjast með, enda voru knapar og
hestar hver öðrum glæsilegri. Ekki
var hægt að kvarta undan veðri þó
menn blotnuðu aðeins til að byrja
með. Eftir keppnina var svo boðið
uppá kaffi og kökur um leið og verð-
launaafhending fór ffam. BG
Urslit í bamaflokki
Elis Veigar Ingibergsson
Fríður Kristjánsdóttir
Ema Björk Kristinsdóttir
Urslit í unglingaflokki
Karen Líndal Marteinsdóttir
Sigríður Helga Sigurðardóttir
Sigurður Olafsson
Úrslit í kvennaflokki
Sigurveig Stefánsdóttir
Margre't Jakobsdóttir
Ann Jörgensen
Úrslit í karlaflokki
Ólafur Guðmundsson
Jón Amason
Björgvin Eyþórsson
Félagsmenn ásamt boðsgestum t svartfuglsveislu í Krákunni t Grundarfirði. A matseðl-
inum var m.a. hnísa. Mynd: EE
KarlaHúbburinn
Fengur fengsæll
Gott veður spillti ekki fyrir
veiðiáhuga Karlaklúbbsins Fengs,
þegar meðlimir hans lögðu af stað
árla morguns til svartfuglsveiða á
tveimur bátum, Garpi og Asgeiri
frá Grundarfirði. Ferðin var farin í
samstarfi við Skotveiðifélag
Grundarfjarðar. Bátarnir héldu í
aðskildar áttir, annar hélt í vesmrátt
og hinn til austurs. Þegar í land var
komið, síðla dags með 160 fugla,
var haft samband við vertinn í
Krákunni og síðan var boðið til
hófs fyrir veiðimennina, 9 að tölu.
I Karlaklúbbinn Feng eru skráð-
ir 3 félagar og voru hinir 6 burt-
fluttir Grundfirðingar og sunnan-
menn sem voru boðnir með í þessa
skemmtiferð. Þetta mun vera í ann-
að skipti sem slík ferð er farin og er
stefnt að því að hafa slíkar ferðir ár-
lega. EE
Iþróttamóti í hestaíþróttum lauk með glæsibrag
Mildl og góð þátttaka
Laugardaginn 29. apríl var hald-
ið Iþróttamót í hestaíþróttum á
vegum hestamannafélagsins Snæ-
fellings í Olafsvík. Góð þátttaka var
í mótinu og var blíðviðri með betra
móti á keppnissvæðinu.
Mótið hófst klukkan 13.30 og
lauk ekki fyrr en kl 22 um kvöldið.
Keppt var í fjórgangi barna, ung-
linga, tölti barna og unglinga, Ijór-
gangi fullorðinna, og tölti, fimm-
gangi fullorðinna og gæðinga-
skeiði. Úrslit urðu þau að knapi
mótsins var valinn Gústaf Ivarsson,
og hestur mótsins var Sóley en
knapi var Kolbrún Grétarsdóttir.
A mótinu voru jafnframt afhent
verðlaun fyrir samanlagða sigur-
vegara á raðmótum vetrarins. I full-
orðinsflokki sigraði Lárus Hannes-
son, í öðru sæti var Gunnar
Tryggvason, og í þriðja sæti lenti
Guðmundur Olafsson. I unglinga-
flokki sigraði Hörður Óli Sæmund-
arson, í öðru sæti var Emil F. Em-
ilsson og þriðja sætið vermdi Jó-
hann Ragnarsson.
I unglingaflokki sigraði Vilborg
H. Sæmundardóttir, önnur varð
Jóna L. Bjarnadóttir og þriðja sætið
féll í hlut Evu Krístínar Kristjáns-
dóttur. EE
Verðlaunagripimir voru glæsilegir. Myndir: EE
Iþróttir og
heilsuefling á Akranesi
Þegar Iíða fer að sumri er margt
að skipuleggja hjá þeim sem
snúa að íþróttastarfi. Sumarið
firamundan leggst alveg ágætlega
í Stefón Má íþróttafúlltrúa Akra-
nesbæjar og býst hann við anna-
sömu og Iíflegu sumri.
í sumar
Búast má við einhverju nýju í
hverjum mánuði ffá heilsueflingar-
nefhd Akranesbæjar og er fólk hvatt
til að fylgjast vel með því. Iþrótta-
bandalag Akraness mun halda í-
þrótta og leikjanámskeið líkt og
síðasta sumar sem heppnaðist þá al-
veg ágætlega vel. Stefán Már telur
íþróttaiðkun hér á Akranesi
þónokkuð mikla en mundi þó vilja
sjá fleiri nýta sér þá góðu hreyfingu
sem sundið hefur uppá að bjóða.
Þónokkur spenna ríkir útaf opnun
18 holu vallar hjá golfklúbbnum
Leyni og telur Stefán að þar opnist
nýir möguleikar til að heilla utan-
aðkomandi fólk hingað í dags eða
helgarheimsóknir. Skagamenn hafa
svo ágæta aðstöðu og fallegt um-
hverfi uppá að bjóða.
í deiglunni
Þessa dagana er verið að ræða úr-
bætur á Merkurtúninu svo að það
svæði gæti nýst sparkáhugafólki
betur. Einnig er verið að athuga
möguleika á sparkvöllum við báða
grunnskólana eða við Jaðarsbakka.
Svo segir Stefán viðræður vera í
gangi um hvort Akranesbær ætti að
taka þátt í íþróttaskemmubyggingu
í Grafarvogi sem meistaraflokkar
hér gætu nýtt sér. I sumar verður
Stefán Már Guðmundsson
nóg um að vera á Skaganum, m.a.
hjólreiðadagur í maí, FM 957 hátíð
og skref 2000. Svo er bara um að
gera að fylgjast með og vera með.
BG
14 falliðúr
Deildarbikar
Á baráttudegi verkalýðsins léku Skagamenn áttu afspyrnu slakan
IA og Fylkir í 16 liða úsrslitum í leik og töpuðu 1-3. Mark Skaga-
Deildarbikar karla á Akranesvelli. manna gerði Baldur Aðalsteinsson.
Það er skemmst frá því að segja að PO
|jjf Veiðivörður óskast!
Veiðiíélag Langár óskar eftir starfsmanni til að
annast veiðivörslu við Langá frá 10. júní til 20.
I september. Viðkomandi parf að hafa bíl til
I umráða
X
w
s Skrifleg umsókn sendist til formanns félagsins,
Einars Ole Pedersen, Álftártungukoti, 311
Borgarnesi fyrir 14. mai nk.
Stjórn Veidifélags Langár