Skessuhorn - 04.05.2000, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 4. MAI 2000
gEESÍUHöBH
Abyrgðarhluti að
skoða ekki sameiningu
segir Oli Jón Gunnarsson bæjarstjóri Stykkishólms
Eins og komið hefur fram í
Skessuhorni hafa sveitarfélög á
Snæfellsnesi verið að stórauka sam-
vinnu sín á milli að undanförnu.
Sveitarfélög á norðanverðu Snæ-
fellsnesi hafa nú nýverið sameinast
um félags- og skólaþjónustu. Þá er
unnið að undirbúningi fyrir stoín-
un framhaldsskóla á Snæfellsnesi
og einnig hefur komið til tals að
sveitarfélögin á Nesinu standi að
sameiginlegu útboði um sorpflutn-
ing.
I kjölfar aukinnar samvinnu hef-
ur komið upp umræða um hvort
næsta skref sé ekki að sameina
sveitarfélögin á Snæfellsnesi. For-
svarsmenn sveitarfélaganna hafa
ekki útilokað viðræður en jafhframt
lýst því yfir að rétt sé að fá reynslu
á umrædd verkefhi áður en lengra
er haldið.
Oli Jón Gunnarsson bæjarstjóri
Stykkishólms er einn þeirra sem er
þeirrar skoðunar að ekki sé eftir
neinu að bíða. “”Það er að mínu
mati ekki nein þörf á að bíða eftir
að komin sé reynsla á þessi sam-
vinnuverkefhi. Það á að gera úttekt
á þessum málum og leiða fram kosti
og galla sameiningar. Kostirnir eru
ótvíræðir og sorphirðumálin eru á-
gætt dæmi um það. Þetta hefur ver-
ið langur ferill sem ekki er enn lok-
ið. Þetta mál hefði unnist mun
hraðar í sameinuðu sveitarfélagi.
Byggðasamlagsformið getur verið
mjög tafsamt þar sem menn þurfa
að fara með hvert mál heim í sitt
sveitarfélag og taka þau fyrir í sinni
sveitarstjóm. Ef einhver er á móti
þarf síðan að fara annan hring með
málið. Auk þess eru byggðasamlög
framsal valds til fámenns hóps,”
segir Óli Jón.
Ymsir kostir
Aðspurður um stærð sameiningar
kveðst Óli Jón allavega horfa á
sveitarfélögin á norðanverðu nes-
inu en Eyja- og Miklaholtshreppur
og Kolbeinsstaðahreppur séu að
sjálfsögðu velkomnir með. Hann
segir að hugsanleg sameining hafi
verið rædd í bæjarstjórn Stykkis-
hólms og þar á bæ séu menn
hlynntir því að málið verði skoðað
sem fyrst. “Menn sjá fyrir sér ýmsa
kosti auk þess sem áður hefur verið
nefnt. Meðal annars má nefha að
auðveldara væri að ráða sérhæfða
tæknimenn á ýmsum sviðum sem
full þörf er á. Eg tel það vera virki-
legán ábyrgðarhluta hjá okkur sem
emm í forsvari fyrir þessi sveitarfé-
lög að láta ekki kanna málið sem
fyrst. Það getur verið að þetta sé ó-
raunhæft og þá kemur það í ljós. Ef
sameining er skynsamlegur kostur
er ekki eftír neinu að bíða. Eg gekk
í gegnum þetta ferli tvisvar í Borg-
arnesi og Borgarbyggð og sá að þar
glötuðust umtalsverðir fjármunir
fyrir það hve langan tíma það ferli
tók. Það er því ljóst í mínum augum
Olijón Gunnarsson
að allur dráttur sé tjón fyrir Snæ-
fellinga í heild.”
Skoða allt
Óli Jón telur að landfræðileg lega
svæðisins sé engin fyrirstaða hvað
sameiningu varðar. Aðspurður um
fjárhagsstöðu sveitarfélaganna segir
hann að hún sé væntanlega eitthvað
misjöfn. “Það er auðvitað einn
þeirra þátta sem þarf að skoða.
Einnig hvar sveitarfélögin eru
stödd framkvæmdalega séð. Það
þarf að skoða alla hugsanlega þætti
og síðan er hægt að meta hvort
þetta er skynsamlegt eða ekki. Við
getum ekki tekið ákvörðun að óat-
huguðu máli og okkur ber skylda til
að skoða málin svo við vitum hvað
við eram að tala um,” segir Óli Jón
að lokum. GE
laugardaginn 6. maí
opið kl. 10 - 16
Laugardagstilboð
Wrangler Strets
gallabiixur
aðeins kr. 3.990,-
Dömu kvart buxur
galla og bómull
kr. 3.990,-
20 % afsláttur
af skólatöskum og pennaveskjum
VERZLUNIN
SlMI 431 2007 # j j 1
STSLLHOLTI ( 1 A)
AKRANESIV J
Ogýmis ^ ^
önnurtuboð 8óka i skeniiiiaíi
Stillholti 18 - Sími 431 2840
mUttyMin e!)f
Ægisbraut 30 Akranesi
Sími 431 2028 Fax431 3828
• Einangrunargler
• Öryggisgler
• Speglar
• Innrömmun
Er móða á milli glerja ?
Er þá ekki kominn tími til
að endurnýja glerið?
Fljót og góð þjónusta
Hjá okkur fæst næstum
allt sem viðkemur gleri
og glerísetningu
(HleiljiHím-i)
Nú er komið sumar, oi
full búð af sumarleikföngum
Gröfur - vörubílar - traktorar -
skóflur og fötur
Baby Born - bollastell - dúkkur -
dúkkuvagnar og dúkkukerrur
Mikið úrval af
búsáhöldum og
gjafavöru við
allra hæfi
Ódýrar mottur í nokkrum stærðum
Opið: mánudaga-föstudaga 10-18
og laugardaga kl. 10-14