Skessuhorn - 04.05.2000, Blaðsíða 11
SZESStiHÖSM
FIMMTUDAGUR 4. MAI 2000
II
Laus pláss á Felli
Til Ilægri: Valgeríur Haraldsdóttir
vistmaður á Dvalarheimilinu Fellaskjóli
þar semfátt er um manninn þessa
dagana.
Á Dvalarheimilinu Felli í
Grundarfirði eru tvö laus pláss
síðan í febrúar, ein íbúð og eitt
herbergi. Til stendur að breyta í-
búðinni og stækka hana. Að sögn
Jóhönnu Gústafsdóttur, for-
stöðumanns, er ekki óvanalegt að
pláss séu laus og eru engir biðlist-
ar, öfugt við það sem gengur og
gerist víða annarsstaðar. Fólk
getur fengið inni á Dvalarheimil-
inu við 67 ára aldur. Stundum eru
menn þó teknir fyrr inn vegna
veikinda. Dvalarheimilið hefur
boðið upp á hvíldarinnlögn ef um
er að ræða skammtímatilfelli.
Fólk sem komið er yfir sjötugt er
í miklu betra formi en þekktist
fyrir nokkrum árum og margir
kæra sig ekki um að leggjast strax
inn. Hjón sem hafa náð tilskild-
um aldri og hafa fengið inni á
Dvalarheimilinu hafa sum ekki
staldrað lengi við og flutt sig um
set á gamlar slóðir.
EE
Marteinn að spúla aftara dekkið eftir aðgerð.
A skaki á amerísk-
um skemmtibáti
Hann Marteinn Einarsson var að
spúla aftara dekkið á Glitskýi eftir
aðgerð þegar blaðamaður Skessu-
horns hitti á hann við smábáta-
höfnina í Stykkishólmi. Marteinn,
sem er fyrrverandi kennari, og ffá
Reyðarfirði, tók sig til fyrir
nokkrum árum síðan og smíðaði
Glitský, samkvæmt amerískri
skemmtibátateikningu. Upphaflega
stóð til að nota bátinn sem fljót-
andi sumarbústað en þeirri áætlun
var varpað fyrir róða og bátnum
fengið skakhlutverkið efrir leng-
ingu aftari skuts og uppsetningu
handfæravindu. EE
Ertu aö tapa stórfé út um gluggana?
Glerið frá íspan getur sparað þér peninga.
Fáðu góð ráð hjá okkur. Það kostar ekkert.
Smiðjuvegi 7, Kópavogi sími 54 54 300 fax 54 54 301 www.gler.is