Skessuhorn - 18.05.2000, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 18. MAI 2000
pumn>
Skatlagrimur spflar
i Vörum frá Puma
Puma Vörur fást
hjá okkur
brúartorgi - borgarnesi
s. 437 1707
borgcirsport
VELAMAÐUR
BORGARNESI
Staða vélamanns hjá Vegagerðinni í Borgarnesi er
laus til umsóknar. Laun eru skv. kjarasamningi
VMSÍ og fjármálaráðherra.
Starfssvið:
<
o
• Stjórn bifreiða og vinnuvéla.
• Almenn verkamannastörf.
• Ýmis verkefni sem tengjast
viðhaldi bifreiða og véla.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Réttindi til að aka bifreið sem er
3.500 kg að heildarþyngd eða meira.
• Réttindi til að stjórna vinnuvélum.
• Góðir samstarfshæfileikar.
Nánari upplýsingar veita
Bjarni H. Johansen í síma 437 1320
og Ásgeir M. Kristinsson í síma 563 1562.
Vinsamlegast sendið umsóknirtil
Ráðgarðs á Akureyri eða í Reykjavík
fyrir 29. maí n.k. merktar:
„Vegagerðin - vélamaður Borgarnesi"
VEGAGERÐIN
Sprenging og eldur
í vélarrúmi físldbáts
Eldur kom upp í vélarrúmi vélbátsins Þorsteins SH 145
Um sjöleytið að morgni mið-
vikudagsins lO.maí varð sprenging
um borð í vélarrúmi vélbátsins
Þorsteins SH 145 eftir hálftíma
siglingu frá Rifshöfn á rniðin, eina
mílu norðvestur af Hellissandi.
“Eg var rétt nýskriðinn í koju
neðst í káetu þegar ég heyrði að
vélarhljóðið breyttist sagði Karl
Friðrik Thomsen 1. vélstjóri á
Þorsteini SH 145 í samtali við
Skessuhorn.
“Stýrimaður stökk strax frarnúr
koju sinni og við stukkum upp á
þilfar og ræstum mannskapinn sem
var kominn í koju. Skipstjórinn var
uppi í brú. Þegar við komum upp á
þilfar miðskips sáum við ekki
handaskil fýrir reyk. Stýrimanni
tókst að finna dyrnar uppá dekk og
við flýttum okkur upp. Við fórum
strax í að loka öllum lúgum og
loftventlum og lokuðum fýrir olíu-
tanka upp í brú.”
Aðspurður um hvað gerst hafi,
þá taldi Karl Friðrik að rekja mætti
orsök sprengingarinnar til þess að
hráolía hafi farið á túrbínuna þeg-
ar blindtappi á enda olíugreinar-
innar hafi gefið sig. “Vélarnar eru
lítið skemmdar, en hinsvegar eru
greinar og rafmagnsleiðslur ónýtar
og Ijóst að það muni líða nokkrir
mánuðir þangað til Þorsteinn SH
145 verði sjófær” sagði Karl Frið-
rik að endingu. EE
Grímur H Stefánsson eigandi Þrif ogþjónustu ehf í brunnum inngangi að vélarrúminu.
Mynd: EE
-<’vk <‘<i <,vi
BORGNESINGAll ATIKJGIl)
SKALLAGRÍMUR * DÁLVÍK
Fyrsti heimaleikur Skallagrims
i fyrstu deild verður föstudaginn
19. mai kk 20:00
llowð 04 (tytyið tfkkah ntenu til (itjuw
i
»
t .'
c
t
SKALIiAGRÍMIJR
<’<Í <’<j ^Í <’<i VÍ <VÍ