Skessuhorn - 07.09.2000, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000
j&tssunuk.
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraul 49 Sími: (Borgames og Akrones) 430 2200
Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (Borgarnes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi:
Framkv.stjóri:
Ritstjóri og óbm:
Internetþjónusta:
Blaðamenn:
Auglýsingar:
Fjórmól:
Próforkalestur:
Umbrot:
Prentun:
íslensk upplýsingatækni 430 2200
Magnús Mngnússon 894 8998
Gísli Einarsson 892 4098
Bjarki Mór Karlsson 899 2298
Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 1310
Ingi Hans Jónss., Snæfellsn. 895 6811
Hjörtur Hjartarson 864 3228
Sigurbjörg B. Ólofsdóttir 431 4222
Asthildur Magnúsdóttir og fleiri
Tölvert
Isafoldarprentsmiðja hf
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
internet@islensk.is
sigrun@skessuhorn.is
ingihans@skessuhorn.is
augl@skessuhorn.is
bokhald@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 250 kr.
430 2200
Með og
ámóti
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Ég er alfarið mótfallinn því að KRingar verði íslands-
meistarar í knattspyrnu nema í mesta lagi á þrjátíu ára fresti.
Eg er andvígur því að konur hafi kosningarétt. Ég er með-
mæltur því að Alþingi verði flutt aftur á Þingvöll. Ég leggst
gegn því að flytja ríkisstofhanir til Reykjavíkur. Ég hef hins-
vegar enga skoðun á því hvort bjóða eigi Lí Peng, í kaffi og
með'ðí.
Annaðhvort er maður með eða á móti. Ef ekki, þá heldur
maður einfaldlega kjafti. Málið er ekki flóknara en svo.
Því var það pínlegt að fylgjast með valdsmönnum þjóðar-
innar vappa í kringum umræddan Peng í síðustu viku haf-
andi ekki hugmynd um hvort þeir vildu að hann væri hér
eður ei. Þeim var vissulega vorkun því þeir gátu ekki einu
sinni tekið afstöðu til þess hvort þeir ættu að móðgast yfir
því að þessi geðþekki glæpamaður neitaði að stíga fæti inn í
Alþingishúsið. Þeir voru ekki einu sinni með það á hreinu
hvort þeim ætti að mislíka að Lí þessi Peng vildi frekar
drekka síðdegisteið sitt með sauðsvörtum almúganum á
meðan skósveinar hans úr röðum íslenskra löggæslumanna
og einkaribbaldar hans lumbruðu á fréttamönnum.
Skoðanaleysi þingmanna er reyndar skiljanlegt í ljósi þess
að í boði var fín veisla í Perlunni fyrir þá sem voru tilbúnir
að umbera karhnn enda var veislan það eina sem tekin var
skír afstaða til.
Almenningur hefðu átt að eiga auðveldara með að taka af-
stöðu þar sem þeim var ekki boðið í neina veislu. Enda voru
nokkrir stúdentar sem ákváðu að vera næstum því á móti Lí
gamla og stilltu sér upp fyrir framan Þinghúsið, með hálfum
huga þó. Sjálfsagt hafa flestdr þeirra verið því fegnir að sá
stutti lét ekki sjá sig svo að þeir þurftu ekki að mótmæla í
fullri alvöru.
Það virðist því miður vera Iiðin tíð að menn standi og falli
með skoðunum sínum. Enginn er lengur tilbúinn að berjast
fyrir sannfæringu sinni með hnúum og hnefum til síðasta
blóðdropa og deyja síðan píslarvættisdauða að lokum. Nú til
dags fara menn ekki í kröfugöngur nema að veðurspáin sé
góð og eru helst ekki tilbúnir að mótmæla nema hægt sé að
gera það í gegnum tölvupóst.
Samt sem áður hefur það enn ekki gengið upp, þótt það
hafi margoft verið reynt, að vera bæði með og á móti. Ég
þekkti einu sinni skynsaman mann sem tók þá afstöðu að í
eitt skipti fyrir öll að vera á móti, hvað sem var til umræðu.
Það var hans skoðun að það væri bæði flókið og tímafrekt að
velta sér upp úr málefninu ffam og til baka. Hann hafði þó
allavega skoðun á hlutunum og það treysti ég mér til að
virða hversu vitlaus sem skoðnunin er.
Gísli Einarsson, mótmœlandi.
Skemmdir skoðaðar á stefiii Baldurs í höfninni í Stykkishólmi. Mynd: GE
Baldur steytti á skeri
Breiðafjarðarferjan Baldur sigldi
á sker við Flatey síðastliðið mið-
vikudagskvöld. Þrír farþegar hlutu
minniháttar meiðsl og voru fluttir á
St Franciskusspítalann í Stykkis-
hólmi til aðhlynningar.
Ferjunni var siglt að bryggju í
Flatey strax eftir slysið en eftir
skoðun þar var talið óhætt að sigla
henni til Stykkishólms. Skemmdir
eru samt sem áður nokkrar á stefni
skipsins og er það til viðgerðar hjá
skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts
á Akranesi. Ferðir munu því falla
niður um óákveðinn tíma en leitað
hefur verið að báti til að annast
ferðir til Fleateyjar á meðan.
GE
Hjörleifur með lægsta
boð í húsin á Hellu
Hjörleifur Jónsson, húsasmíða-
meistari á Akranesi, átti lægsta boð
af 32 í bráðabirgðahúsnæði fyrir
þær fjölskyldur sem misstu híbýli
sín í Suðurlandsskjálftunum í sum-
ar. Framkvæmdasýsla ríkisins á-
skildi sér í útboðsgögnunum rétt til
þess að taka fleiri en einu tilboði og
þess vegna koma fjórir aðilar til
með að sjá um byggingu húsanna.
Hjörleifur sér þó um að byggja 20
af þeim 30 sem fyrirhugað er að
byggja og hin tíu skiptast á milli
þriggja aðila. Heildarkostnaðurinn
er tæplega átta milljónir króna á
hvert hús og eiga þau að vera kom-
in upp og tilbúin til notkunar þann
1. nóvember næstkomandi.
Að sögn Hjörleifs hefúr hann
þegar hafist handa við að undirbúa
smíðina á húsunum, en um alútboð
er að ræða og sjá byggingaraðilar
sjálfir um að teikna húsin. Hjörleif-
ur verður í samstarfi við norska fyr-
irtækið Bygg Engross, og sér það
um að útvega bæði efni og mann-
skap, en hátt í þrjátíu manns verða
í vinnu hjá Hjörleifi þegar mest
verður. Hann segist ekki ósáttur við
að hafa ekki fengið að sjá um að
byggja öll húsin. “Það léttir svolít-
ið af manni spennunni. Maður
hefði náttúrulega helst viljað fá þau
öll en ekki er ólíklegt að húsunum
fjölgi eitthvað og verði fleiri en 30.
Eftir að farið var af stað með þetta
verkefni kom í ljós að þörfin var
mun meiri en áður var talið og ég
fæ þá þau hús sem verða byggð um-
ffam þessi þrjátíu stykki sem búið
er að ákveða að byggja.”
SÓK
He'r má sjá hvemig sveppurinn myndar gulbnínar doppur á laufblöðum gljávíðisins og
myndar svokallað gljávíðisryð.
Ryðsveppur
finnst á Akranesi
Nýlega fannst ryðsveppur nokk-
ur á Akranesi sem aldrei hefur sést
þar áður. Sveppurinn er tiltölulega
nýr hér á landi, en hann barst upp-
haflega til Homafjarðar fyrir um
fimm árum síðan. Sveppurinn
myndar gulbrúnar doppur á lauf-
blöðum gljávíðis. Það gerist síð-
sumars og dregur hann úr þroska
ársprotanna og gerir þá afar við-
kvæma fyrir haustkali. Að sögn
Hrafnkels Á. Proppé, garðyrkju-
stjóra Akranesbæjar, er ekki mikið
um gljávíði á Akranesi og ætti því
að vera góður möguleiki á að halda
sveppnum í skefjum ef fólk fylgist
vel með sínum plöntum og bregst
tímanlega við ef það finnur smit. Ef
þess verður vart er hægt að klippa
greinar með blettóttum laufblöð-
um af og úða runnana svo með
sveppalyfi. SÓK
Ný brú á
Hugborgu SH
Nú standa yfir endurbætur á
vélbátnum Hugborgu frá Olafs-
vík. Sett hefur verið ný brú á
bátinn og er unnið að því að inn-
rétta hana og setja upp tæki.
Hugborgin sem gerð er út á
dragnót frá Ólafsvík var byggð í
Svíþjóð 1984 en keypt hingað til
lands 1988. Eigendur gera sér
vonir um að geta hafið róðra upp
úr næstu mánaðamótum.
IH
Ottast vatnsskort
Bæjarstjórn Stykkishólms hef-
ur nú til skoðunar tillögur Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen
um aukið vatnsrennsli til bæjar-
ins. Vatnsveita bæjarins, sem
byggð var upp úr 1970, gefur
um 150 tonn á sólarhring.
Nægt vam er til staðar í vatns-
bóli bæjarins við Svelgsá. Helst
er rætt um að komið verði upp
dælustöð í nágrenni Sauraskógar
og megi með því auka rennsli
upp í 250 tonn á sólarhring.
Gert er ráð fyrir að sú fram-
kvæmd geti kostað uin 20 millj-
ónir króna. I samþykkt bæjar-
ráðs frá 29. ágúst er áhersla lögð
á að hraða málinu. Þá var end-
urskoðanda bæjarins falið að
kanna hagkvæmni sameiningar
við Hitaveitu Stykkishólms.
IH
Gamla brúin
verði áfram
Skipulags- og byggingamefhd
Borgarfjarðar samþykkti á fundi
sínum fyrr í sumar að niæla með
því við sveitarstjórn að gamla
brúin yfir Grímsá við Fossatún
verði ekki rifin heldur verði nýtt
í framtíðinni sem reiðvegur. Vís-
að er til þess að augljóslega geti
skapast slysahætta af hestaum-
ferð yfir ána á þessum stað, þurfi
menn að ríða yfir nýju brúna.
Fordæmi fyrir þessu er t.d.
gamla brúin yfir Laxá í Leirár-
sveit og nokkrar brýr í Skaga-
firði. I samþykkt nefhdarinnar er
einnig vísað í 17. grein vegalaga
þar sem fjallað er um nauðsyn
reiðvega meðfram þjóðvegum
landsins.
MM
Ásókn í berín
Talsvert góð berjaspretta hefúr
verið í sumar hér á Vesturlandi
þrátt fyrir að í vor og fyrri hluta
sumars hafi verið þurrt og kalt.
Mikil umferð fólks var af þeim
sökum um helgina í berjalönd
víða um héraðið enda einmuna
veðurblíða. Af þeim sökum seld-
ust upp rjómabirgðir margra
verslana á svæðinu, enda er rjómi
og mikil] sykur ómissandi með-
læti með berjum.
MM
Góð uppskera
hjá Fóðuríðjunni
“Uppskeran hefur verið með
betra móti í sumar og við kom-
um til með að hafa nóg af hráefni
í graskögglaframleiðslu ársins,”
segir Sæmundur Kristjánsson
framkvæmdastjóri Fóðuriðjunn-
ar í Olafsdal. Hann segir fram-
leiðsluna ganga vel en eftir sé að
framleiða hestakögglana. Heild-
arframleiðslan verður 13 - 14
þúsund tonn í ár.
GE