Skessuhorn


Skessuhorn - 14.09.2000, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 14.09.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 SSlSSIíHöaW Makedónískur þjálfari í Hólminn Körfuknattleiksdeild Snæfells í Stykkishólmi hefixr ráðið til sín þjálf- ara tíl að stýra liðí félagsins í fyrstu deildinni í vetur. Sem kunnugt er féll Snæfell úr úrvalsdeildinni í vor efitir tveggja ára viðveru. Nýi þjálfarinn kemur frá Makedóníu og heitir Georgi Bujuklier. Hann er lærður körfuknattleiksþjálfari og hefur starfað sem slíkur í efstu deild í Makedóntu síðustu þrju ár. Georgi mun elnnig leika með Snæfellingtun í vetur. (Stykkishólmspónurinn sagöifrd) S Utboð á rekstri Baldurs Sæferðir með lægsta tilboðið Sæferðir ehf í Stykkishólmi áttu lægsta boð í rekstur Breiða- fjarðarferjunnar Baldurs til næstu þriggja ára. Tilboð þeirra hljóðaði upp á 166 milljónir króna. Tvö önnur tilboð bárust í rekstur ferjunnar. Breiðafjaðar- ferjan Baldur ehf í Stykkishólmi sem annast reksturinn í dag, bauð 185 milljónir og Nýsir hf í Reykjavík bauð 199 milljónir. Kostnaðaráætlun var 136 millj- ónir króna. GE Leikskólinn Andabœr á Hvanneyri í Borgarfjarðarsveit Byggt við Andabæ Þessa dagana standa yfir fram- kvæmdir við leikskólann Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 103 fer- metra viðbyggingu sem gefur mögu- leika á níu dagvistunarplássum til viðbótar. Að sögn Þórunnar Gests- dóttur sveitarstjóra Borgarfjarðar- sveitar verður pláss fyrir 36 böm á leikskólanum eftír stækkunina. Framkvæmdir við Andabæ hófust í júní s.l. en stefiit er að því að þeim ljúki um næstu mánaðamót. Heildar- kostnaður við ffamkvæmdimar er á- ædaður um 14 milljónir. Verktaki er Pétur Jónsson á Hvanneyri. GE Fjórar af 18 konum á Sívitnámskeiðinu. Mynd: GE Sívitsnámskeið skilar árangri Vika símenntunar er nú nýliðin. I tílefni hennar vom ýmsir atburðir í kjördæminu sem tengjast sí- og endurmenntun. Meðal þess má nefna að Símennmnarmiðstöðin gaf í vikunni út vandað kynningar- rit, eða námsvísi um hauststarfið, sálfræðingar mætm á vinnustaða- fundi og fleira mætti nefna. I Borg- arnesi kynnti Símenntunarmið- stöðin verkefni sem í gangi var síð- astliðinn vemr. Um er að ræða sam- starfsverkefni nokkurra landa þar sem konum var gefinn kostur á að læra á tölvur frá grunni. 18 konur af Bæjarráð Akraness hefur sam- þykkt tíliögu innkaupanefndar vegna slökkviliðs um að ganga til samninga við Almennu vömsöl- una um kaup á nýjum slökkvibíl. SÓK Athugasemd Vegna fréttar í síðasta tölublaði Skessuhorns um drátt á malbík- unarframkvæmdum í Borgarnesi vildi Sigvaldi Arason koma því á framfæri að fyrirtæki hans, Borg- arverk, væri ekki umræddur verk- taki. Til að forðast frekari mis- skilning skal það upplýst að verk- takinn sem um ræðir heitir Hlað- bær - Colas. GE Þ&E hyggja á fram- kvæmdir Hafnarstjórninni á Akranesi hefur borist erindi frá Þorgeiri og Ellert hf. um áætlun um fram- kvæmdir við skipalyftu, skipa- stæði og vagna á þessu ári og þvl næsta. Gísla Gíslasyni, hafnar- stjóra, var falið að afgreiða málið í samræmi við fjárhagsáætlun. SÓK ÖV aftur í Borgames? Samkvæmt heimildum Skessu- homs er Oryggisþjónusta Vestur- lands að kanna möguleika á að taka u|>p vöktun í "orgarnesi að nýju en sem kunnugt er hættí fyr- irtækið starfsemi þar s.l. vor. Síð- an hefur komið ffam að vilji er hjá mörgum fyrirtækjum til að þessi þjónusta sé til staðar í bænum. GE Vesturlandi tóku þátt í námskeiðinu sem fram fór á Varmalandi í Borg- arfirði, en sambærilegt námskeið fór samtímis ffarn á þremur öðrum stöðum á landinu. Verkefnið bar heitið See-wit sem fljótlega var íslenskað sem Sívits- verkefnið. Alls er um að ræða tæp- lega 60 stunda námskeið þar sem nemandinn getur að miklu leyti sjálfur ráðið námshraðanum en undir stjórn leiðbeinanda, sem í þessu tilviki var Inga Sigurðardótt- ir nýráðinn forstöðumaður Sí- mennmnarmiðstöðvar Vesturlands. Þátttakendur af Vesmrlandi komu frá Hvalfirði og Akranesi í suðri, Staðarsveit í vestri, Þverárhlíð í austri og Reykhólum í norðri. A kynningarfundi sem Símennmnar- miðstöðin og þátttakendur á nám- skeiðinu stóðu fyrir í síðusm viku var menntamálaráðherra, Birni Bjamasyni og samgönguráðherra, Smrlu Böðvarssyni, boðin þátttaka. Ráðuneyti þeirra tengjast fjar- kennslumálum í landinu, hvort á sinn hátt. Konurnar sem þátt tóku í nám- skeiðinu lém í ljós óánægju sína með hversu enn er erfitt að stunda fjarnám á landsbyggðinni, vegna lé- legra símalína, eða jafnvel að lausar símalínur em ekki til. Hvöttu þær ráðherrana til að vinna að úrbótum í þeim effium. Það er gaman að geta þess að af þeim 18 konum sem hófu tölvunám á Sívitsnámskeiðinu hafa 14 þeirra haldið áffam námi af einhverju tagi, þar af 8 í fjarnámi frá Verkmennta- skólanum á Akureyri. MM AndaMsárvirkjun Nýr umsj ónarmaður Stjóm Andakilsárvirkjunar hefur samþykkt að fela Guðbimi Tryggva- syni að taka að sér umsjón virkjunar- innar. Magnúsi Oddssyni, veimstjóra Akranesveim, hefur auk þess verið heimilað að auglýsa eftír vélvirkja eða manni með sambærilega mennt- un til starfa við stöðina. Honum var einnig falið að skilgreina þörf fýrir ráðgjöf við virkjunina og leggja til- lögur þar að lútandi fyrir stjómina á- samt kostnaðaráædun. SÓK Nýfæddir Vesdendingar eru boðnir velkomnir í heiminn um leið og nýbökuðum foreldrum eru ferðar hamingjuóskir. 7. september kl 12:W-Meybarn~ Þyngd:3780-Lengd:52 cm. Foreldrar: Jóhanna Olafsdóttir og Sturlaugur Friðrik Sveinsson, Akranesi. Ljósmóðir: Anna Bjönisdóttir. 8. septemberkl 13:5O-Meybam- Þyngd:344S-Lengd:S1 cm. Foreldrar: Birgitta Þórey Bergsdóttir og Bergþór Smárason, Akranesi. Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir. 11. september kl 01:12-Sveinbam- Þyngd:333S-Lmgd:Sl cm. Foreldrar: Ragnheiður Jónsdóttir og Þorbjöm Jóelsson, Harrastöðum, Btíðardal. Ljósmóðir: Erla Björk Olafsdóttir. 11. september kl 19:23-Meybam- Þyngd:499S-Lengd:S6 cm. Foreldrar: Sólveig V. Stefánsdóttir ogjón Pétur Líndal, Kjalamesi. Ljósmóðir: Soffía Þórðardóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.