Skessuhorn - 14.09.2000, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
7
Akranesveita - Andakílsárvirkjun
Reksturinn skoðaður
Á fundi Akranesveitu og Anda-
kflsárvirkjunar þann 5. september
síðastliðinn lögðu þeir Gunnar Sig-
urðsson og Þorgeir Jósefsson fram
þá tillögu að fenginn yrði utanað-
komandi aðili til þess að skoða
reksmr Akranesveitu og Andakfls-
Borgarbyggð:
Brunavamir í
Grunnskólum
Á síðasta fundi bæjarráðs
Borgarbyggðar var samþykkt að
verja hluta af því fjármagni sem
sveitarfélagið fékk í ágóðahlut frá
Eignarhaldsfélagi Brunabótafé-
lags Islands til að efla branavarn-
ir í grunnskólum sveitarfélagsins.
Bæjarverkfræðingi og slökkvi-
liðsstjóra var falið að koma með
tillögur þar um. GE
/
Utafkeyrsla
við Rif
KJukkan 22.10 þriðjudaginn 5
sept s.l var lögreglunni í Olafsvík
tilkynnt um umferðarslys við Ut-
nesveg skammt frá af-
leggjaranum að Rifsflugvelli.
Einnig var óskað eftir lækni og
sjúkrabifreið á slysstaðinn.
Okumaður bifreiðar sem ekið
hafði verið í átt að Hellissandi
hafði misst stjórn á bifreiðinni og
farið útaf veginuni á miklum
hraða. Bifreiðin staðnæmdist
rúma hundrað metra frá þeim
stað sem hún fór útaf. Mikil
mildi þótti að bifreiðin skildi ekki
hafa oltið en miklar skemmdir
vora á bæði fram- og afturenda.
Tveir menn voru í bílnum og
vora þeir nokkuð slasaðir. Þeir
vora fluttir á heilsugæslrma í O-
lafsvík og síðan á Landsspítalann
í Reykjavík. Meiðsli þeirra voru
ekki alvarleg og fengu þeir að
fara heim dagin eftir. Bifreiðin
er mikið skemmd. IH
árvirkjunar í samvinnu með fram-
kvæmdastjóra og endurskoðanda
með nokkur atriði í huga. Til dæm-
is hvort að markmiðin með stofnun
Akranesveitu hefðu náðst, hvort
eðlilegt væri að sameina tæknideild
Akranesveitu og starf byggingafull-
trúa og loks hvort eðlilegt væri að
halda áffarn rekstri áhaldahúss bæj-
arins í núverandi formi og ef ekki,
hvaða form kæmu tíl greina. Auk
þessa töldu þeir að nauðsynlegt
væri að hafa framtíðarfyrirkomulag
Akranesveitu og Andakílsárvirkjun-
ar í huga. Afgreiðslu tillögunnar var
frestað.
Gunnar segir fyrirtækið vera
orðið það gamalt, að kominn sé
tími til að endurskoða það. “Stórt
stökk var tekið þegar hitaveitan,
rafveitan, tæknideildin og vatns-
veitan vora sameinaðar í áhaldahús,
eitt fyrirtæki og okkur finnst eðli-
legt að skoðað sé hvað hafi tekist
vel og hvað mætti betur fara, auk
þess sem þyrfri að skoða samskiptí
veitunnar og bæjarins. Allar lækk-
anir á taxta heita vatnsins hafa
gengið effir auk þess sem mun
hraðar hefur gengið að greiða nið-
ur lán, bæði hjá Akranesveitu og
hitaveitunni, heldur en tillögur
gerðu ráð fyrir í upphafi þannig að
allt ætti að vera í góðum gír. Það er
engu að síður alltaf ástæða til þess
að skoða málin á einhverra ára
ffestí. Nú er fyrirtækið orðið um
sex ára gamalt svoleiðis að það er
alveg komin tími á að skoða þetta.”
SÓK
Samningur við Manitobaháskóla:
Tveir til Kanada
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
hefur gert samning um nemenda-
skipti við Manitobaháskóla í
Winnipeg. Tveir nemar á 3. ári,
þeir Olafur Einarsson og Einar O-
lafsson, stunda nú nám sitt við við-
skiptadeild Manitobaháskóla í
Winnipeg.
Samningurinn gerir ráð fyrir að
tveir nemar geti árlega farið til
Kanada frá Bifröst og að Við-
skiptaháskólinn taki sömuleiðis á
móti tveimur kanadískum nemum.
Alls tekur Manitobaháskóli við
fjórum íslenskum nemendum ár
hvert, tveimur ffá Bifröst og
tveimur frá Háskóla Islands.
GE
Loksins, loksins!
Fyrsta æfing Freyjukórsins verður í Valfelli
20. sept. n.k. kl. 20:30
Vetrarstarfið verður kynnt, m.a. fyrirhuguð
utanlandsferð 2002. Inntaka nýrra félaga verður
út september og eru þeir hjartanlega velkomnir.
Hittumst í leiftrandi fjöri.
Nánari upplýsingar eru veittar í símum
437-0025 og 437-2234
Stjórnin
Samningur við Landsteina
og Navision Software
Landsteinar ísland hf. og Navision
Software Island ehf. styrkja Viðskipta-
háskólann á Bifföst með alhliða upp-
lýsingakerfi í Navision til daglegs
reksturs og kennslu.
Viðskiptaháskólinn á Bifföst hefur
tekið í notkun upplýsingakerfið
Navision Financials sem er útbreidd-
asti viðskiptahugbúnaður hér á landi.
Um er að ræða heildarlausn til daglegs
reksturs Viðskiptaháskólans, ásamt
kerfi sem notað verður til kennslu
nemenda. Landsteinar Island hf. hafa
séð um uppsetningu og aðlaganir
kerfisins á Bifföst ásamt því að annast
þjálfun notenda. Landsteinar Island
hf. koma einnig til með að þjónusta
skólann með kerfið í framtíðinni.
Bylting hefur orðið í upplýsingaflæði í
Viðsldptaháskólanum á Bifröst með
tilkomu Navision Finandals við rekst-
ur skólans. Meðal þess sem kerfið
heldur utan um er nemendaskráning,
einkunnir nemenda og útreikningur
þeirra, rekstur stúdentagarða sem og
daglegur rekstur skólans. Skólinn er
beintengdur með bankalínu við fjár-
málastofhanir í Borgamesi sem auð-
veldar mjög öll samskipti á því sviði.
Navision Soffware Island ehf.
styrkti Viðskiptaháskólann á Bifröst
með kennslukerfi og handbókum sem
notað verður til kennslu. Kerfið er
uppsett á fartölvum nemenda og tengt
við miðlæga gagnagrunna skólans. Að
mati forráðamanna Viðsldptaháskól-
ans á Bifröst er það eðlileg þróun í við-
sldptaháskóla, sem einsetur sér að
veita nemendum sínum nútímalega
þekkingu, að nemendur séu þjálfaðir í
notkun og meðferð þess upplýsinga-
kerfis sem hefur hvað mesta út-
breiðslu á markaðnum.
(fréttatilkymiing)
IVið stelpurnar í S.S. ætlum að senda þér smá
afmæliskveðju. Þú stendur á tímamótum og okkur
langar að benda þér á að núna er fyrst lífið að byrja.
Þú mátt ekki láta hugfallast þó að hánun fari fækkandi,
kvenhylbn þverrandi og þol á ýmsum sviðum
1 minnkandi.
| Þín einka S.S. hefur þó síður en svo kvartað en þó hafa
| komið upp erfiðar stundir og höfum við þá í sameiningu
s krufið málin og miðlað af okkar reynslu. Við höfum
I staðið þétt saman í yfir 20 ár og munum gera það áfram.
Við óskum ykkur ahs hins besta í framtíðinni.
KÆR AFMÆLISKVEÐJAfrá syngjandi Svölum
lögg. fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
Nýtt á söluskrá
Sæunnargata 8, Borgarnesi
Einbýlishús á 2 hæðum 157 ferm. Getur selst sem
tvær íbúðir, (efri og neðri hæð). Á effi hæð er
parketlögð stofa, 2 svefnherb. dúklögð, eldhús með
! nýlegri ljósri innréttingu, baðherb. flísalagt, dúklögð
| forstofa. Á neðri hæð er eitt svefnherb., stofa eldhús,
I baðherb. og geymsla.
Verð: kr. 9.900.000 ef selt í einu lagi annars efri hœð
? 6.500.000 og neðri hœð 3.400.000.
Hrafnaklettur 2, Borgarnesi
íbúð á 3. hæð, 59 ferm. Stofa teppalögð en hol,
svefnherb., eldhús og baðherb. dúklagt. Sér geymsla
í kjallara og sameiginleg geymsla og þvottahús í
kjallara.
Verð: kr. 5.500.000