Skessuhorn


Skessuhorn - 14.09.2000, Page 12

Skessuhorn - 14.09.2000, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 mmmmmmmmmmmmmm jóðfegt íjom Þú skalt ekki stela ríkinu er illa við samkeppni Heilir og sælir lesendur góðir til sjávar og sveita Allt frá því fomir biskupar fundu upp tíundina, skömmu eftir kristni- töku, hefur það þótt góður og þjóðlegur siður að taka með valdi fé og fjármuni af fólki. Er þetta gert til þess að geta aðstoðað þetta sama fólk í gegnum þær þrengingar sem fjárupptakan óhjákvæmilega veldur. Nú kann einhverjum að þykja þetta einkennilegur rökstuðningur en stað- reyndin er sú að aðgerð þessi er atvinnuskapandi. Með þessu fyrirkomulagi verður til fjöldi starfa við innheimtu og eít- irlit. Með því að auka enn á innheimmna gefst svo tækifæri til að búa til fullt af nýjum störfrun til að styrkja valdhafana í sessi og þjóna áhugamál- um þeirra. Einfaldir menn kynnu að halda að skattar felist einfaldlega í því að menn greiði hluta tekna sinna í sameiginlegan sjóð. Það er rétt svo langt sem það nær, en málið er miklu flóknara. Auk tekjuskatts greiðum við líka útsvar og sóknargjöld, því sveitarfélög og kirkja þurfa að fá sitt. Þá er vinnuveitendum gert að greiða svokallað tryggingagjald fyrir launþega sína og kemur það hvergi ffarn á launaseðlum. Er það gert í blekking- arskyni til að fólki blöskri síður ffádráttarliðimir á launaseðlunum. Þannig fær launþeginn innan við helming af því sem vinnuveitandinn pungar út fyrir þjónustu hans. Þeim sem ofbýður sú fjárpynd era beðn- ! ir um að halda sér fast meðan þeir lesa áffam. A allt sem við kaupum er lagður himinhár virðisaukaskattur og nær ! ríkið þannig til sín fimmtungi þess sem launþegin þó heldur effir. Hlut- i fallið er þó miklu hærra því ef varan er innflutt hefur áður verið lagt á ! hana vörugjald og síðan tollur. Tollur er ekki bara lagður á vöruna sjálfa, i heldur líka vörugjaldið. Virðisaukaskatturinn sem fyrr var nefndur er ! svo lagður á vöruna, vöragjaldið og tollinn. Þannig greiðum við ekki ; bara skatta, heldur líka skattaskatta og jafhvel skattaskattaskatta. i Enn meira krækir ríkið þó í með því að skilgreina fólksflutninga sem j munað og það hér í stjálbýlasta landi Evrópu. Hlutur erlendra olíufursta i og flutningskostnaður er aðeins bensíndropi í eldhafið þegar horft er til • skattlagningar á dropann dýra. Noti biffeiðar ódýrari orkugjafa leggst á j's þær þungaskattur og ofan á þetta allt eru innheimt bifreiðagjöld af öllum biffeiðum hvort hildur þeim er ekið eður ei. Svo eru allir skyldaðir til að kaupa rándýrar biffeiðatryggingar sem aðallega fara í greiðslu allskon- ar skatta sem lagðir eru á tryggingarfélögin. Ef okkur helst á einhverju fé þrátt fyrir skattpynd og leggjum það til hliðar leggst á okkur fjármagnstekjuskattur. Ef launin okkar eftír skatt duga til að eignast fasteign (og greiða af ; henni virðisaukaskatt) þá erum við það sem eftír er ævinnar látin borga af henni eignarskatt, og þegar við lokst drepumst er innheimtur af henni erfðafjárskattur. Takist okkur aftur á móti ekki að ná endum saman, en verðum að brúa bilið með lántökum, þá leggjast á okkur enn meiri opinber gjöld, einkum stimpilgjöld og vanskilagjöld. Við erum öll skattlögð hvort sem við erum tíu ára að kaupa bland í poka eða stóreignafólk að fjárfesta fyrir milljónir. Allir borga. Allt frá því á 12. öld þegar biskup nokkur á Hóltim, maður sá er mest skemmdarverk hefur unnið á þjóðmenningunni, bannaði Islendingum iðkun dansa og skemmtana hefur ríkisvaldinu verið sérlega lagið að leggja í einelti þá sem ganga um gleðinnar dyr. Vilji menn gera sér glaðan dag á almannafæri eru þeir krafðir um skemmtanaskatt, áfengiskjald, tappagjald og meira að segja gúmmígald, vilji menn ekki borga meðlag. Ef mömmum óar við útgjöldum þessum og ákveða að vera heima og horfa á sjónvarpið eru þeir rukkaðir um af- notagjald. Það er reyndar innheimt hvort sem menn horfa eður ei. Ef við bugumst undan álaginu og leggjumst útaf veik greiðum við inn- ritunargjöld, þjónustugjöld og gjald fyrir vottorð. Það er auðvitað ljóst af þessari upptalningu að ríkið innheimtir í raun miklu meira en 100% af launum manna í skatta. Þetta gæti útlending- um þótt skrýtíð en staðreyndin er sú að að skattsvik eru höfuðíþrótt þjóð- arinnar og eiga Islendingar heimset á því sviði, a.m.k. miðað við höfða- tölu. Engum þykir ámæhsvert að ríkustu menn landsins gefi upp 30.000 kr. mánaðalaun því allir vita að þegar upp er staðið nær ríkið alltaf sínu. Það hefur mikilvægum skyldum að sinna og þarfnast fjár. Matarboð fyr- ir erlenda fjöldamorðingja, kristnihátíðarsukk og klæðskerasniðið gull- klósett undir óæðri enda dómsmálaráðherrans kosta sitt. Þess vegna er málið bara að vera á undan bannsettum skattsvikurum og hækka skattana hraðar en þeir ná að stinga undan. Svo segja vitrir menn að landnámsmenn þessa lands hafi fltiið Noreg undan skattpynd Haraldar hárfagra. Verið kært kvödd á þriðja Þórsdegi í Tvímánuði. Bjarki Már KaHsson jálfskipaður þjóðbáttafrieiímgur Að opinbera aumingjaskap sinn Þar sem Skessuhom er blað Vesmrlands, og þessar hugleiðingar varða hluti sem eru á svæði þess, er sjálfgefið að það birti þennan pistil. Svo bar til fyrir skömmu að bréf var sent til allra sem stundað höfðu nám að Bifröst, hvort það var sent til eldri Samvinnuskólamanna er ekki vitað. Um svipað leyti kom frétt í fjölmiðl- um og loks heilsíðuauglýsing í Morgunblaðinu. Og til hvers var nú öll þessi fyrirhöfh? Jú, það var verið að tilkynna að Samvinnuháskólinn að Bifröst væri ekki lengur samvinnuháskóli heldur héti hann nú Viðskiptaháskólinn á Bifröst. I öllu umróti nútímans þar sem enginn veit hvaða fyrirtæki verða sameinuð á morgun og undir hvaða nafni, ætti ekki að skipta máli þótt lítill skóli uppí Norðurárdal breyti nafhi sínu. Samt olli þessi frétt geðsveiflum hjá mörgum sem stunduðu nám við Samvinnuskólann, skildu þeir ekki nauðsyn þess að kasta fyrir róða nafhi sem ekki var vitað annað en allir virtu. Astæðan var að nokkru skýrð með því sem haft var eftir rektor háskólans og þótti ekki öllum fullnægj- andi skýring. Skýringin var einfaldlega sú að nafh skólans sem hemendur höfðu verið stoltir af var farið að há skólanum og nemendum hans. Hvemig mátti það vera að nafh skóla sem borin var virð- ing fyrir og talið var fólki til tekna þegar það kom út í atvinnulífið væri allt í einu orðið að fótakefli? Að mörgum læddist sá grunur að tilgangur nafhaskiptanna væri að aðlagast hugsunarhætti samtímans sem ekki öllum hugnast, þeim hugs- unarhætti sem vill ekkert heyra um samhjálp ein- staklinga og samvinnu heldur skuli hver og einn ryðjast áffarn sem best hann má. Hugsunar- hætti þess heims sem metur gengi hlutabréfa öllu ofar og verðbréfavísitalan er guðspjall dags- ins. Hugsunarhætti sem telur að verðmætin skapist í harðviðarhöllum verðbréfasalanna, en þeir sem hafa talið sig skapa verðmæti og byggja grundvöll þjóðfélagsins með störfum til sjávar og sveita, séu í raun byrði. Nú eru eitt hundrað og átján ár síðan sam- vinnuhreyfingin hóf að vaxa norður í Þingeyjar- sýslu og átti eftir að valda straumhvörfum í landinu og skipta sköpum fyrir almenn- ing. Hún var stofn- uð til að brjóta á bak aftur ofurvald og ein- okun kaupmanna sem á þeim tíma skömmt- uðu fólki kjör að eigin geðþótta. Þetta tókst að verulegu leyti en um leið eignaðist samvinnuhreyfíngin hatramma andstæðinga. Þá eins og nú voru það ýmsir sem vildu baka sína köku sjálfir og sitja einir að henni og hirtu ekki um þá sem hjá sátu og enga áttu. Þá og frameft- ir þessari öld var það samt sómi hvers manns að sinna náunganum, félagsleg hjálp, nám án tdllits til eigna, læknisaðstoð án tillits til tekna, sam- vinna og jafnaðarmennska átti sér hljómgrunn og marga góða talsmenn. A síðari áram virðast þessi gildi vera að gefa efrir og meiri harka að færast í leikinn. Nú á að vekja kostnaðarvitund sjúklinga og öryrkja svo þeir sjái í krónum og auram hver byrði þeir era. Kjöt og fisk skal selja á því raunverði sem baug- ar landsins ákveða og ekki má aðstoða þá sem minna mega sín við öflun nauðþurfta heldur skal öll félagsleg aðstoð út í hafsauga. Opinberir að- ilar eða félagslegir mega ekki standa í neinum rekstri, það heitir óheiðarleg samkeppni, baug- arnir telja sig eina færa um að höndla, þeirra er mátturinn og kvótinn. Því liggur það ljóst fyrir að nafn Samvinnu- skólans varð að breytast, það var orðið til trafala í frumskógi einstaklingsframtaksins. Sam- vinnuhreyfingin er að vísu fallin fyrir rúmum áratug og þau kaupfélög sem eftir standa orðin háeff. Samt er þetta meinlausa forskeyti sam- til trafala. Það lyktar af sveitamennsku, það teng- ist félagshyggju, jafnvel Framsóknarflokknum, sem þó hefur undanfarið af miklum dugnaði hrist af sér slyðraorðið. Margir í atvinnulífinu sögðu að þeir tækju nemendur frá Sam- vinnuskólanum fram yfir aðra. Þeir hefðu til að bera góða við- skiptamenntun en ekki síður væra þeir góðir í mannlegum samskiptum. A þann þátt var alltaf lögð mikil áhersla í Sam- vinnuskólanum og margir töldu það einna drýgst veganesti þaðan. Samvinnuskólinn hefur alltaf borið gæfu til að laga sig að samtímanum og hefur því hald- ið velli. Einn þáttur þess var þegar skólinn var gerður að háskóla þá sýndu forystumenn skólans enn að þeir kynnu að halda í við tímann. En nöfn era einkenni og í öldurótinu ætti nafh eins skóla að vera sem ljósbauja. Auðvitað læra núverandi nemendur að Bifföst á verðbréfin og standa sig áreiðanlega ekki síður en aðrir þar. En fyrir þau okkar sem teljumst félagslega sinn- uð er uppgjöf að henda góðum hlut. Við trúum því ekki að peningahyggjan eigi eftir að kafsigla félagshyggju. Við trúum að önnur verðmæti eigi efrir að sanna gildi sitt og þykjumst sjá þess merki að svo muni verða. Það er í tísku að segja með fyrirlitningu að þeir sem ekki kokgleypa ó- mengað markaðsþjóðfélag séu gamaldags og tröll aftan úr fomeskju . Þá það, þá erum við gamaldags tröll en eram hreykin af. Tröllin björguðu líka mörgum manninum. Eitt mesta samvinnuvígið er fallið. Innan fárra ára man enginn lengur hvað eða hvar Sam- vinnuháskólinn var. Forráðamenn skólans hafa sýnt heigulskap með nafhabreytingunni, látið óttann við dálitla sérstöðu svínbeygja sig. Eða hafa þeir kastað trúnni, gengið í björg og sitja þar óvinafagnað. Guðmundur R. Jóhannsson útskrifaður úr Samv 'mnuskólanum að Bifi-öst 1961 Agúst Jónatansson útskrifaður úir Sanwinnuskólanum að Bifröst 1984 Agúst Jónatansson Heygarbsharnib Dr. Strangelove Á Morgunblaðsvefnum var eftirfarandi frétt í vikunni: “Sjaldgæf og illskiljanleg teg- und heilaskemmda getur valdið því að sjúklingarnir missi stjóm á öðram handlegg sínum, að sögn ítalskra vísindamanna. Sjúkdóm- urinn er kallaður „Dr. Strang- elove-eínkennin" eftir persón- unni sem Peter Sellers heitinn túlkaði svo eftirminnilega. Vegna þess að sjúklingamir hafa ekki stjóm á annarri hendi sinni getur oft farið svo að höndin ráðist gegn hinni hendinni líkt og gerð- ist oft og tíðum hjá dr. Strang- elove í myndinni.” Vísindamenn Heygarðshoms- ins hafa í framhaldinu komist að því að þessi sjúkdómur hefur ný- Iega gert vart við sig hér á landi. Það var í leik IA og FH í undan- úrslitum bikarkeppninnar þegar ónefndur leikmaður IA missti stjórn á hendinni og slæmdi henni í boltann. Dómarinn tók hinsvegar ekkert mark á læknis- vottorði og dæmdi vítaspyrnu. Nú velta læknar á Akranesi því fyrir sér hvort ekki sé möguleiki að færa Dr. Stragelove-einkennin niður í fætur sóknarmannanna en talið er að það myndi geta lagað markatöluna umtalsvert. Heimatilbúnir kitlusmokkar Ungur maður kom inn í versl- un eina á Akranesi og skoðaði í hillurnar, greinilega í leit að ein- hverjum ákveðnum hlut. Af- greiðslumaðurinn, fullorðinn maður, sneri sér að honum og spurði hvort hann gæti aðstoðað. “Já mig vantar smokka,” sagði drengurinn. “Þeir era hér,” sagði afgreiðslumaðurinn og teygði sig í rekka á einum veggnum. “Nei, ekki svona venjulega,” segir trngi maðurinn. “Mig vantar svona kitlusmokka með svona tökkum út úr.” Afgreiðslumaðurinn klór- ar sér í höfðinu ófurlítla stund og segir svo. “Þetta er ekkert mál, þú kaupir bara tvo og svo skal ég selja þér rúsínur til að setja á milli.” Alpha bylgjur Maður, fullur sjálfstrausts, gengur inn á bar ög sest niður við hliðina á verulega huggulegri konu. Hann lítur snöggt á hana og horfir síðan kæraleysislega á armbandsúrið sitt dáhtla stund. Konan tekur eftír þessu og spyr hann: „Er stúlkan of sein á stefnumót með þér?“. „Nei“, svarar maðurinn, „ég er nýbúinn að kaupa afar hátæknivætt arm- bandsúr og var að prófa það“. Forvitni konunnar var vakin. „Hátæknivætt armbandsúr - hvað er svona merkilegt við úrið?“ spyr hún. Hann svarar: „Það notar Alpha bylgjur eða hugsanaflutn- ing til þess að segja mér ýmislegt um fólk“. „Virkilega? Hvað var það að segja“, spyr konan ennþá áhuga- samari. „Ehh, jú - það sagði mér að þú værir nærbuxnalaus....“ svarar maðurinn. Konan kímir og segir „Þá hlýt- ur það að vera bilað því ég er nefnilega í nærbuxum!“ Maður- inn slær með fingrinum á glerið á úrinu og segir“: Urið blýtur að vera að flýta sér aðeins ..."

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.