Skessuhorn - 12.10.2000, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
ÁkiawnuK.
Uppskeruhátíð Skallagríms
Uppskeruhátíð yngri flokka Knattspyrnu-
deildar Skallagríms var haldin í Félagsmiðstöð-
inni Óðali fyrir skömmu. Þar voru veitt verðlaun
fyrir árangur í hverjum flokki.
Efrirtaldir hlum viðurkenningar:
8. flokkur
Besta mæting: Birkir Már Gunnarsson
Mestu framfarir: Þorkell Már Einarsson
7. flokkur - yngri
Besta nueting: Birgir Þór Sverrisson
Mestu framfarir: Jóhann Snæbjöm Traustason
7. flokkur - eldri
Besta mæting: Styrmir Már Olafsson
Mestu framfarir: Viktor Inn Jakobsson
6. Flokkur
Haustmótsmeistari
1. Skúli Guðmundsson
2. Svavar Abraham Jónsson
3. Símon Aðalsteinsson
Yngri
Besta mæting: Sigurður Ami Júlíusson
Mestu framfarir: Sigurður Sigurðsson
Eldri
Besta mæting: Skúli Guðmundsson
Mestu framfarir: Jón Ingi Þórðarson
5. flokkur
Haustmótsmeistari
1. Sölvi G. Gylfason
2. Jón Óskar Óskarsson
3. Alfheiður Sverrisdóttir
Yngri:
Besta mæting: Ingi Bjöm Róbertsson
Mestu framfarir: Friðrik Hrafh Pálsson
Eldri
Besta mæting: Sölvi G. Gylfason
Mestu framfarir: Davíð Om Hákonarson
4. flokkur
Besti leikmaður: Bjami H. Kristmarsson
Yngri
Besta mæting: Guðmundur L. Hallgrímsson
Mestu framfarir: Magnús Elvar Jónsson
Eldri
Besta mæting: Svanberg Rúnarsson
Mestu jfamfarir: Guðmundur Þorbjömsson
Kvennaflokkur
Besti leikmaður: Inga Tinna Sigurðardóttir
Besta mæting: Kristín Halla Lárusdóttir
Mestu framfarir: Þórhildur K Bachmann
3. Flokkur
Besta mæting: Guðni Albert Kristjánsson
Mestu framfarir: Ingólfur H. Valgeirsson
Besti leikmaður: Helgi Pétur Magnússon
Markakóngur: Birgir Þór Amarson (3mörk)
Helgi P. Magnússon (3 mörk)
Slysavamadagur á Akranesi
Á morgun, föstudaginn 13. októ-
ber, mun Heilsueflingamefhd Akra-
ness standa fyrir slysavarnardegi
undir yfirskrifrinni “Fækkum slysum
á Akranesi og í nágrenni”. Þessu til
áréttingar verður sendur bæklingur í
öll hús í bænum og nágrannasveitar-
félögum. Laugardaginn 14. októ-
ber verður svo sýning í Slökkvistöð-
inni á Akranesi, en 13 stofrianir og
félög taka þátt í þeirri sýningu. Þau
em efrirtalin: Akranesbær, Heilsu-
gæslustöð og Sjúkrahús Akraness,
Rauða kross deildin á Akranesi,
Slökkvilið Akraness, Lögreglan á
Akranesi, Björgunarfélag Akraness,
Slysavamardeild kvenna, VIS, Sjóvá-
Almennar, Tryggingamiðstöðin,
Eldvöm, Akranesveita og 4x4 klúbb-
urinn. Tilgangur dagsins er að vekja
athygli á mikilvægi slysavama vítt og
breitt í samfélaginu, enda er talið að
koma megi í veg fyrir allt að helming
slysa og gera skaðann minni með ár-
vekni, ffæðslu um fyrirbyggjandi að-
gerðir og skyndhjálp.
Á sýningunni í Slökkvistöðinni
ættu albr að finna eitthvað við sitt
hæfi. Kynningar verða á slysatíðni á
Akranesi, orsökum slysa, slysum
barna og unglinga og slysum aldr-
aðra. Akranesbær mun opna heima-
síðu þar sem fólk getur komið á
ff amfæri upplýsingum um slysagildr-
ur í bæjarfélaginu. Tækin sem em til
sýnis vekja sjálfsagt athygli margra.
Gefinn verður kostur á að skoða
slökkviliðsbíla, sjúkra-, klippu- og
björgunarsveitarbíla, björgunarbát
og fjallabíl. Auk þessa verður veltibíll
á staðnum, en hann þjónar því hlut-
verki að leyfa fólki að upplifa mikil-
vægi öryggisbelta og þá tilfinningu
að lenda í bílveltu. Bamabílstólar,
reykskynjarar og slökkvitæki verða
einnig til sýnis. Ekki er þó allt upp-
talið enn, því boðið verður upp á
ffæðslu urn öryggi bama í bíl og
GPS tæki auk þess sem hægt verður
að prófa svokölluð ölvunargleraugu.
Gleraugun em tiltölulega ný af nál-
inni, en þau gera það að verkum að
sjón notandans brenglast líkt og ger-
ist þegar áfengis hefur verið neytt.
Yngri kynslóðinni ætti ekki að leiðast
því Hrakfallabálkurinn verður á
ferðinni, þeim og öðrum til skemmt-
unar og boðið verður upp á verð-
launagetraun. Að lokum má geta
þess að hægt verður að skrá sig á
námskeið bæði í skyndihjálp og
fjallaferðum á laugardeginum, en
námskeiðin verða haldin síðar í
haust.
Skólarnir á Akranesi munu taka
virkan þátt í því verkefrii að fækka
slysum í bænum og nágrenni hans. I
Grandaskóla og Brekkubæjarskóla
verða unnin verkefni sem tengjast
slysum. Form þeirra er nokkuð
ffjálslegt, en það má vera allt ffá því
að teikna mynd sem tengist slysi upp
í að fara út og gera nokkurs konar
könnun, athuga hversu margir nota
bílbelti, hversu margir gefa stefriuljós
og þar ffam eftir götunum. Ragn-
heiður Davíðsdóttir frá Vátrygg-
ingafélagi Islands, mun halda fyrir-
lestur um umferðarslys í 10. bekk í
báðum grunnskólunum á Akranesi
sem og í Heiðarskóla á morgun. Fyr-
irlestrar þessir hafa hlotið mikið lof
og í ljós hefrir komið að notkun ör-
yggisbelta stóreykst hjá þeim ung-
mennum sem á þá hlýða.
Það var Heilsueflingamefrid sem
átti hugmyndina að þessum degi, en
föstudagurinn 13. hefrir verið notað-
ur sem slysavamadagur í Finnlandi í
mörg ár. Formaður Heilsueflingar-
nefridar, Reynir Þorsteinsson, segir
að hægt sé að nýta þennan dag til
þess að vekja athygli á þeim slysa-
gildmm sem tíðastar era á þeim árs-
tíma sem daginn ber upp á, en fösm-
dagurinn 13. kemur á dagatalið einu
sinni til tvisvar á ári. Hann leggur á-
herslu á það að slys séu ekki bara ó-
heppni, enda em slys offar en ekki
mannleg mistök. Skilgreining slysa
em sú að það sé þegar hlutirnir fari
ekki eins og við ætluðum og það hef-
ur á einhvern hátt neikvæðar afleið-
ingar í för með sér. Það er skyndileg-
ur atburður sem ekki er áformaður
og hugsanlega veldur tjóni, líkam-
legum áverkum eða þaðan af verra.
Reynir hefur á undanförnum
árum komist að mörgu forvitnilegu
um tölffæði slysa í gegnum starf sitt
sem læknir. Hann hefur safriað upp-
lýsingunum saman og verða þær
kynntar á áðurnefridri sýningu í
Slökkvistöðinni. Meðal þess sem þar
kemur ffam er að slysum á Akranesi
hefur fækkað talsvert á undanfömum
árum, eða réttara sagt komum á
slysadeild hefur fækkað um 30% ffá
því fyrir tíu árum. “Það er auðvitað
varhugavert að áætla að slysum hafi
fækkað þrátt fyrir að komum á slysa-
deildina hafi fækkað talsvert” segir
Reynir og bætir því við að alvarleg-
um slysum hafi ekki fækkað. Athygl-
isvert er að komum barna á aldrinum
0-4 ára hefur einnig fækkað gífiir-
lega. Fyrir tíu áram kom þriðja hvert
bam á Akranesi á slysadeildina, en nú
hefur þeim fækkað í eitt af hverjum
tíu. “Við viljum þakka þetta því for-
vamarstarfi sem unnið hefur verið í
ungbamaeftirliti. Ljósmæður byrja
strax við fyrstu heimsókn að hamra á
því hverjar helstu slysagildmrnar
séu, hvers beri helst að gæta og
hvemig hægt er að koma í veg fyrir
slys. Það hefur greinilega skilað sér.”
Slys á heimilum era eðlilega al-
gengust í yngsta aldursflokknum, en
helstu orsakir slysa em æði misjafnar
eftir því hvaða aldurshópur á í hlut.
5-9 ára böm slasast gjaman í leik-
skólum eða skólum og íþróttaslys em
orðin algeng hjá 10-14 ára bömum.
Þegar litið er á 15-19 ára aldurshóp-
inn em umferðarslysin aftur á móti
algengust en sá hópur er einmitt
langfjölmennasmr ineð tilliti til
komu á slysadeild. Einnig má nefria
að 50% þeirra sem koma á slysadeild
em 24 ára og yngri. Slys í heimahús-
um em einna algengust í heildina, en
um 250 manns koma á slysadeildina
á ári hverju vegna slysa í heimahús-
um. Oftast slasast fólk á heimili,
vinnustað eða utanhúss og högg af
hlut, hras eða fall em algengustu or-
sakir slysa. Nýjustu tölur era ffá ár-
inu 1998. Að sögn Reynis em nýj-
ustu slysagildmmar hlaupahjól og
línuskautar.
Það er von aðstandenda slysa-
varnadagsins að Akurnesingar og
naersveitungar nýti sér þessa daga til
að efla vimeskju sína um slysavamir.
Heilsueflingarnefrid vonast til að
hugmyndin um fösmdaginn 13.
verði áffam nomð til slysavarna.
Skessuhom hvemr Skagamenn sem
og aðra Vestlendinga til þess að
koma því til leiðar með því að fjöl-
menna á sýninguna í Slökkvistöð-
Akraneskaupstadur
ÚTBOÐ
Akraneskaupstaður óskar eflir tilboðum í
upplýsingattjöf til ferðamanna. Um er að
ræða dremngu á efhi (bæklingum) íirá
Akraneskaupstað, fyrirtækjum, stofnunum
og einstaldingum sem þjóna innlendum og
erlendum feroamönnmn með gistingu, mat,
afyreyingu og samgöngum á Akranesi og til
og frá bænum. Ennfremur upplýsingar til
ferðamanna er varða áhugaverða staoi á og
við Akranes og möguleika á samsetningu
feroa um Akranes.
Gert er ráð fyrir að upplýsingamar verði
aðgengilegar a.m.k. á aigreiðslutíma verslana
og að á sama tíma verði viðkomandi til staðar
til að veita upplýsingar. Samstarf er \tið
Upplýsingamiðstöð Vesturlands í Borgamesi
um að veita upplýsingar á landsvísu.
Vidkomandi þarf að hafa staðgóða þekkingu
á fefðaþjónustu á Akranesi, staðháttum, sögu
og menningarlífi.
Gert er ráð fyrir samningi á milli aðila til
tveggja ára írá 1. desember 2000. Tilboðinn
skm skilað til undirritaðs fyrir 24. október
2000 að StiUholti 16-18, Akranesi, ásamt
nauðsynlegum upplýsingum um tilboðsgjafa
og tílboðsupphæð.
Bæjarritarinn
Akranesi
Heygarb&harnið
Bréftil
Tryggingastoíríunar
Ég er að skrifa hér til að út-
skýra effirfarandi: I reit #3 á
slysaskýrslunni setti ég „Reyndi
að framkvæma verkið einn“ sem
ástæðu slyss. I bréfi ykkar báðuð
þið um nánari skýringar á þessu
og vona ég að eftirfarandi bréf
veiti nánari upplýsingar.
Ég er múrari að atvinnu. Dag-
inn sem slysið átti sér stað var ég
að vinna á þaki 3ja hæða nýbygg-
ingar. Eftir að hafa lokið verki
mínu á þakinu sá ég að um 150
kíló af múrsteinum gengu af.
Frekar en að bera múrsteinana
niður 3 hæðir ákvað ég að láta þá
síga niður til jarðar í hjólbömm
og til þess ætlaði ég að nota talíu
sem fest var utan á húsið á 3. hæð.
Ég gekk niður og festi reipið sem
tengt var í talíuna tryggilega við
jörðina, þarnæst fór ég upp á þak
aftur og batt reipið í hjólbörarnar
sem ég svo ýtti fram af brúninni.
Þar næst fyllti ég hjólbörarnar
með múrsteinunum. Að þessu
loknu fór ég aítur niður á jörðu,
Greip fast í reipið og losaði það.
Eins og sjá má í reit #2 á slysa-
skýrslu er ég 85 kíló að þ\mgd.
Vegna tmdmnar á mjög snöggu
flugtaki láðist mér að sleppa reip-
inu. Það þarf varla að taka fram
að hraði uppferðar rninnar var
gríðarlegur. Um miðja 2. hæð
mætti ég hjólbömnum sem vom
á niðurleið. Þau kynni útskýra
brákaða höfuðkúpu og brotið
viðbein.
Áreksturinn hægði aðeins lítdð
eitt á ferð minni upp á 3. hæð,
sem stöðvaðist þegar hægri hönd
mín rakst á kaf inn í talíuna. Sem
bemr fer tókst mér að halda með-
vimnd og takinu á reipinu þrátt
fyrir mikil meiðsl og gríðarlegan
sársauka. Á sama tíma féllu hjól-
bömrnar á jörðina, og ulm á hlið-
ina sem olli því að múrsteinamir
féllu úr hjólbörunum. Þyngd
hjólböra af þessi tagi er um 20
kíló. Ég vísa aftur til reitar #2.
Eðli málsins samkvæmt hóf ég
hraða niðurleið mína um leið og
þetta hatði gerst. Um miðja 2.
hæð rakst ég aftur á hjólböramar
sem í þetta sinn vom á uppleið.
Sá árekstur skýrir brákaða ökkla
og skrámur og slcurði á neðri
hluta líkamans.
Við þetta hægðist lítið eitt á
niðurleið minni og verður það að
teljast ástæða þess að áverkar við
fallið á múrsteinahrúguna hafi
ekki orðið alvarlegri en brotinn
sköflungur og 2 fingur brotnuðu.
Mér þykir leitt að tilkynna það
að þar sem ég lá á múrsteinshrúg-
unni, ófær um að hreyfa mig
vegna áverka og sársauka að ég
missti meðvitund og sleppti reip-
inu. Tómar hjólbörurnar, sem
em þyngri en reipið, komu aftur
niður og lentu á mér þar sem ég
lá, og bmtu þar báða lærleggi.
Ég vona að þetta útskýri betur
liváð' gerðist, og skráning mín í
slysaskýrslu „Reyndi að fram-
kvæma verldð einn“ varpi ljósi á
málið.
Virðingmfyllst, Eymundur