Skessuhorn - 26.10.2000, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 26. OKTOBER 2000
■.r.Yini.i..
At hann fengi kotbæ
þann hálfan...
Föstudaginn 20. október s.l. var
nýtt húsnæði sýslumanns Snæfell-
inga tekið formlega í notkun við
hátíðlega athöfh. Sólveig Péturs-
dóttir dómsmálaráðherra sagðist í
ávarpi sínu fagna þessum áfanga
þar sem þetta væri fyrsta hús þessa
embættis sem eingöngu væri ætlað
að hýsa starfsemi þess. Ráðherra
hvað það styrkja löggæsluna í land-
inu að búa henni góða aðstöðu.
“Hér er byggt til framtíðar og öll
aðstaða er samkvæmt kröfum tím-
ans.” Þá sagði hún það gleðiefhi
að málum sem lögreglan á Snæ-
fellsnesi fengi til meðferðar hafi
fækkað mikið milli ára s.l. 3 ár.
Sýslumaður Snæfellinga Olafur K
Olafsson rifjaði upp og bar saman
hagi sýslumanna fýrr og nú. “Það
hefur ekki gerst í aldalangri sögu
embættis sýslumanns Snæfellinga
að embættið fái afhent til afhota
húsnæði sem eingöngu er byggt til
að hýsa starfsemi þess. A slíkum
tímamótum er gaman að reyna að
draga upp ofurlitla mynd af þeim
fjölbreytta húsakosti sem embættið
hefur búið við í tímans rás.” Síð-
an vitnaði Olafur í forvera sinn Jón
Espólín sem fékk konungsveitingu
fyrir embættinu haustið 1792.
“Fyrsta verk Jóns Espólín var ekki
að reisa sér þak yfir höfuðið heldur
reisti hann gapastokk á Ingjalds-
hóli.” Síðan lýsti Ólafur húsnæð-
isvandræðum Jóns Espólín og í
niðurlagi þeirra lýsingar segir:
víkurhreppi.” Síðar í ræðu sinni
fjallar Ólafur K Ólafsson um hve
skjalavörslu hljóti að hafa verið á-
Nýja húsnáði sýslumanns Snæfellinga.
“Jón Espólín tók það ráð að kalla
hreppsstjóra sína saman og leitaði
ásjár hjá þeim og bað þá styrkja til
þess að hann fengi kotbæ þann
hálfan, er Selvöllr hét. Var það úr
en þó fékk hann þar húsnæði ekk-
ert, nema kofa einn utan bæjar eðr
skemmu. Þarna bjó Jón Espólín
við þröngan kost og slæma heilsu í
eitt ár fram í fardaga 1796. Fyrir
200 árum var því embætti og
heimili sýslumanns Snæfellinga til
húsa í kofa eður skemmu í Breiða-
fátt við þær aðstæður og embættið
á stöðugum flækingi. Sýslumaður
vitnaði til bréfs sem Páll Melsteð
sýslumaður skrifaði Jóni Sigurðs-
syni í febrúar 1850. “Voru sýslu-
pappírar hér opt og tíðum gyimdir
í hálftunnum og hripum út í hest-
húsi.” Eftir þessa skemmtilegu
upprifjun blessaði séra Gunnar Ei-
ríkur Hauksson húsið. Síðan var
gestum boðið að skoða sig um.
Fjöldi gesta var við vígsluna.
IH.
Tax-free dagar á Akranesi
Tilboð og afsláttur í öllum verslunum
í dag hefjast “Tax-firee” dagar á
Akranesi sem ríflega 50 aðilar í
verslun og þjónustu taka þátt í.
Skaginn er þó ekki orðið firíríki
og skattaparadís eitt sveitarfélaga
á Islandi heldur er hér um að
ræða átak til að vekja athygli á
verslun og þjónustu í bænum.
“Já, við viljum vekja athygli á
verslun og þjónustu á Akranesi,”
sagði Sævar Haukdal, talsmaður
verslunareigenda á Akranesi í sam-
tali við Skessuhorn. “Undanfarið
hefur verið mjög neikvæð umræða
um verslun hérna og því haldið fram
að hún eigi undir högg að sækja í
kjölfar opnunar Hvalfjarðarganga,
og jafnvel látið að því liggja að versl-
un sé að leggjast hér af sem er algjör
firra.” Að sögn Sævars töldu versl-
segir lægri lágmarksupphæð en mið-
að er við í Tax-ffee verslunum al-
mennt. “Margir af þeim sem fara er-
Nýfæddir Vesdendingar
eru boðnir velkomnir í
heiminn um leið og
nýbökuðum foreldrum eru
færðar hamingjuóskir.
20. október kl 05:23-Sveinbam-
Þyngd:3400-Lengd:49 cm. Foreldrar:
Þórdís Helga Benediktsdóttir og Unn-
steinn Oskar Andre'sson, Borgamesi.
Ljósmóðir: Hafdís Riínarsdóttir.
unareigendur á Skaganum ástæðu til
að breyta þessari neikvæðu umræðu
og ætla að gera það með þessum
hætti. “Besta leiðin er að gera eitt-
hvað sem ekki hefur verið gert áður
og við ákváðum að nota þessa “tax-
free” hugmynd og bjóða viðskipta-
vinum okkar vörur á afslætti sem
jafngildir afslættinum þegar fólk
verslar taxffee,” sagði Sævær. Boð-
inn verður 15 % afsláttur við kassa af
flestum vöruflokkum ef verslað er
fýrir 3000 kr. eða meira sem Sævar
lendis í verslunarleiðangra taka þetta
taxfree-dæmi með í reikninginn
þegar þeir meta hvað hlutirnir kosta
og við ætlum að bjóða sama afslátt.
Við vonum að þetta veki athygli og
breyti þessari umræðu sem hefur
verið í gangi,” sagði Sævar Haukdal.
Verslanir á Akranesi verða opnar
til 22 í kvöld og tax-free tilboðin
standa til laugardags sem verður
langur og verslanir þá opnar til kl.
17
KK.
Páll Pétursson og AuSur Grímsdóttir meS gœSaverSlaun Coldwater.
Mynd IH
Gæðaverðlaun
Coldwater
Hraðfrystihúsi Hellissands var á
dögunum afhent gæðaverðlaun
Coldwater. Verðlaunin eru veitt
þeim fýrirtækjum sem skara fram
úr í gæðum þeirrar vöru sem fýrir-
tækið kaupir. Árið 1975 var byrjað
að veita þessar viðurkenningar og
eru verðlaunin nú veitt í lok hvers
kvótaárs. Hraðfrystihúsið er eitt
sjö viðskiptafyrirtækja Coldwater
sem hljóta viðurkenningu að þessu
sinni. Páll Pétursson yfirmaður
gæðamála hjá Coldwater í Banda-
EKn ekki
til Beirút
Keppninni um titilinn Ungfrú
Evrópa sem átti að fara ffam nú
um mánaðamótin hefur verið
frestað um óákveðinn tíma
vegna stríðsástands sem ríkir í
Líbanon þar sem halda átti
keppnina. Elín Málmfríður
Magríúsdóttir, sem er firlltrúi Is-
lands í keppninni, kemur því til
með að halda sig innan land-
steinanna enn um sinn.
SÓK
Ný skólanefnd FVA
Skipunartími skólanefrídar FVA
rann út í september síðastliðnum
og hefur menntamálaráðherra því
skipað nýja skólanefnd til næstu
fjögurra ára. Þrír fulltrúar eru skip-
aðir án tilnefríingar en það eru þau
Bergþóra Jónsdóttir Hrútsstöðum,
Sigríður Finsen Grundarfirði og
Þorgeir Jósefsson Akranesi. Tveir
fulltrúar í nefrídinni eru tilnefrídir
af sveitarfélögum þeim sem aðild
eiga að skólunum, en það eru þær
Borghildur Jósúadóttir Akranesi og
Guðrún Jónsdóttir Borgarnesi.
Auk þeirra eiga sæti sem áheyrnar-
fulltrúar þau Steinunn Eva Þórðar-
dóttir tilnefnd af kennurum og
Leifur Jónsson tilnefrídur af NFFA
(Nemendafélag Fjölbrautaskóla
Vesturlands). Aheyrnarfulltrúarnir
eru tilnefrídir til eins árs í senn.
Helstu hlutverk skólanefrídar eru
að marka áherslur í starfi skólans,
að bæta samstarf skóla og atvinnu-
lífs, að ákveða námsframboð, sam-
þykkja skólanámskrá, setja reglur
um notkun skólahúsnæðis utan
skólatíma og að gera árlega starfs-
og fjárhagsáætlun fýrir skólann svo
fátt eitt sé upptalið. SOK
ríkjunum gat þess að á árinu hafi
Coldwater keypt 603 tonn af
þorskflökum sem eru um 65% af
þorskflakaframleiðslu Hraðfrysti-
hússins. Hann gat þess einnig að
fýrirtækið væri langstærsti fram-
leiðandi á þorskflökum í 5 punda
pakkningu á Bandaríkjamarkað.
“Við hjá Coldwater segjum að
þetta fýrirtæki sé lykillinn að því
að við erum enn að selja þessa
pakkningu á Bandaríkjamarkaði.”
Hraðfrystihúsið hefur hlotið þessi
verðlaun tvisvar áður, 1992 og
1997, en árið 1987 hlaut fýrirtæk-
ið einnig hliðstæða viðurkenningu.
“Svona árangur næst náttúrulega
ekki nema með mjög góðu starfs-
fólki og stjórnendum. Jöfn og
stöðug gæðastjómun og skilningur
allra á mikilvægi gæðanna er það
sem þarf til að komast í hóp þeirra
sem þessi verðlaun hljóta. Mikil-
vægasti þátturinn í því að ná svo
háu verði sem við erum að ná á
Bandaríkjamarkaði er auðvitað
jöfn gæði. Hágæðaframleiðsla
eins og sú sem héðan kemur hjálp-
ar okkur að halda Icelandic vöm-
merkinu enn á toppnum efrir 53
ár.” Páll færði síðan starfsfólki
kveðjur og hamingjuóskir frá
starfsfólki Coldwater og bað síðan
Auði Grímsdóttur að taka við
verðlaununum fýrir hönd starfs-
fólks Hraðfrystihússins.
IH
Skrif-
stofumar
fluttar
Um síðustu helgi vom skrifstof-
ur Akranesveitu sameinaðar skrif-
stofu Akranesbæjar að Stíllholti 16
- 18. Þá var aðsetur garðyrkju-
stjóra, bygginga- og skipulagsfull-
trúa og heilbrigðisfulltrúa flutt að
Dalbraut 8 þar sem tæknisvið bæj-
arins verður til húsa.
Að sögn Gísla Gíslasonar bæjar-
stjóra gengu flutningar vel og
kvaðst hann bjartsýnn á að stuttan
tíma tæki að aðlagast þessum
breytingum.
GE