Skessuhorn - 23.11.2000, Side 5
FIMMTUDAGUR 23. NOVEMBER 2000
5
^nuaiinui..
Vímuefiianeyslan
óásættanleg
Á síðasta fundi skólanefndar
gerði Helga Gunnarsdóttir
menningar- og skólafulltrúi
grein fyrir helstu niðurstöðum
könnunar sem gerð var
meðal nemenda í 10. bekk
Grundaskóla og Brekku-
bæjarskóla síðastliðið vor.
Niðurstöðumar vöktu ugg
meðal nefndarmanna og
óskaði skólanefnd eftir því
við skólana að mikil áhersla
yrði lögð á forvamarstarf
og að skipulag lífsleikni-
námsins tæki mið af því.
Alls svöruðu 74 unglingar
könnuninni af þeim 86 sem í
1984 árganginum voru síðast-
liðið vor. Af þeim reyndust
25% reykja daglega, 39%
höfðu orðið ölvaðir síðast-
liðna 30 daga og 22% höfðu
notað hass einhvern tímann
um ævina.
Rannsóknarstofnun upp-
eldis- og menntamála leggur
viðamikla könnun fyrir alla
10. bekkinga á landinu á ári
hverju og í fyrra ákvað fram-
kvæmdanefnd um forvamir á Akra-
nesi að fá upplýsingar um niður-
stöður í völdum spurningtun sem
snerta reykingar, áfengisneyslu og
neyslu á öðram vímuefnum. Nú
liggja fyrir svör frá nemendum sem
fæddir eru á bilinu 1981-1984.
Helga segir að all miklar sveiflur
séu milli árganga og í niðurstöðum
einstakra spurninga. “I þessum ár-
göngum sem um ræðir eru flestir
sem reykja í árganginum sem yfir-
gaf grunnskólann síðastbðið vor.
Þetta er ekki í samræmi við þróun-
ina annars staðar í landinu. Hins
vegar voru reykingar meðal ung-
linga fæddra 1983 sjaldgæfari en
annars staðar á landinu.” Áfengis-
neysla nemenda hafði farið sífellt
minnkandi frá árinu 1997 þegar
nemendur fæddir árið 1981 voru í
10. bekk þar til í vor. “Þessi niður-
staða er ekki í samræmi við þróun-
ina á landinum öllu þar sem áfram
hélt að draga úr áfengisneyslu á síð-
asta ári. Hassneysla var minnst
meðal árgangs 1981 en hefur verið
hlutfallslega nokkuð sú sama síðast-
liðin þrjú ár. Framkvæmdanefnd
um forvarnir hefur reynt að leggja á
ráðin um viðbrögð. I fyrsta lagi vilj-
um við gjarnan sjá hvernig neyslu-
þróunin heldur áfram hjá þessum
árgöngum því við fáum þessar upp-
lýsingar ekki fyrr en unglingarnir
hafa yfirgefið grunnskólann.
Við höfúm því áform um að
leggja fyrir sambærilega könn-
un innan Fjölbrautaskóla
Vesturlands þegar kennara-
verkfallinu lýkur.” Helga seg-
ist líta svo á að foreldrar séu
sterkasta forvörnin. “Við höf-
um á hverju ári haldið
fræðslufundi fyrir foreldra og
nú í haust var raeggja kvölda
námskeið fyrir foreldra í 8.
bekk. I grunnskólunum er
verið að vinna að forvarnará-
ætlunum og skipuleggja inn-
tak námsgreinarinnar lífs-
leikni sem einnig eru bundnar
vonir við. Lögreglan á Akra-
nesi ætlar að byrja í vetur með
námsefni sem á ættir að rekja
til Bandaríkjanna og hefst það
starf í 5. bekkjum grunnskól-
anna.” Vandinn er síður en
svo minni í framhaldsskólum
landsins og að sögn Helgu eru
menn þar einnig að ráða ráðum sín-
um um hvemig eigi að bregðast við
vímuefnavanda innan sinna veggja.
“Framkvæmdanefndin, sem skipuð
er fulltrúum félagsmála, skólamála,
íþrótta- og tómstundamála auk full-
trúa frá Fjölbrautaskóla Vesmrlands
og lögreglunni, mun halda áfram að
leita leiða til að bregðast við þessum
vanda sem er óásættanlegur og
leggur líf margra ungmenna og fjöl-
skyldna þeirra í rúst á hverju ári.”
Helga Gunnarsdóttir
Mikið fjör hefur færst í fasteigna-
sölu á Snæfellsnesi. Frá áramómm
hefur selst 51 fasteign í Snæfellsbæ
sem er langt fyrir ofan meðaltal
sem er í kringum 24 fasteignir á ári.
Skýringar á þessu gæm verið að nú
er mjög erfitt að fá leiguhúsnæði í
bænum og því hafa margir brugðið
á það ráð að fjárfesta í fasteign áður
en leiguhúsnæðið yrði selt undan
því. Svipaða sögu er að segja úr
Stykkishólmi þar sem mikil aukn-
ing hefur verið í fasteignasölu. I
Grundarfirði hefur verið nokkuð
gott jafnvægi milli ára í húsasölu og
hafa verið að seljast um 30 fasteign-
ir á ári síðustu ár og stefnir í svipað
þetta árið. Á öllum þessum stöð-
um er nú orðinn skormr á góðum
einbýlishúsum, 120 - 140 fermetra.
Jónas Gesmr Jónasson hjá Deloitte
& Touche í Olafsvík segir: ” Fólk er
búið að átta sig á því að það er full-
boðlegt að búa á þessum stöðum.
Bættar samgöngur á Snæfellsnesi
og til og frá höfuðborgarsvæðinu
eru jákvæður þátmr í þessu. Einnig
er brjálað fasteignaverð á höfuð-
borgarsvæðinu að gefa þessu fólki
ný tækifæri. Sem dæmi má nefna
að fasteignaverð í Snæfellsbæ hefur
verið í kringum 50.000 til 65.000
krónur á fermetrann en á höfuð-
borgarsvæðinu er það í kringum
80.000 til 140.000, þannig hefur
fólk verið að flytjast af mölinni og
hingað til Snæfellsness og jafnvel
innleyst góðan söluhagnað af sinni
íbúð í Reykjavík”. IH
BORGARBYGGÐ
Auglýsing
Deiliskipulagstillaga fyrir Grunnskólann í
Borgarnesi í tengslum við einsetningu hans.
1
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með lýst
eftir athugasemdum við ofangreint deiliskipulag.
Tillagan mun liggja frannni á bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar frá 22. nóvember 2000 til
14. desember n.k.
Athugasemdum skal skila hm fyrir 29. desember
2000 og skuln þær vera skriflegar.
Borgarnesi 14. nóvember 2000
Bœjarverkfrœðingur Borgarbyggdar
BORGARBYGGÐ
Auglýsing
Deiliskipulagstillaga fyrir athafnasvæði
undir hreinlegan iðnað norðan Sólbakka.
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með
lýst eftir athugasemdum við ofangreint
deiliskipulag.
Tillagan mun liggja frammi á bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar frá 22. nóvember 2000 til
14. desember n.k.
Athugasemdum skal skila inn fyrir 29.
desember 2000 og skulu þær vera skriflegar.
Borgarnesi 14. nóvember 2000
Bœjarverkfrœðingur Borgarbyggðar
Akraneskaupstaður
Skólaritari
Auglýst er eftir skólaritara til starfa frd
og meö 1. febrúar 2001.
Um er að ræða hdlft starf (e.h.), en
breytingar gætu orðið d vinnutíma og
verksviði samhliða einsetningu skólans
árið 2002.
Leitað er eftir starfsmanni sem hefur góða
tölvukunnáttu og menntun og/eða
reynslu af skrifstofustörfum. Lögð er áhersla
á lipurð í öllum
samskiptun, bæði við börn og fullorðna.
Laun skv. kiarasamningi STAK og
Akranesbæjar.
Reyklaus vinnustaður.
Nánari upplýsingar veita Ása Jónsdóttir
skólaritari og skólastjórarnir
Guðbjartur Hannesson og Hrönn
Ríkharðsdóttir í síma 431-2811.
Umsóknarfrestur er til 1. desember. Sækja
skal um starfið á þar til gerðum
eyðublöðum sem liggja frammi á
Bæjarskrifstofu og í Grundaskóla og skal
senda umsóknir á áðurnefnda staði.
A
Skólastjóri