Skessuhorn - 30.11.2000, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 30. NOVMEMBER 2000
Samgönguráðheira færir Alþjóða
Siglingamálastofauniimi víkingaskip
Samgönguráðherra, Sturla Böðv-
arsson, alhenti síðasta þriðjudag að-
alframkvæmdastjóra Alþjóðasigl-
mgamálastofhunariimar (-
Intemational Maritime Organ-
ization - IMO), William A O’Neil,
líkan af víldngaskipi að gjöf. Tileíhi
gjafarinnar er að treysta tengslin við
IMO á 40 ára aðildarafrnæli íslands
að stofhuninni og að minnast 1000
ára affnælis landafundanna. Jafn-
ffarnt er vakin athygli á mikilvægi
samvinnu við IMO um öryggismál
og mengunarvamir á hafi úti.
Líkan af víkingaskipi táknar upp-
haf Islendinga sem siglingaþjóðar.
Afhendingin fer ffam í aðalstöðvum
IMO í London. Samþykktir IMO
hafa mikil áhrif á útgerð og sjó-
mennsku á Islandi. Sem dæmi má
nefna að gildandi reglur um gerð og
búnað íslenskra sldpa og menntun og
réttindi sjómanna byggjast á þessum
samþykktum IMO
Frá höfninni í Gnmdarfiröi Mynd IH
Fyrsta öryggisáætlunin
Skessuhorn fjallaði um öryggis-
mál hafna í haust út frá úttekt sem
fulltrúi Slysavarnafélagsins
Landsbjargar gerði í höfnum á
Snæfellsnesi s.l. sumar og fékk sú
umfjöllun talsverða athygli. Fyrir
nokkrum árum beitti Slysavarna-
félag Islands sér fyrir könnun á á-
standi þessara mála og fór það
nokkuð eftir eftirfylgni sjómanna
og aðstandenda þeirra hvernig
ástatt var í öryggismálum hafn-
anna. Slysavarnadeildir höfðu
hver á sínu svæði haft góð áhrif á
þennan málaflokk og því kom það
ekki á óvart að ástandið var hvað
best þar sem slysavarnadeildir
höfðu verið að sinna þessum mál-
um. Fyrr á þessu ári tóku gildi
nýjar reglur um slysavarnir í
höfnum (nr. 247/2000). Setning
þessarar reglugerðar var sannar-
lega tímabær en hingað til hafa
engar formlegar reglur verið í
gildi um slysavarnir í höfnum.
Reglur þessar eru mjög víðtækar
og taka á öllum þeim atriðum sem
varða búnað hafhanna og hvernig
honum skuli vera fyrir komið.
Þá er að finna í 10. grein reglu-
gerðarinnar athyglisvert nýmæli
um að hafnarstjórn sjái til þess að
starfsmenn hafnarinnar fái lág-
marksþjálfun í notkun þeirra
björgunar- og öryggistækja sem
eru á hafnarsvæðinu. Ennfremur á
hafnarstjórn að skipuleggja innra
eftirlit með öllum þáttum þessara
reglna og samráð skal haft við
Siglingastofnun í þeim efnum.
Einu sinni á ári eða oftar eiga
starfsmenn Siglingastofnunar að
sannreyna virkni innra eftirlits
hverrar hafnar.
Nú nýlega lagði Hafnarstjórn
Grundarfjarðarhafnar fyrir Sigl-
ingastofnun öryggisáætlun
Grundarfjarðarhafnar. I áætlun-
inni er farið yfir skipulag öryggis-
mála og staðsetningu öryggis- og
björgunartækja. Þá er skýrt með
hvaða hætti innra eftirliti verði
háttað og hvernig unnið verði eft-
ir öryggishandbók. Loks er
kveðið á um meðferð kvartana og
sérstakar reglur um sannprófun.
Grundarfjarðarhöfn er fýrst hafna
á Islandi til að leggja inn til stað-
festingar öryggishandbók í sam-
ræmi við hinar nýju reglur.
IH
Leikskólakennaramir í leikskólanum Sólvöllum kenna bömunum aö nota gangbrautir.
MyndIH
Bömum fjölgar
Nýlega var lögð fýrir hrepps-
nefndina í Grundarfirði þarfá-
greining vegna leikskóla frá leik-
skólastjórum, formanni leikskóla-
nefndar og fleirum. Þar er velt
upp hugmyndum að stækkun leik-
skóla eða byggingu nýs annars
staðar. Fram kom í umræðum á
fundi hreppsnefndar að aðkallandi
væri að auka við húsnæði leikskól-
ans sem fýrst. Þá var rætt um kosti
þess að byggja annan leikskóla eða
stækka þann sem fýrir er.
Oddviti lagði til að byggingafull-
trúa yrði falið að gera nánari grein
fýrir stækkunarmöguleikum leik-
skóla á núverandi stað, landrými,
möguleikum varðandi staðsemingu
viðbyggingar og lóðar á svæðinu,
þannig að sveitarstjórn gæti gert
sér grein fýrir því hvort og hvemig
mætti koma þessu fýrir á núverandi
svæði. Niðurstaða myndi liggja fýr-
ir í byrjun desember, þannig að
hægt væri að skoða málið um leið
og fjárhagsáætlun er unnin.
Hreppsnefhdarfulltrúar virtust al-
mennt vera sammála um að það
væri bæði hagkvæmara og fljótlegra
að stækka núverandi húsnæði leik-
skólans en að fara út í nýbygg-
ingu. III
Atiöur Kristinsdóttir, eigandi Tinmi.
/ •
Gamverslun
Heildverslunin Tinna í Kópavogi
veitti á dögunum Puntstráinu í
Borgamesi viðurkenninguna Gam-
verslun ársíns 2000. Vkkirkenning-
in er veitt fjTir framúrskarandi ár-
angur í þjónustu og sölu, en alíar
þær 60 verslanir sem selja gam frá
Tinnu koma til greina við valið.
Rúmt ár er síðan iVIargrét Þórðar-
dóttir stofnaðí verslunina en þami
26. nóvember st. flutti fýrirtækið í
hið ríýja verslunarhús, Hymutorg.
Með Margréti starfar Matthildur B.
Gíestsdóttir en báðar em þær vel að
sér í prjónaskap. Þetta er í áttunda
sinn sem viðurkenningin er veitt, en
síðast kom hún í hlut gamdeildar
Kaupfélags Húnvetninga Blöndósi.
Minningarsjóðiir Bjöms Rúnarssonar
Úthlutað hefur verið úr minn- uðbók 18, kennitala 141251- I M /ll'IÍLiljiJ'n'
ingarsjóði Björns Rúnarssonar
Þverfelli Lundarreykjadal, sem
var fæddur 30. nóvember 1975
og lést 11. júní 1995. Tilgangur
sjóðsins er að styrkja bráðveik
og langveik böm og ungmenni.
Úthlutað er úr sjóðnum á fæð-
ingardegi Björns 30. nóvember
ár hvert og allar tekjur sjóðsins
fara óskiptar til styrkþega hverju
sinni.
sjóðsins er sala
minnigarkorta og frjáls ffamlög
einstaklinga, fýrirtækja og félaga-
samtaka. Minningarkortin fást
hjá Sparisjóði Mýrasýslu Borgar-
nesi, Islandspósti í Borgarnesi og
Islandspósti í Reykholti.
Sjóðurinn er í vörslu Spari-
sjóðs Mýrasýslu Borgarnesi,
reikningur númer. 640453. liof-.
3259.
Þann 30. nóvember síðastlið-
inn á 25 ára afmælisdegi Björns
var úthlutað úr minningarsjóðn-
um alls 120.000 kr. til eftirtaldra
einstaklinga:
Hulda Jónsdóttir, Kópareykjum
Reykholtsdal.
Halldór Bjarni Oskarsson,
Krossi Lundarreykjadal.
AmarrÞorriJónsson, Fjölnisvegi
6, Reykjavík.
Það er einlæg von okkar að all-
ir sem þjást af langvinnum sjúk-
dómum nái bata sem allra fýrst.
Vrð viljum þakka þeim fjölmörgu
sem sýnt hafa sjóðnum velvild og
hlýhug á síðustu árum með á-
heitum og gjöfum.
Aðstandendur Minningaty/óðs
.,...... . ..Djörus.Rduurssmuu'...