Skessuhorn - 30.11.2000, Side 18
18
FIMMTUDAGUR 30. NOVMEMBER 2000
^ikitssúiiu..
Penninn Athugasemd um Breiðina
Eg las ágæta grein í Skessuhorni, 16. nóv. 2000 undirrituð af K.K.
Mig langar að vekja athygli á einni setningu. “Leikfimi niður á Breið.”
Breiðin er neðsta jörðin á Skaganum, talin árið 1703, 10 hundruð dýr-
leika. Næst fýrir ofan, kemur Bræðrapartur, talinn 5 hundruð dýrleika.
Neðri-Sýrupartur 2 ? hundrað dýrleika. Efri-Sýrupartur 2 1/5 hundrað
dýrleika. Þessar þrjár jarðir, voru kallaðar í samheiti "Partar” og náðu
upp að Bárugötu, meðfram Krossvík. Að fara niður á parta, var sagt.
Eftir að Haraldur Böðvarsson eignaðist Breiðina, lét hann gera fiskreit
neðan og norðan við Breiðarbæinn. Seinna sjóvarnargarð um þrjár
hliðar sjávarmegin, en vírnetgirðingu og að hluta steinvegg, á lóðar-
mörkum Breiðarparts. Svo Breiðin er greinilega staðsett. Stærð henn-
ar er sú sama nú og upphaflega. 1895 byggði Thor Jensen stórt pakk-
hús, austurendi þess var við Bárugötu, en suðurhlið við Steinsvör. I
þessu húsi kenndu þeir Olafur Finsen læknir og Thor Jensen leikfimi.
Það er af vanþekkingu að tala og skrifa um að Breiðin nái upp að Báru-
götu. Eg held að margir aðfluttir Akurnesingar og krakkar og ungling-
ar fæddir hér á Akranesi eftir 1930, hafi komið þessum ruglingi á. En
rétt er að hafa það, sem sannara reynist.
Akranesi 19. nóv. 2000
G. P.B. kt. 2302094809
Lionsklúbbarnir á Akranesi nesi og líknarsjóðir klúbbanna
færa ykkur hinar bestu þakkir fyr- njóta góðs af góðum viðtokum.
ir góðar viðtökur við perusölu Hafið bestu þökk fyrir.
klúbbanna. Perusalan gekk mjög Lionskhíbbur Akranes
vel og að venju munu áhalda- Lionskhíbbur F,<ma.
kaupasjóður sjúkrahúsins á Akra- (Hafa UmsmerkiS)
Jólakort
Jólakort Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna eru komin út. Þau
eru með svipuðu sniði og undanfarin ár, 115 mm. að hæð, 165 mm að
breidd, opnast eins og bók hvítt umslag fýlgir með hverju korti. Verðið
er óbreytt, 80 krónur pr. kort.
Fyrirtækjum og öðrum sem þess óska er boðin innáprentun í kortin
að eigin vali. Flestum fyrirtækjum í landinu hefur verið sent pöntunar-
eyðublað til útfýllingar en kortin má einnig panta á skrifstofu félagsins
eða á heimasíðunni www.skb.is
Kortið kostar kr. 80 pr stk.
Söluaðilar í Borgarnesi eru: Anna Jónsdóttir: sími 437 1469 -
4371258, Ingibjörg Ingimarsdóttir s: 437 1139 - 437 1224, Fanney Ó-
lafsdóttir 437 1478 - 430 4471
(Fréttatilkynning)
ó'Pennínn Anægjuleg hamtférð
Frá félagi eldri borgara Borgarfjarðardölum.
Hinn 29. sept. sl. bauð Sæmundur Sigmundsson eldri borgurum í
ferðalag. Þátttaka varð mjög mikil og fýltust tvær stórar rúturúr sveit-
unum og Borgarnesi. Ekinn var stór hringur austur fyrir fjall. Stans-
að fyrst á útsýnisstað ofan Nesjavalla. Þar sem vel sést yfir Þingvalla-
vatn og umhverfi þess sem skartaði sínu fegursta í haustblíðunni.
Einnig var áð á Þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum, Sólheimum í
Grímsnesi, við Gullfoss og lengst við Geysi þar sem fengin var hress-
ing og margt skoðað. Það er skemmst frá að segja að ferðin var öll hin
ánægjulegasta og var mjög rómaður rausnarskapur Sæmundar og
framtakssemi.
Kærar þakkir Sæmundur, gangi þér allt í haginn og fegin viljum við
eiga þig að sem fýrr. Fyrirhönd f. e.b.
S. E.
-%Písnahornið___________Valt er lönmm lífsimfley
Fyrir stuttu var ég að fletta í vísna-
dóti og rakst þá á þessar vísur höf-
undarlausar og væri þökk í ef ein-
hver gæti frætt mig um höfund eða
höfunda þeirra því ekkert veit ég
hvort þær eru samstæðar þó tónninn
sé álíka þunglyndislegur í báðum.
Skugga lengit; lífgras deyr,
lœkkar strengja kliður,
sýnist engin saga meir
sól er gengin niSur.
löngu horfnir draumar.
Eftir svana dapurleika er rétt að slá á
aðra strengi og kemurþá upp í hugann
vísa eftir Sigurbjörn K Stefánsson frá
Gerðum í Oslandshlíð sem ort var við
burtfluttan Skagftrðing:
Röddin hreina hljómarþín
- hlusta ég erþú syngur
efþú bragðar áfengt vín
ertu Skagfirðingur.
Agúst Sigfússon sem kenndur var
við Kálfardal og fleiri bæi í Húna-
vatnssýslum og þekktur um það
svæði undir nafninu Villu Gústi
vegna langrar og ótrúlega erfiðrar
villu sem hann lenti í á unglingsaldri
var nánast talandi hringhenduskáld
en átti oft í verulegum erfiðleikum r
lífinu og einhvemtíma varð honum
að orði:
Mun ei brrta mína lund
mtkilsvhti pelinn,
að þó syrti um eina lund
aftwrbrrta élin.
Þó söngur og hæfilegt magn af á-
fengi hafi glatt margan mann í
gegnum árin getur sálin stunduin
þurft eitthvað bitastæðara þegar erf-
iðleikar steðja að en væntanlega
hjálpa nú prestarnir okkur hér eftir
sem hingað tik Sr Helgi Sveinsson í
Hveragerði orti þessa leiðbeiningu
til stéttarbræðra sinna ( og okkar
hinna lika):
Mildur vertu manni í nauðum
meðan hann er enn að strita.
Seint er ást að sýna dauðum,
sokkið skip þarfengan vita.
Það verður varla um of brýnt fýrir
mönnum að sýna meðbræðmm sín-
um góðvild því jafnvel lítið bros gét-
ur gert kraftaverk þegar flest sund
sýnast lokuð eða eins og einhvém-
tíma var kveðið:
Hvar sem lítið kærleikskom
kann aðfesta rætur
þarfer enginn út í hom
einmana og grætur.
Kjarabarátta presta hefur stiindum
verið nokkuð í umræðunni og sýnst
sitt hverjum þar sem víðar, út úr ein-
hverri launahækkun virtust þeir fá
mest sem minnsta menntun höfðu
og orti þá Hreiðar Karlsson:
Þegar hækka launin lág
léttist starfog iðja,
en mestan hlut þerr munu fá
sem minnst hafa lært að biðja.
Getur það raunar verið fúllgildur
sannleikur því tæpast þarf langa
skólagöngu til þess að biðja frá
hjartanu. \4ssulega þurfá prestar sitt
lifibrauð eins og aðrir dauðlegir
menn en sagt er að eftirfarandi graf-
skrift sé rimð á Iegstein prests sem
meri beit til bana:
Valt er lóngum lífsinsfley
og lekt ífjóruborðinu.
Presturinn æpti „ Hold er hey, “
og hryssan tók hann á orðinu.
Gesmr Ólafsson kennari á Akureyri
orti á heimleið úr kirkju:
Athuga þinn innri mann,
erþar líkt hjáflestum.
Sumir trúa á sannleikann.
Sumir trúa prestum!
Nú fýrir jólin er tími mikilla fjár-
safnana fýrir hin margvíslegustu
málefni sem vafalaust em öll hin
þörfústu en kannske óþarflega mörg
fýrir buddu hins almenna meðal-
jóns. Mörg góðgerðafélög hafa
vissulega unnið stórvirki í gegnum
árin og einhvemtíma kvað Jón S.
Bergmann:
Kunnirþú með krónuplóg
og kærleika aðfara
þá ertu efiii í Oddfelow
eða Frímúrara.
Einhverjir háðfúglar breyttu fýrri-
partinum lítillega og hljóðaði hann
þá á þessa leið:
Notaðu bæði kjaft og kló
en kærleika til vara.
Þessi útgáfán hefúr hinsvegar orðið
mvm Iífeeigari enda kvikindislegri og
nær bemr til þjóðarsálarinnar sem
jafnan nýmr hæfilegs óþverraskapar
til fúllnusm þó hún sé oft raunbetri
en ætla mætti. Einu sinni var sagt að
ekki væri hægt að þjóna bæði Guði
og Mammoni og að minnsta kosti er
bágt að vera beggja vin og báðum
trúr. Ekki veit ég um tilefni eftirfar-
andi vísu Jóns S. Bergmann en hún
er jafngóð fýrir því:
Mammons vegna maðurinn
meistarann hefur svikið,
biskup karar kálfinn sinn
kannskefyrir vikið.
Sr Halldór Gunnarsson í Holti hélt
einhvemtíma ræðu á prestastefnu
og varð það Sr Sighvati B. Emilssyni
tilefni eftirfarandi hugleiðingar:
Halldór slettir hina í
hefur stéttin borið vottinn.
Munið þetta úrMalakí:
„Margir prettað hafa drottinn. ”
Sú hugmynd að verðlauna kristileg-
usm jólaauglýsinguna hefur vakið
nokkra athygli og orðið til þess að
menn hafa rifjað upp hálfgleymdar
rimingargreinar eins og „ Mitt hús á
að vera bænahús - osfrv “ en Hjálm-
ar Freysteinsson á Akureyri leit
þessum augum á málið:
Svo kaupæðið verði sem kristi-
legast
kirkjan samþykkti einróma
að verðlauna þann sem listileg-
ast
leggur nafn guðs við hégóma.
Að endingu langar mig til að spyrja
lesendur hvort þeir kannist við
fýrripart þessa vísuhelmings sem oft
er hafður sem máltæki:
Það er hart að heita Briem
( helvíti er að heita Briem )
og hafa ei til þess urmið.
Endilega komið til mín uplýsingum
ef eitthvað rofár til í minninu.
Með þökkjýrir lesturinn
Dagbjartur Dagbjartsson
Rejsstöðum 320 Reykbolt
S 435 1367
Lífsins morgni einatt,
yndisfiporna stratmtar
líkt og ntrrnir líða hjá
►eycicirðshorniC
Greiðsluþjónusta
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum að Hyrnutorg var opn-
að með miklum glæsibrag síð-
astliðinn sunnudag. Meðal
þeirra sem þar bjóða fram þjón-
ustu sína er Haukur rakari.
Hann er með sína aðstöðu í
húsnæði Sparisjóðsins og hafa
gárungar bent á að hann muni
sjá um greiðsluþjónusm Spari-
sjóðsins. Þar verður væntanlega
boðið upp á staðgreiðslu, end-
urgreiðslu og iýrirfram-
greiðslu.
Gjöfin!
Ungur maður ætlaði að
gleðja kærusmna sína á afmæl-
isdaginn hennar. Þau höfðu
ekki verið lengi saman og eftir
dágóða umhugsun ákvað hann
að kaupa handa henni loðfóðr-
aðar lúffur-það væri rómantísk
gjöf en ekki of persónuleg.
Hann fór í bæinn með yngri
systur kærusmnnar og hún
hjálpaði honum að velja lúff-
urnar, sjálf keypti systirín sér
nærbuxur. Afgreiðslukonan
ruglaði saman pökkunum þegar
hún pakkaði hlutunum inn og
ungi maðurinn sendi óvart
nærbuxumar til kæmsmnnar án
þess að vita af því. Hann skrif-
aði hjartnæmt bréf til hennar
sem hann lét fýlgja pakkanum
ög að sjálfeögðu ætlaðist hann
til þess að hún læsi bréfið áður
en að hún tæki utan af gjöfinni.
Bréfið var svohljóðandi:
„Ég valdi þessa gjöf vegna
þess að þú ert vanalega ekki í
svona þegar við fömm saman út
á kvöldin. Ég hefði valið aðeins
lengri ef systir þín hefði ekki
verið með mér, en hún er alltaf
í svo litlum sem erfiðara er að
fara úr.....
Liturinn er dálítið
viðkvæmur, en afgreiðslukonan
sýndi mér sitt eintak sem hún
hafði verið í í 3 vikur samfleytt
án þess að sæist á þeim. Ég bað
hana að máta eintakið þitt og
hún var virkilega sæt. Ég vildi
óska að ég fengi að klæða þig í
gjöfina í fýrsta skipti vegna þess
að ég er viss um að aðrar hend-
ui munu snerta hana áður en að
ég fæ tækifæri til að hitta þig
afrnr........
Þegar þú ferð úr mundu þá
að blása í þær áður en þú legg-
ur þær ffá þér vegna þess að
þær verða yfirleitt dálítið rak-
*
ar....... Imyndaðu þér bara
hve oft ég á eftir að kyssa gjöf-
ina á riæsm mánuðum, ég vona
að þú verðir í þeim á laugar-
dagskvöldið.....
p.s. Nýjasta tískan er að
bretta aðeins upp á þær og láta
þetta loðna sjást!
Þú ert næst
Það fór skelfilega í taugamar
á mér að í ölltun brúðkaupum
kom gömul ffænka mín alltaf til
mín, potaði í mig og sagði
glottandi, “Þú ert næst”. Hún
hætti þessu ekki fýrr en ég fór
að gera það sama við hana í
jarðarförum!