Skessuhorn - 18.01.2001, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGUR 18. JANUAR 2001
S2ESS1ÍHOSÍ3
6
Eldur í ísverksmiðju
Föstudaginn 12. janúar s.l. kom
upp eldur í ísverksmiðju Breiða ehf.
við Snoppuveg í Olafsvík. Nokkur
fyrirtæki eru í húsinu og þykir mik-
ið lán að ekki fór verr. Það var
starfsmaður í vöruafgreiðslu Ragn-
ars og Asgeirs ehf sem varð var við
reykjarlykt er hann var að fara úr
vinnu sinni en vöruafgreiðslan er í
sama húsi. Starfsmaðurinn hringdi
þá strax í Neyðarlínuna og barst út-
kall til Slökkviliðs Snæfellsbæjar kl.
14.09. Að sögn lögreglu tók það
slökkviliðið aðeins örfáar mínúmr
Þessi raflínustaur þurfti aö láta í minni pokannfyrir Kára.
Hvassviðrið
á Snæfellsnesi
Um klukkan sex á föstudags-
morgun hvessti skyndilega á
norðanverðu Snæfellsnesi og
var komið foráttu veður á
skömmum tíma. Um kl. 6.30
varð vaktmaðurinn í Snæfells-
bæ þess var að jám var byrjað
að fjúka af fiskverkunarhúsi við
Snoppuveg í Olafsvík. Þakplöt-
umar fuku á haf út en töluverð-
ar skemmdir urðu á kaffistofö
og skrifstofa fyrirtækisins
vegna leka frá þakinu.
Björgunarsveit
kölluð út
Um kl. 7 var Björgunarsveitin
Sæbjörg kölluð út vegna þess að
þakplötur voru farnar að fjúka af
bílskúr við Brautarholt. Björgun-
arsveitarmönnum tókst að hemja
plöturnar og hindra frekara tjón.
Sveitin var kölluð út öðru sinni kl.
13.05 vegna lausra hluta, timburs
og járns, sem byrjaðir voru að
fjúka ffá útihúsum upp í Dal.
Vindur mældist mestur 51 metri á
sekúndu á bryggjunni í Ólafsvík í
stærstu hviðunni. Mjög hvasst var
á Fróðaárheiði og í Kolgrafarfirði
þar sem vindhviður mældust á bil-
inu 40 til 50 metrar á sekúndu
mest allan daginn. Mun hægara
var á Kerlingaskarði þar sem
vindhviður fóru aðeins einu sinni
yfir 30 metra á sek. Um kl. 10.00
fór svo rafmagn af framsveitarlínu
í Grundarfirði þegar tveir staurar
brotnuðu í snarpri vindhviðu.
Eldhamrakvellur
Um miðjan laugardag var veðr-
ið farið að ganga niður á innan-
verðu Snæfellsnesi og í Grundar-
firði enda þá komin há-sunnanátt.
A föstudagskvöld hvesti svo aftur
og var áttin þá orðin suð-vesdæg.
A laugardag var svo hvassviðri og
úrhellisrigning. Kl. 15.30 kom
stærsta hviðan á Grundarfjörð og
olli hún nokkrum skemmdum, bíl-
ar skemmdust af grjótfoki og
einnig bromuðu 11 rúður í Fisk-
iðjunni. Rúður munu hafa brotnað
víðar í Grundarfirði auk þess sem
túnþökur flettust upp sunnan við
bæinn. Þessi vindhviða kemur
mjög vel ffam á síritum vegagerð-
arinnar og era hvellir sem þessir
kallaðir “Eldhamraveður” í
Grandarfirði. I Stykkishólmi urðu
litlar skemmdir af völdum veðurs-
ins enda verður ekki eins hvasst
þar ísunnan-átt. Það má heita að
samgöngur hafi lamast þessa tvo
daga því bæði mjólkurbílstjórar og
bílstjórar áædunarbíla treysm sér
ekki út á Snæfellsnes í þessu veðri.
Af þeim sökum var mjólk víða af
skomum skammti tun helgina og
pósmr var ekki borin út fyrr en á
mánudag. IH
að koma á staðinn og var þá mikill
eldur í húsinu. Jón Þór Lúðvíksson
slökkvistjóri í Snæfellsbæ segir að
barátta við eldinn hafi verið erfið
og tvísýn. Flvassviðri var mikið og
hætta á að eldur kæmist upp úr
þaki, sem hefði hugsanlega leitt til
þess að allt húsið brinni. Þá hafi
menn óttast að 1500 lítra ammon-
íakstankur gæti sprangið. Það hafi
hinsvegar verið mikið lán hve
snemma eldsins varð vart. Reykur
komst í alla hluta hússins. Öljóst er
um eldsupptök og er málið í rann-
sókn. IH
Skitupest hefur gert vart við sig
í kúm í Borgarfjarðarhéraði að
sögn Gunnars Gauta Gunnars-
sonar héraðsdýralæknis. Segir
hann pestina gera vart við sig með
einhverra ára millibili og sé ekki
um mjög alvarlegan sjúkdóm að
ræða. “Þetta er veirasýking sem
veldur niðurgangi og slappleika.
Það er reyndar vitað um að einn
gripur hafi drepist af völdum sjúk-
dómsins en yfirleitt er fyrst og
fremst um afurðatap að ræða.
Pestin getur farið sérstaklega illa
með nýbærur og það getur tekið
Iangan tíma að ná upp nytinni í
þeim aftur. Yfirleitt þarf ekki á
meðhöndlun dýralæknis að halda
en það kernur þó fyrir.”
Gunnar segir eina ráðið til að
koma í veg fyrir smit vera að huga
vel að sóttvörnum. “Það er mikl-
vægt að þeir sem þurfa að fara á
milli fjósa sótthreinsi sig. Það er
æskilegt að menn hafi sótthreinsi-
bakka við fjósdyr með vatni og
klór. Þá er einnig mikilvægt að
menn láti vita ef tilfelli af þessu
tagi koma upp.”
Að lokum er rétt að láta fylgja
með orðsendingu frá dýralæknin-
um sem hengd var upp í slátur-
húsinu í Borgarnesi fyrir
nokkram áram en á ennþá við:
Gáðu að skónmn, þvoðu af þemt
Það er kostur besti.
Vtljirðu ekki hafa heim
Hattu á smiti í nesti.
GE
Verðlamiahafantir við afhendingtina.
Verðlaun fyrir jólaskreytingar
Nýlega vora veittar viðurkenn-
ingar Akraneskaupstaðar fyrir bestu
jólaskreytingarnar á Akranesi.
Dómnefnd sem skipuð var til að
fara yfir tilnefningar og gera tillögu
um aðila sem viðurkenningarnar
ættu að fá var sammála um að bær-
inn hefði um nýliðin jól verið fal-
lega og mikið skreyttur og að val
milli einstakra aðila hafi verið
erfitt.
Niðurstaða dómnefndarinnar,
sem skipuð var Hannesi Sigurðs-
syni, sviðsstjóra fyrirtækjasviðs,
Kristrúnu Líndal Gísladóttur, fall-
trúa og Guðnýju Ólafsdóttur,
tækniteiknara komst að eftirfarandi
niðurstöðu:
Viðurkenning fyrir skreytingu í-
búðarhúss:
Merkurteigur 10: Ragnheiður Sig-
urðardóttir, Símon Hreinsson og
Elínborg Guðmundsdóttir.
Stekkjarholt 10: Magnús Ingólfs-
son og Hlíf Bjömsdóttir.
Viðurkenning fyrir staka skreyt-
ingu:
Melteigur 16 b, (Jólatré) Þorsteinn
Ingason og Ólöf Guðnadóttir.
Viðurkenning fyrir skreytingu
fyrirtækis:
Landsbanki Islands, Suðurgötu 57.
Þá var dómnefndin sammála um
að við Jörandaholt 186 - 200 hefði
verið fallegasta götuskreytingin.
Jj
Utgáíustarfsemin efld
Eins og fram kom í Skessuhorni
fyrir stuttu hefur nýtt útgáfufélag,
Tíðindamenn ehf, tekið við
rekstri Skessuhorns ásamt annari
útgáfustarfsemi og fréttaþjónustu.
Samfara breytingunum hefur ver-
ið ákveðið að leggja aukna áherslu
á hverskyns útgáfu fyrir fyrir aðra
aðila. Ráðinn hefur verið sérstak-
ur starfsmaður til að sjá um þann
hluta rekstrarins. Sú heitir
Kristrún Ásgeirsdóttir og er ný-
lega útskrifuð sem margmiðlunar-
hönnuður frá IMMA, Danmörku.
Kristrún mun annast hönnun
hverskonar prentverka fyrir þá
sem þess óska. Lögð verður sér-
stök áhersla á útgáfu auglýsinga-
bæklinga fyrir fyrirtæki, félög og
einstaklinga. Einnig geta Tíðinda-
menn boðið upp á hönnun, um-
brot, textavinnslu, myndvinnslu
og prentun hverskonar prentverk-
efna. Allt frá fréttabréfam upp í
heilu bókaflokkana. Þá taka Tíð-
indamenn að sér gerð kynningar-
myndbanda. GE