Skessuhorn - 08.03.2001, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 8. MARS 2001
^niísaum/^
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgarnes og Akranes) 430 2210
Akranesi: Kirkjubraut 3
Fax: (Borgarnes)
430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ehf 430 2210
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 892 4098
Bla5amenn: Sigrón Kristjónsd., Akranesi 862 1310
Ingi Hans Jónss., Snæfellsn. 895 6811
Auglýsingor: Hjörtur J. Hjortorson 864 3228
Próforkalestur: Ásthildur Mognúsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentun: ísofoldarprentsmiðja hf
rilstjori@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
ingihons@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt tll áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
430 2210
Afþjófum
ogbófum
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Eftir nákvæma endurskoðun á mínu heimilisbókhaldi
hef ég komist að því að ég er á degi hverjum að verða af
umtalsverðum tekjum. Eg er hlunnfarinn, svikinn og
prettaður og ófrómir menn sitja um það allan sólar-
hringinn að ræna mig og féfletta sem mest þeir mega.
Vikulega sendi ég frá mér ómetanleg menningarverkefhi
í ræðu og riti. Orð sem er svo haganlega raðað saman að
jafnvel ólæsir menn kikna í hnjánum. Setningar sem eru
svo áferðarfallegar að jafhvel harðsvíruðustu ribbaldar
komast við og vökna í hvörmum. Stílfærni minni og list-
fengi verður ekki með orðum lýst, ekki einu sinni mín-
um.
Að undanförnu hef ég hinsvegar veitt því athygli að ó-
prúttnir aðilar hafa vísvitandi og blygðunarlaust látið
greipar sópa í mínu orðasafni. Eg hef bæði heyrt og les-
ið orð og jafhvel heilar setningar sem ég hef birt á prenti
eða sagt í fjölmenni en aðrir hafa gert að sínum. Þrátt
fyrir það hef ég engar greiðslur fengið fyrir afnot af orð-
um mínum, jafnvel þótt þessi iðja hafi verið stunduð um
langa hríð og ítrekað.
Fyrr í dag hlustaði ég á hæstvirtan menntamálaráðherra
flytja ræðu. Hún var að vísu stutt en samt sem áður
kenndi ég þar fjölmörg orð sem ég hafði notað í forystu-
grein Skessuhorns fáum dögum áður og ráðherra hafði
greinilega tekið ófrjálsri hendi og notaði þarna án leyf-
is. Þeim var að vísu ekki raðað á nákvæmlega sama hátt
og ég gerði en hann blekkir mig ekki með svo einföld-
um brögðum. Orðin voru svo greinilega stolin, frá mér.
Að ræðuhöldum loknum hitti ég Björn en ekki hvarflaði
að honum að bjóða mér greiðslu fyrir orðnotkunina
hvað þá að þakka fyrir lánið.
Til að gæta hagsmuna minn á ég einskis annars úrkosta
en að krefjast þess að lagður verði sérstakur orðaskattur
á allan þann búnað og hjálpargögn sem mögulegt er að
nýta til að að afrita með einum eða öðrum hætti orð og
setningar sem ég læt frá mér fara. Undir það hljóta að
flokkast tölvur, ritvélar og önnur ritvinnslutæki. Enn-
fremur lindarpennar, blek, blýantar og jafnvel fjaðrir.
Einnig hverskonar pappír og allt annað efni sem mögu-
legt er að rita á. Aukinheldur trjáplöntur sem mögulegt
er að einhverntíma kunni að vera notaðar til pappírs-
framleiðslu.
Að sjálfsögðu á þessi skattur að renna óskiptur til mín að
virðisaukaskatti frádregnum. Eg legg til að skatturinn
verði hafður ríflegur í upphafi svo hægt verði að lækka
hann um helming til að friða lýðinn án þess að ég beri
nokkurn skaða af. Greiðsluna má gjarnan inna af hendi
í reiðufé í lok hvers mánaðar að Skúlagötu 11 í Borgar-
nesi, (gengið inn að affanverðu)
Gísli Einarsson, arðrændur lista?naður
Fimmtán manns í fiskbolluframleiðslu í Rifi
Bjarni Bœrings meö fiskibollumar góðu í vinnslusal fiskréttaverskmiðjunnar í Rifi.
MyndlH
Þessa dagana er verið að prufu-
keyra nýja fiskréttavarksmiðju í Rifi
á Snæfellsnesi. Verksmiðjan er í eigu
nýs hlutafélags og eru eigendur þess
Humall í Reykjavík, Hraðfrystihús
Hellissands, Klumba í Olafsvík og
Frostfiskur í Þorlákshöfn. Humall
hóf starfsemi 1978 og er eitt elsta
íýrirtæki á Islandi sem sérhæfir sig í
fullvinnslu á fiski í neytendapakkn-
ingar og hefur verið leiðandi í ffam-
leiðslu sjávarrétta fyrir verslanir,
stóreldhús og mötuneyti. Bjarni
Bærings er framkvæmdastjóri hins
nýja fyrirtækis og var framkvæmdar-
stjóri Humals. “Eg tók þá ákvörðun
á síðasta ári að fá til liðs við mig fisk-
vinnslufyrirtæki til þess að fylgja eft-
ir þessari framleiðslu. Eg tel mig
hafa það langa og góða reynslu af ís-
lenska markaðnum og við erum að
horfa á þau kynslóðaskipti á mark-
aðnum að fólk sem alist hefur upp
við þessa vöru, sem börn, er orðið
fullorðið og neytir enn þessarar vöru
og börn þeirra munu alast upp við
hana. Þess vegna verður að álykta
sem svo að varan sé komin til að vera
og markaðurinn kallar eftir henni.”
Með flutningi starfseminar í Rif
skapast aukið rými til frekari þróun-
ar á fiskréttum fyrir erlendan rnark-
að og einnig er mikill kostur að mati
Bjama að vera nær því frábæra hrá-
efni sem fyrirtækið hefur aðgang að
hjá þeim fiskvinnslum sem starfa á
svæðinu. Húsnæði verksmiðjunnar
hefur verið endurbætt og er orðin
glæsileg aðstaða til matvælaffam-
leiðslu. Þessa dagana er verið að
leggja síðustu hönd á gæðastýringu
og ýmsa aðra þætti áður en starf-
semin fer á fullt. Fiskibollur sem fyr-
irtækið framleiðir em einkaleyfis-
vernduð framleiðsla er hefur hlotið
mikið lof hvar sem þær hafa verið
kynntar. Þessar fiskibollur em þurr-
steiktar og teljast hágæða hollustu-
fæða þar sem feiti hefur hvergi kom-
ið nærri og engin bragðefni hafa
tapast við suðu. Þessi framleiðsla
þykir ákaflega líkleg til að ganga vel
á mörkuðum erlendis og fyrir því er
nokkur reynsla þegar komin. “Við
emm ekki byrjaðir að ráða starfsfólk
en geram ráð fyrir að 10-15 manns
vinni hjá fyrirtækinu þegar allt er
komið í gang. Og ef okkar hug-
myndir um vömþróun og markaðs-
setningu á erlendum mörkuðum
gengur eftír má búast við að starfs-
mannafjöldi tvöfaldist.” IH
Fosshótel vill út en þó ekki
Miklar vonir voru bundnar við rekstur Fosshótels í Stykkishólmi og var ráðist í miklar
evdurbætur samfara því. Nií er með öllu óljóst hverjir munu reka hótelið á væstu nián-
Mynd IH
Undanfarið hefur það legið í
loftínu að Fosshótel sem reka Hót-
el Stykkishólm vilji losna undan
samningi um rekstur hótelsins. Nú
er í sjónmáli að nýr aðili taki við
rekstrinum og eru viðræður þegar
hafnar við eiganda hótelsins, Stykk-
ishólmsbæ. Fyrirtækið Parhótel
sem nú er í viðræðum við Stykkis-
hólmsbæ er í eigu manna sem tals-
verða þekkingu hafa á hótelrekstri
og eru vel kunnugir hótelinu í
Stykkishólmi. Þar eru í forystu O-
lafur Þorgeirsson fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Fosshótelanna og
Þorgils Þorgilsson fyrrverandi hót-
elstjóri Hótel Lindar auk Sæþórs
Þorbergssonar sem á síðasta ári lét
af starfi hótelstjóra hjá Fosshótel
Stykkishólmi. Þessir aðilar hófu
viðræður við Stykkishólmsbæ eins
og fyrr er getið eftir að Fosshótel
óskaði eftir að verða leyst undan
samningi. Að því var stefnt að Par-
hótel tæki við rekstrinum á
uöum.
fimmtudag fyrir viku. Þá skyndi-
lega snúa Fosshótel-menn við blað-
inu og vilja nú ganga frá sínum
skuldum og halda áfram rekstri.
“Þetta er mjög einkennileg staða og
í dag vitum við ekkert hvar þetta
endar,” sagði Sæþór Þorbergsson.
Ljóst er þó að Fosshótel hafa ein-
hvern frest til að ganga frá sínum
málum. IH
Fjárhagsáætlun Dalabyggðar
Aðhald í rekstri sveitarfélagsins
Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs er gert ráð fyrir að greiða niður
Dalabyggðar fyrir árið 2001 var
samþykkt á aukafundi í sveitar-
stjórn þann 26. febrúar s.l. I áætl-
uninni er gert ráð fyrir að skatttekj-
ur sveitarsjóðs nemi um 164 millj-
ónum króna og að ráðstöfunartekj-
ur verði um 3% hærri en a árinu
2000. Gert er ráð fyrir aðhaldi í
rekstri sveitarfélagsins en ekki er
gert ráð fyrir lántökum á árinu. Þá
skammtímaskuldir vegna fram-
kvæmda á vegum Hitaveitu Dala-
byggðar og Dalagistingar ehf.
Stærstu einstöku fjárfestingar
ársins eru Safn Leifs Eiríkssonar í
Búðardal og gámasvæði í Búðardal.
Verulega er dregið úr fjárfestingum
á milli ára enda var árið 2000 metár
í fjárfestingum á vegum sveitarfé-
lagsins. GE
Lyftan of dýr
Þegar hinn glæsilegi flygiil var
keyptur í Félagsheimilið Klif í
Ólafsvík kom fljódega upp sú
hugmynd geyma hljóðfærið und-
ir leiksviðinu á lyftupalli. Þessi
hugmynd þótti auðvitað glæsileg
og mönnum fannst það grand að
flygillinn gæti síðan birst upp úr
sviðsgólfinu þegar á þyrfti að
halda. Eftir talsverðar kannanir á
möguleikum þessa þykir ljóst að
svona búnaður er mjög dýr. Því
hefur nú verið ákveðið að skoða
aðrar leiðir til geymslu hljóðfær-
isins enda margir möguleikar í
stöðunni í rúmgóðu félagsheim-
ili. IH
Körfukæru
vísað frá
Héraðsdómstóll UMSB hefur
vísað frá kæm Umf. Skallagríms
vegna atviks sem átti sér stað í leik
gegn Tindastóli fyrir skömmu.
Skallagrímsmenn kröfðust þess
að þeim yrði dæmdur sigur eða að
leikurinn yrði leikinn að nýju.
Héraðsdómstóllinn taldi sig ekki
hafa möguleika á að breyta á-
kvörðun dómaranna en ávítti þá
fyrir slæleg vinnubrögð. GE