Skessuhorn - 22.03.2001, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001
3
Gervigras-
vellir við
grunn-
skólana?
Iþróttanefnd Akraness hefur
komið þeirri hugmynd sinni á
framfæri við bæjarráð að setja
ætti gervigrasvelli við Brekku-
bæjarskóla og Grundaskóla í
tengslum við einsetningu
grunnskólanna sem styttist nú
óðum í að verði að veruleika.
Bæjarráð tók ekki illa í hug-
myndina og heimilaði að meðal
annars yrði kannað hver heild-
arkostnaður við verkið yrði.
Stefán Már Guðmundsson, í-
þróttafulltrúi, segir að fram-
kvæmdirnar myndu gjörbreyta
aðstöðu til íþróttaiðkunar í
bænum. “Upphitaðir, upplýstir
gervigrasvellir myndu gagnast
mun fleirum en grunnskóla-
nemendum, til dæmis þeim sem
æfa fótbolta. Hugmyndin er að
vellirnir yrðu nýttir sem í-
þróttamannvirki eftir klukkan
fimm eða sex og það myndi
létta verulega á íþróttahúsun-
um en þar er bitist um hvern
einasta tíma.” Stefán segir ná-
kvæma útreikninga á kostnaði
við gervigrasvellina nú vera í
fullum gangi. “Þetta var gert í
Reykjanesbæ. Þar voru settir
vellir við alla grunnskóla bæjar-
ins sem eru fjórir talsins og það
kostaði um 7 milljónir króna
með öllu.”
SÓK
Yfir 20 kindur heimtar
Enn er fé að heimtast af fjalli í Borgarfirði. Leitarmenn sem síðustu
vikurnar hafa leitað að hrossum að afrétti Lunddælinga og Andkílinga
og í næsta nágrenni hafa fundið yfír tuttugu kindur og komið þeim til
byggða. Féð var í þremur hópum en í tveimur þeirra voru hrútar
þannig að búast má því að ærnar hafí ekki misst af fengitímanum þótt
þær hafi verið á fjöllum uppi. Að sögn leitarmanna var féð í ágætu á-
sigkomulagi þrátt fyrir útivistina. GE
Hundraðasti fundurinn
Síðastliðinn fimmtudag hélt bæjarstjórn Borgarbyggðar sinn hundrað-
asta bæjarstjórnarfund. Af því tilefni var fundurinn haldinn í hinu glæsi-
lega veiðihúsi við Hítará, í jaðri sveitarfélagsins.
Mynd: GE
www.skessuhorn.is/adofinni
Frábært atburðadagatal
iiijp
• y'SKur
S^isladrif
íslensk
W f UPPLÝSÍNG^
U PPLYS! NGATÆKN I
-takmorkalaus hamingja
Hyrnutorgi - 430 2200 - verslun@islensk.is