Skessuhorn - 22.03.2001, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001
7
Heilir og sælir lesendur góðir
til sjávar og sveita.
Mikið er nú rætt og ritað um
gin- og klaufaveikina sem nú
ríður húsum í útlöndum. Færra
heyrist þó um þá staðreynd að
þessi sjúkdómur hefur verið
landlægur hér á Islandi lengur
en elstu menn muna og er síst í
rénun.
Sjúkdómurinn greinist í
nokkra stofna og er skemmst
frá því að segja að þeir herja all-
ir á okkur landsmenn.
Fyrsti stofninn, sem jafn-
framt er mest áberandi, lýsir sér
þannig að menn drekka of mik-
ið gin og verða af því klaufar.
Menn fara sér að voða undir á-
hrifum, slasa sig og aðra, berja
konur sínar, misnota eigin
greiðslukort á nektarstöðum og
keyra fullir á staur, eða út í
skurð á leiðinni heim. Allt af
tómum gin- og klaufaskap.
Eftir því sem einkenni sjúk-
dómsins verða alvarlegri verður
sjúklingurinn sannfærðari um
að hann geti læknast af eigin
rammleik þótt staðreyndin sé
hið gagnstæða. Hann fer að
missa úr vinnu vegna drykkju,
missa minnið við drykkju og
missa allt niður um sig vegna
klaufaskapar sem orsakast af
drykkju. Þetta er gin- og
klaufaveiki, stofn A.
Annar stofn veikinnar er
lúmskari en ekki síður skæður
þegar allt kemur til alls. Þessi
stofn snýst ekki um það að vera
veikur fýrir gini, heldur að vera
veikur fyrir í gininu og gína við
öllu því æti sem í næst. Veldur
þetta sjúklega ofát ógurlegri
offitu, og offitan leiðir svo til ó-
skaplegs klaufaskapar; gin- og
klaufaskapar.
Þessi stofn veikinnar er afar
hættulegur vegna þess að hinn
sjúki er sannfærður um eigið
heilbrigði. Þetta fólk ekur lang-
ar leiðir, jafnvel um miðjar næt-
ur, til þess að svala sárri löngun
sinni í mat. Það neytir matar
sem er frosinn, brunninn, upp-
þornaður og jafnvel hættulega
skemmdur. Það étur af annarra
diskum, upp af gólfinu, eða af
jörðinni. Grefur jafnvel mat
upp úr ruslafötunni og étur. En
ginið gín sínu og klaufarnir
borða langt fram yfir þau mörk
sem eðlilegt magamál setur
þangað til þeir eru orðnir fár-
veikir af ofáti með stíflaða
kransæð og hjartsláttartruflan-
ir. Oðru nafni; gin og klaufa-
veiki, stofn B.
Ofugt við hina stofnana tvo
orsakast þriðji stofn veikinnar
ekki af því sem menn láta ofan í
ginið á sér heldur því sem þeir
láta út úr gininu á sér. Stór orð
og hástemmdar yfirlýsingar
hafa orðið mörgum manninum
að falli. Björn Bjarnason var
klaufi þegar hann lýsti því yfir
að hann ætlaði að skattleggja
einu aðdáendur sína, netverja,
og það um það leyti sem hann
hélt hann gæti orðið borgar-
stjóri. Aumingja Björn Borg.
Bjössi geislagin. Bjössi klaufi.
Jónas Kristjánsson var líka
klaufi þegar hann lét það út úr
gininu á sér að DV væri alvöru
fréttablað í vestrænum stíl og
gerði sjálfan sig og litla subbu-
lega götublaðið sitt að allra at-
hlægi.
Nú á dögunum lét Ingibjörg
Pálmadóttir svo skelfilega
mikla vitleysu fossa úr gini sínu
að hún hné í öngvit. Skelfilegur
klaufaskapur, en þekkt sjúk-
dómseinkenni. Meiri klaufi var
þó Ossur Skarphéðinsson sem
hefði getað orðið riddari mikill,
gripið Ingibjörgu í fang sér og
hlotið þjóðarlof fýrir. En í stað-
inn var hann sá klaufi að Iíta
undan með galopið ginið og
það í beinni útsendingu. Er
Ossur síðan rúinn pólitískri æru
og verður engu um kennt nema
gin- og klaufaveiki - stofni C.
Guðni Agústsson er líka hald-
inn þessum stofni veikinnar því
nýlega opnaði hann á sér ginið
til að tilkynna um að nú skyldi
heimilt að flytja inn fósturvísa
úr norskum kúm. Þeim orðum
mátti hann óðara troða öfugum
ofan í eigið gin þar sem gin- og
klaufaveiki hafði greinst í út-
löndum og þá var klaufinn hann
Guðni ekki lengur ginnkeyptur
fyrir norskum ginagenum.
Verst er þó að vita að maður
sem er svo bullandi, sjóðandi
gin- og klaufaveikur skuli
ganga á milli fjósa og kyssa
mjólkandi kýr. Ef sjúkdómur-
inn berst í skepnur eru úrræði
vor annað hvort engin eða ein
gin.
Verið kœrt kvödd á fyrsta Þórs-
degi í Einmánuði.
ssv
A tvinnuráðgjöf f
Vesturlands
Vesturland
Menningartengd ferðaþjónusta
Málþing á Hótel Borgarnesi, 28. mars 2001
Málþing um menningu og menningartengda ferðaþjónustu verður haldið
á Hótelinu í Borgarnesi miðvikudaginn 28. mars n.k. kl. 13 - 17.
Fyrirlesarar verða:
Karítas Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu
menningarmála, menntamálaráðuneyti.
Stefnumótun í menningarmálum og forsendur samninga
ríkis og sveitarfélaga um menningarmál.
Magnús Sigurðsson, minjavörður Vesturlands.
Fornleifaskráning, saga hennar og mikilvægi fyrir
menningartengda ferðaþjónustu.
Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu í
Reykholti.
Samhengi hlutanna. Menningarminjar, rannsóknir og
miðlun í sínu rétta umhverfi.
Rögnvaldur Guðmundsson, ferðamálafræðingur.
Sagnalist og sjálfsímynd.
Jón Jónsson, þjóðfræðingur og framkvæmdastjóri
Sögusmiðjunnar.
Strandagaldur.
Guðrún Bergmann, Hellnum, formaður
Ferðamálasamtaka Vesturlands og ferðaþjónustuaðili.
Kraftur einstaklingsins í menningartengdri ferðaþjónustu.
Málþingsstjóri verður Sigríður Finsen,
oddviti Eyrarsveitar.
■ í .
E %
Ferðaþjónustuaðilar, sveitarstjórnarfólk
og áhugafólk um menningartengda
ferðaþjónustu er hvatt til að mæta.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til
Upplýsinga- og kynningamiðstöðvar
Vesturlands í síma
437-2214 eða tölvupósti
tourinfo@vesturland.is
fyrir 27. mars.
Þátttökugjald er kr. 1000.
Aðalfundur UKV hefst kl. 18 sama dag.