Skessuhorn - 10.05.2001, Qupperneq 5
úntssunui..
FIMMTUDAGUR 10. MAI 2001
5
Hótel Hellissandur tilbúið
Það var síðastliðinn föstudag að
Hótel Hellissandur hf. hélt hóf fyr-
ir verktakana sem byggðu hótelið á
Hellissandi.
Skúli Alexandersson einn af for-
vígismönnum hótelbyggingarinnar
segir að upphafleg hugmynd að
hóteli á Hellissandi hafi kviknað hjá
sér árið 1996 og hafi hann þá, í
samráði við Magnús Sigurðsson
fisksala í Hafrúnu, farið af stað og
safnað um 20 milljónum í hlutafé.
Þá var hægt að hefjast handa við að
teikna eitt stykki hótel en þremur
árum seinna var fyrirtækið
Loftorka hf. byrjað að steypa út-
veggi. Síðan kom það í hlut Tré-
smiðju Pálmars Einarssonar að
klára hótelið. Skúli segir endanlegt
hlutafé verða um 50 milljónir sem
komi aðallega frá heimamönnum
og brottfluttum Söndurum. Heild-
arkostnaður við hótelið er um 130
milljónir. Skúli segir að reksturinn
verði leigður út í 5 mánuði á ári, frá
1. maí til 30. september, til Eddu-
hótelanna og ekki sé búið að ganga
frá rekstrinum hina 7 mánuði ársins
en þar séu ýmsar hugmyndir á lofti.
Hótelstjóri verður Hildur Yr
Arnarsdóttir sem er ung kona frá
Kópavogi.
SIR
Tengin revkhreinsivirkis í Norðuráli
Gekk framar vonum
Reykhreinsivirki Norðuráls var
stöðvað í tvígang fyrir skömmu á
meðan eldri hluti þess var tengdur
við þann nýja en það er einn mik-
ilvægasti hlutinn af stækkun ál-
versins. Gerðar voru ráðstafanir í
rekstri verksmiðjunnar til að lág-
marka útblástur frá álverinu dag-
ana sem reykhreinsivirkið var
stöðvað og fóru hvorki fram skaut-
skipti né áltaka meðan á verkinu
stóð. Einnig var straumur á kerum
lækkaður til að draga úr hitamynd-
un og framleiðslu. Aðgerðirnar
voru undirbúnar í góðri samvinnu
við Hollustuvernd ríkisins sem
sendi fulltrúa sinn á staðinn til eft-
irlits þegar stöðvunin fór fram.
Aætlanir gerðu ráð fyrir því að
fyrra stoppið myndi taka 7 klukku-
stundir en það tók einungis tæpar
3 klukkustundir og það seinna
rúmlega tvær og hálfa klukku-
stund. Samtals var því rekstur
reykhreinsivirkis stöðvaður í 5 klst
og 35 mínútur en áætlunin hljóð-
aði upp á 12 klst stopp. Stækkunin
í heild gengur vel og eins og áður
hefur komið fram er reiknað með
að gangsetning nýja áfangans hefj-
ist í júní 2001.
SÓK
r
Samfylkingin
á Vesturlandi
www.samfylking.is
Samfylkingarfólk
Snœfellsbœ, Grundarfirði og Stykkishólmi
Stofnfundur Samfylkingarfélags á Snæfellsnesi
verður haldin í Krákunni í Grundarfirði
17. Maí kl 20.30
Dagskrá:
1. Tillaga að lögum félagsins
2. Kosningar
3. Almenn stjórnmálaumræða.
Framsaga: Össur Skarphéðinsson formaður Samfylkingarinnar
Albingispiennirnir:
lónc
: i
..
Jóhann Ársælsson, Gísli S. Einarsson, Karl V. Matthiasson og
Kristján L. Möller sitja fyrir svörum.
MH
Samfylkingin
Breytum rett
v
ATV1NNA - ATV1NNA
Óskum eftir starfsmönnum í slátt
á opnum svæðum oa görðum í
Borgarbyggö
Bílpróf skilyrði
Upplýsingar í síma 866 5238
Þrif ogbiónusta ehf
Olafsvík
Tónleikar
Samkór Selfoss og Kveldúlfskórinn halda
tónleika í Reykholtskirkju laugardaginn
12. maí nk.kl. 16:00.
. Stjórnandi Samkórs Selfoss er Edit Molnar og
undirleikari Miklós Dalmay.
I |8 1
Stjórnandi Kveldúlfskórsins er Ewa Tosik
Warzawiak.
Fjölbreytt efnisskrá.
TTJNDUR
Aðalfundur Kaupfélags Borgfirðinga verður
haldinn að Hótel Borgamesi laugardaginn
12. maí 2001 og hefst hann kl. 10,00 f.h.
Dagskrá er samkvæmt samþykktum félagsins.
Tillaga stjómar um breytingar á
samþykktum félagsins.
Tillaga stjómar um breytingar á
rekstrarformi félagsins.
Borgarnesi, 2. maí2001
Stjórn Kaupfélags Borgfirðinga
Lóðaúthlutun í
Rorgarnesi
1
Borgarbyggð auglýsir til úthlutunar,
íbúðarhúsalóðir við Kvíaholt, Stöðulsholt og
Stekkjarholt í Borgarnesi. Um er að ræða
lóðir undir einbýlishús og parhús, sjú núnar
umfjöllun fasteignablaðs Morgunblaðsins 8.
maí 2001 varðandi ofangreint íbúðarhverfi.
Gatnagerð verður úfangaskipt og dformaðar
framkvæmdir við Kvíaholt í fyrsta úfanga.
Tekið verður á móti umsóknum ú
bæjarskrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut
11-13, 310 Borgarnesi. Byrjað verður að
úthluta lóðum frú og með 17. maí n.k.
Borgarnesi 3. maí 2001
Bœjarstjóri Borgarbyggðar