Skessuhorn - 10.05.2001, Blaðsíða 7
jntastnu..
FIMMTUDAGUR 10. MAI 2001
7
Af vori
Þá er vorið sannanlega
komið. Staðfestingin kemur
ekki einvörðungu með vor-
boða Ijúfum og fiðruðum,
heldur líka í stáldýri ljótu,
mótorknúnu, og heitir
skepnan veghefill. Þetta
fyrirbrigði birtist í uppsveit-
um einu sinni á ári, nema
þegar eru kosningar, þá
tvisvar. A undan veghefli fer
iðulega yfirmaður frá Vega-
gerð sem ákveður hvar skuli
hefla og hvar ekki. Margur
vegagerðarspekúlantinn er
skólaður í faðmi Frímúrara-
reglu og jafnvel kominn þar
á fimmta eða sjötta visku-
stig, sem kemur þessu máli
ekkert við nema að því leiti
að fimmta og sjötta visku-
stig reglubræðranna gefur
ekki endilega bevís á útsjón-
arsemi og verksvit þegar far-
ið er úr mörgæsadressinu og
í gula gallann. Vegagerðar-
mönnum þeim sem pukrast
á mánudagskvöldum í húsi
við Stillholt á Akranesi skal
bent á til uppörvunar (ef ég
hef misboðið þeim með
ummælum mínum hér að
ofan) að viskustigin skila sér
misvel inn í allar starfsstétt-
ir.
Höldum nú út á illfæra
þjóðvegi aftur. Nú er það
svo að oft myndast í vegina
hyldjúp kviksyndi á vorin
þegar klaki fer úr jörðu. Þá
láta vegagerðarmenn sturta
nokkrum bílhlössum af möl
í hverja skvompu, friðlýsa
hauginn og banna hefil-
stjóra að koma nærri þessu
nýreista náttúruundri. Ef
svo ólíklega vill til að maður
nái að þjösnast á ökutæki
sínu upp á hauga þessa þá
maður á brýnt erindi um
veginn, verður því ekki á
móti mælt að útsýni er oft
ægi fagurt af haugum þess-
um og hafa ferðalangar ó-
ljúgfróðir, sem um mína
heimasveit hafa farið að
vori til, fullyrt að af einum
og sama haugnum hafi þeir
séð Tindastól í norðaustri
og Oræfajökul í austri. Ekki
vil ég verða fyrstur til að
segja að þeir skrökvi þessu.
Aftur á móti skal öllum sem
um Hálsasveit aka á þessum
tíma árs bent á að bera á
höfði öryggishjálm því
hæstu haugarnir flútta við
flugleiðina Reykjavík- Ak-
ureyri.
Nú er komið að stóru
spurningunni; Til hvers
notar Vegagerðin veghefla?
Jú, vegagerðarspekúlantinn
mælir út vegarkafla þar sem
snjóruðningstæki veturinn
áður hentu öllum ofaníburði
út fyrir veg, yfir skurð og
langt út í móa. Og nú bíður
heflistjóra erfitt verkefni.
Að hefla það sem ekki er
hægt að hefla. Þó má með
fádæma þolinmæði og yfir-
legu finna nokkur jarðföst
Grettistök í vegstæðinu,
færa upp á yfirborð og
dreifa grjótinu sem víðast
um veginn. Engin furða þó
skólabílstjóri einn sem fer
um veginn oft á dag setti
saman vísu, ákall til sam-
gönguráðherra, þegar bif-
reiðin lét eins og Godzillu-
ungi í körfuboltahrúgu, og
aumingja bílstjórinn sem
hafði fengið sér vel í nefið
áður en lagt var í ófæruna
gat ekki einu sinni snýtt sér
almennilega kílómetrum
saman.
Sturla góður strax í dag
stefnu lát í malinn
geföu okkur asfaltlag
yfir í Reykholtsdalinn
Bjartmar Hannesson
Starfsfólk óskast
Starfsfólk óskast í blönduð störfhjá okkur
t.d. pizzubakstur, aðstoð I eldhúsi,
í sal, við þrif og fl.
• 12tímavaktir
• 6 tíma vaktir
• Helgarvaktir og
afleysingar
Umsækjendur verða að vera orðnir 16 ára.
Upplýsingar gefa Guðmundur eða Margrét
ísíma 437 2345
Gisti- og veitingastaður í Hafnarskógi
1
5IM6NNTUNAR
MIÐSTÖÐIN
NAMSKEIÐ A NÆSTUNNI
Gagnagrunnur - Access ( 5 kest.)
Hraðnámskeið fyrir vana tölvunotendur
miðvikudaginn 9. maí kl. 18-23
Access er forrit sem er sérhannað til að halda utan um gögn
á skipulegan hátt og er tilvalið fyrir nafnaskrár, verðskrár,
lagerskrár o.þ.h.
í Fjölbrautaskólanum á Akranesi
Kennari: Dröfn Viðarsdóttir
Skráning og upplýsingar í síma 437 2390
kl 14 -16
helga@simenntun.is
www.simenntun .is
Borgnesingar!
Við getum haft milligöngu um að
útvega far á námskeiðið.
Örugg leið að losna við
móðu á milli glerja.
Upplýsingar veitir
Magnús Már, 899 4665
MMI ^€>€>5
Verkalýðsfélagið
Hörður
Útleiga á íbúð félagsins að Smárahlíð 5,
Akureyri, sumarið 2001.
Félagsmenn hafaforgang til 20. maí.
Tekið á móti pöntunum ísíma: 437 2345.