Skessuhorn - 19.07.2001, Page 14
14
FIMMTUDAGUR 19. JULI 2001
joOsunu.^.
ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR
w Um hundrað vestlenskir keppendur á Landsmóti á Egilsstöðum
Agætur árangur í mörgum greinum
Gull í badminton, glímu og íþróttum fatlaðra_
Landsmótssveit HSH við setningarathöfnina.
Landsmótssveit UDN.
Hluti landsmótshóps UMSB
Körfuknattleikslið HSH varð f fjórða sæti þrátt fyrir að mæta með aðeins sex
manna hóp. Myndir: Myndsmiðja Austurlands og Veronika Sigurvinsdóttir.
Landsmót Ungmennafélags
íslands, hiö 23. í röðinni, var hald-
iö á Egilsstöðum um síðustu helgi.
Mótið fór vel fram í alla staði að
sögn framkvæmdastjórans Ingi-
mundar Ingimundarsonar úr Borg-
arnesi, en hann var einmitt for-
maður landsmótsnefndar á síð-
asta landsmóti en það var í Borg-
arnesi 1997.
Héraðssamböndin þrjú á Vestur-
landi, Ungmennasamband Dala-
manna, Ungmennasamband
Borgarfjarðar og Héraðssam-
bands Snæfellsness og Hnappa-
dalssýslu, sendu öll harðsnúið lið
til keppni t hinum ýmsu íþrótta-
greinum. Borgfirðingar voru fjöl-
mennastir Vestlendinganna og
sendu 70 manna sveit á mótið.
UMSB átti keppendur í fiestum
greinum frjálsra (þrótta, badmint-
on, körfuknattleik, bridds, íþróttum
fatlaðra, hestaíþróttum, sundi og
Guðmundur Ingi Einarsson náði frá-
bærum árangri í íþróttum fatlaðra.
starfsíþróttum. Bestum árangri
Borgfirðinga náði badmintonsveitin
sem hlaut gullverðlaun á mótinu.
Sveitina skipuðu Diphu Gosh, Geir
Sævar Geirsson, Óli Þór Birgis-
son, Sigríður Bjarnadóttir, Sigríður
Dóra Sigurgeirsdóttir og Guðlaug-
ur Andri Axelsson.
Frjálsíþróttamenn UMSB voru
oft nærri verðlaunapallinum en sá
eini sem náði alla leið var Gauti Jó-
hannesson sem hafnaði í 2. sæti í
5000 metra hlaupi. Hann varð
einnig í 3. sæti í 1500 metra hlaupi
og í því fjórða í 800 m hlaupi. Sig-
urkarl Gústafsson varð í 4 sæti í
400 m hlaupi.
Borgfirðingar í blfðunni á Egiisstöðum.
i sundinu náði Sigurður Guð-
mundsson bestum árangri Borg-
firðinga en hann varð í 2. sæti í
200 m bringusundi. Þá varð Boð-
sundsveit UMSB í 3. sæti í 4 x 100
m fjórsundi.
Guðmundur Ingi Einarsson var
eini keppandi UMSB í íþróttum
fatlaðra og náði glæsilegum ár-
angri, varð í 1. sæti í langstökki og
2. sæti í 60. m. hlaupi.
í hestaíþróttum varð Heiða Dís
Fjeldsted frá UMSB í í 5. sæti.
Körfuknattleiksliðið varð í 7. sæti
og briddsliðið í því níunda. í starfsí-
þróttum náðu þeir Lárus Pétursson
og Sveinbjörn Eyjólfsson bestum
árangri Borgfirðinga. Lárus varð í
fjórða sæti í dráttavélaakstri og
Sveinbjörn í því fjórða í starfs-
hlaupi.
Fámennt körfulið
HSH sendi sextán manna lið á
landsmótið og náði körfuknatt-
leiksliðið bestum árangri.
Körfuknattleiksmennirnir urðu í
fjórða sæti eftir naumt tap gegn
HSV í leik um bronsverðlaun. Það
gerir árangur körfuboltamann-
anna enn glæsilegri að þeir höfðu
einungis sex manna hóp á mót-
inu, þ.e. aðeins einn skiptimann.
Af frjálsíþróttamönnum Snæ-
fellinga náðu þeir Geirmundur
Vilhjálmsson og Benjamín Hall-
grímsson bestum árangri. Geir-
mundur varð fjórði í kúluvarpi og í
sjöunda sæti í spjótkasti en
Benjamín varð í 4. sæti í 100 m.
hlaupi.
í starfsíþróttunum náði Kjartan
Páll Einarsson bestum árangri
Snæfellinga en hann vann silfur-
verðlaun í starfshlaupinu.
Gull í glímunni
Dalamenn mættu með fjórtán
manna sveit á landsmót til keppni
[ frjálsum íþróttum, glímu og
bridds. Bestum árangri náði
glímudrottningin Svana Hrönn
Jóhannesdóttir sem sigraði í
kvennaflokki. í frjálsum íþróttum
náði Jósef Magnússon góðum ár-
angri í langhlaupunum. Hann
varð í fjórða sæti í 5000 m hlaupi
og 1500 m hlaupi og í því sjö-
unda í 800 m hlaupi. Hinn ungi og
efnilegi frjálsíþróttamaður Helgi
Guðmundsson varð í fimmta sæti
í hástökki og sjötta sæti í lang-
stökki en þess má geta að hann
er aðeins sextán ára gamall.
Þess má að lokum geta fyrir þá
sem vilja skoða myndir af lands-
mótinu að þeir geta farið inn á vef
Myndsmiðju Austurlands,
www.mynd.is. GE
Svana Hrönn Jóhannesdóttir glímu-
drottning.
Lottómót á Akranesi
Um helgina fór fram Lottó-Bún-
aðarbankamótið í knattspyrnu á
Akranesi, en þar mæta til keppni
strákar f 7. flokki. Tæplega 800
drengir mættu á mótið en að með-
töldum, þjálfurum, foreldrum,
dómurum og öðrum er talið að um
1300-1500 manns hafi verið á
mótinu. Veður var með besta móti
alla helgina en á síðasta ári riðl-
aðist Lottómótið töluvert vegna
veðurs. Framkvæmd og skipu-
lagning mótsins þóttu einnig vera
með ágætum en foreldrar strák-
anna í ÍA áttu stóran þátt í því.
Bestum árangri Skagamanna
náðu strákarnir í C-liði en þeir
höfnuðu í öðru sæti eftir að hafa
tapað fyrir Víkingum í æsispenn-
andi leik. SÓK
Sigurvegarar C - liða, ÍA