Skessuhorn

Eksemplar

Skessuhorn - 11.10.2001, Side 4

Skessuhorn - 11.10.2001, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 11. OKTOBER 2001 jivtasinu^ WWW.SKESSUHORN.IS Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040 Fox: 431 5041 Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222 Skrifstofur blaðsins eru OPNAR KL. 9- 16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040 Ritstjóri og óbm: Gisli Einarsson 892 4098 ritstjori@skessuhorn.is Blaðamenn: Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 1310 sigrun@skessuhorn.is Sigurður Múr, Snæfellsn. 865 9589 smh@skessuhorn.is Auglýsingar: Hjörtur J. Hjarlarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is Prófarkalestur: Sigrún Ósk Kristjónsdóttir Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir ougl@skessuhorn.is Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Blaðiö er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr. 431 5040 Hvis du ikke kanvinde Engum blöðum er um að fletta hver hefur verið mesta smán okkar Islendinga í 34 ár. Að sjálfsögðu fjórtántvö tapið gegn Dönum í knattspyrnu. Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég hef allt mitt líf gengið dálítið hokinn. Fjórtántvö er okkar brennimerki, okkar gyðingastjarna og hvar sem við förum meðal annarra þjóða leynir það sér ekki að það vorum við sem lutum svo gjörsamlega í gras fyrir Dönum að grasið hefur aldrei vaxið aftur á þessum bletti. Frá fæðingu hef ég alið í brjósti mér þá von að ein- hverntíma myndi okkar tími koma og stund hefndarinnar runnið upp og ég geti loks farið að ganga uppréttur. Eg hef kannski ekki verið sannfærður um það en vongóður og í hvert sinn sem við mætum Dönum á knattspyrnuvellinum leyfi ég mér að óska þess að núna sé stundin runnin upp. Eg hef allavega verið alveg öruggur um að ósköpin myndu ekki endurtaka sig. Kannski finnst sumum sexnúll ekki mikið miðað við fjórtántvö en uppfært á núvirði með tilliti til vinstri- fótarvísitölu og nastakk þá er sexnúll ekkert betra en fjórtántvö, nema síður sé. Skömmin er uppfærð og endurnýjuð og hvert sem maður snýr sér heyrir maður danskan hlátur óma í eyrum sér eins og það er nú skemmtilegt áheyrnar. Niðurlægingin er þvílík að maður getur ekki einu sinni látið sjá sig í Kristjaníu eða Ystugötu næstu mánuðina. Þessi hroðalegu hryðjuverk á knattspyrnuvellinum kalla vissulega á róttækar aðgerðir. Að sjálfsögðu hlýtur landsliðsþjálfarinn að segja af sér innan viku og taka út sína refsingu með samfélagsþjónustu, t.d. dönskukennslu í grunnskólum en það er alls ekki nóg. Það þvær ekki af okkur þennan smánarblett. Það verður að byrgja markið áður en Baunarnir bauna á okkur næst. Þá kemur til hið fornkveðna: “If you can't beat them, (sem er nú nokkuð útséð með) then join them” eða öllu heldur: “Hvis du ikke kan vinde dem sá forene med dem.” Það er því ekki eftir neinu að bíða að við afsölum okkur sjálfstæði, eða því sem eftir er þ.e.a.s. og skundum hið snarasta á fund Margrétar Þórhildar Friðriksdóttur og beyðumst náðarsamlegast inngöngu í hennar sveitarfélag. Ef við hittum vel á hana getum við hugsanlega fengið það inn í samninginn að við fáum að leggja til einn landsliðsmann í danska knattspyrnulandsliðið. Til að halda í gamlar hefðir og viðhalda lýðræðislegri vellíðan mætti síðan kjósa hann í þjóðaratkvæðagreiðslu. Gidsl Ejnarsson, redaktr av ugebladet Troldhjomet Iþróttahúsið við Vestur- götu fær andhtslyftingu Viðgerðir á norðurhlið íþrótta- hússins við Vesturgötu standa nú yfir en framkvæmdir við lagfæringar hússins hafa staðið yfir í sumar. A- ætlað er að framkvæmdimar á hlið byggingarinnar, sem kosta um 12 milljónir króna, ljúki um næstu mánaðamót. Ekki hefur verið ákveðið hvenær aðrar viðgerðir á húsinu verða en ljóst þykir að um dýrar framkvæmd- ir er að ræða. Hörður Jóhannesson, rekstrar- stjóri íþróttahússins og Bjamalaug- ar, segir að töluvert hafi vantað upp á að nauðsynlegt viðhald á húsinu hafi farið fram. „Það kostar mikið að gera við húsið og því hafa viðgerð- irnar verið gerðar í áföngum. Það lá kannski mest á að gert yrði við norðurhliðina þar sem gmnur lék á þar væri uppspretta leka sem við urðum varir við.“ Auk yfirstandandi viðgerða verður bflaplanið við hús- ið malbikað þegar vinnupallarnir hafa verið fjarlægðir. HJH Bumbur barðar Onæðifrá rúntinum Töluverðar umræður hafa verið á umfræðuvef Akraneskaupstaðar að undanförnu um umferð um Kirkjubrautina. Mikið hefur verið kvartað um jarðskjálftaáhrif vegna þungaflutninga eftir götunni og einnig vegna hávaða frá rúntinum svokallaða. Björn S. Lárusson á Kaffi 15 komst þannig að orði um „stóra rúntmálið“. Ohugnarlegar drunur heyrast í fjarska eins og ver- ið sé að berja stórar bumbur í myrkviðum Afríku. Hljóðið kemur nær og nær og verður eins og takt- fastar sprengingar. Óttaslegnir íbú- ar og vegfarendur á Kirkjubraut / Skólabraut líta hver á annan. Mað- ur ímyndar sér að hvað úr hverju hlaupi hálfnaktir svertingjar með bumburnar og spjót eftir götunni eða að verið sé að kasta sprengjum á allt kvikt í götunni. Hljóðið er orðið ærandi svo undir tekur í göt- unni og það glamrar í búsáhöldum í hillum. - En, eftir götunni kemur lítill japanskur bíll - troðfullur af hátölurum á snigilshraða og farþegi og ökumaður vita hvorki í þennan heim né annan þar sem þeir sitja í miðjum sprengjulátunum. Hljóðið fjarlægist og verður ems og lágvær sprengjugnýr í Balkanskaga - þar til hann magnast á ný þegar litla jap- anska bflnum er snúið við á enda götunnar...“ GE Samningsdrög að yatnsútflutningi Eins og Skessuhorn hefur greint frá stendur til að reisa vatnsverk- smiðju á Rifi með vatnsútflutning til Bandaríkjanna og Bretlands í huga. A fundi bæjarstjórnar Snæ- fellsbæjar þann 3. október sl. var bréf frá Birni I. Stefánssyni tekið fyrir en þar eru samningsdrög út- flutningsaðila og Snæfellsbæjar varðandi fyrirhugaðan vatnsút- flutning og lóðasamning sett fram. Var bæjarstjóra, í samvinnu við lög- mann bæjarins, falið að fara yfir samningsdrögin og skila skýrslu um þau á næsta fund bæjarstjórnar. smh Leitað að loðnu Skip HB hf., Víkingur AK, leit- aði í síðustu viku að loðnu á stóru svæði út af Vestfjörðum og austur með Norðurlandi. Víða sást spark og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu HB hf. taldi Viðar Karlsson, skipstjóri, að talsvert magn af loðnu væri á ferðinni. Loðnan var þó hvergi í þéttum torfúm og því ekki veiðanleg. Hita- stig sjávar virtist ekki nógu lágt til þess að hún þétti sig. Togarar á Vestfjarðamiðum fóru þó að verða varir við loðnu í þéttari torfum ný- verið og er því ekki útilokað að loðna fari að veiðast. Annað skip HB hf., Sturlaugur H. Böðvarsson AK, landaði í síð- ustu viku rúmum 90 tonnum af ís- uðum fiski. Þar af rúmum 40 tonn- um af þorski, 40 tonnum af karfa oglOafufsa. SÓK Magnús í starf markaðsfulltrúa Magnús Magnússon rekstrar- fræðingur hefur verið ráðinn í starf markaðsfulltrúa Akranes- kaupstaðar á meðan Rakel Ósk- arsdóttir, sem gegnt hefur starf- inu undanfarna sex mánuði, er í barnseignarfríi. Magnús, sem einnig er framkvæmdastjóri Is- lenskrar upplýsingatækni, kemur til með að vera í hálfu stöðugildi á meðan hann leysir Rakel af. Fastir viðverutímar hans á skrif- stofu Akraneskaupstaðar eru á þriðjudögum og fimmtudögum, en þeir sem þurfa að ná í mark- aðsfulltrúann utan þess tíma er bent á að hringja í síma 894 Viðbótarlán á næsta ári Sóttum sextíu milljónir Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að heimila húsnæðisnefnd að ráðstafa mót- firamlagi vegna 4 milljóna króna viðbótarláns og að sækja um 60 milljónir króna í viðbótarlán á næsta ári, en á fúndinum var tek- ið fyrir bréf félagsmálastjóra sem óskaði efdr afstöðu bæjarráðs til þess hvort sótt yrði um aukaút- hlutun viðbótarlána fyrir næsta ár. Eiríkur hafnarvörður Hafnarstjórn Akraness sam- þykkti á síðasta fúndi sínum að ráða Eirík Jónsson í stöðu hafnar- varðar bæjarins. Alls bárust þrjár umsóknir um stöðuna, en hinar tvær voru frá þeim Valentínusi Ó- lafssyni og Birgi Sveinssyni. SOK Björgunaræfing á Snæfellsnesi Laugardaginn 13. október n.k. verður haldin mjög umfangsmikil björgunaræfing á Snæfellsnesi. Um er að ræða landsæfingu Slysavarnafélagsins Landsbjargar en í henni taka þátt björgunar- sveitir frá öllum landshlutum auk fjölda annarra viðbragðsaðila svo sem lögreglu, slökkviliðs, heil- brigðisstarfsmanna, Landhelgis- gæslu og varnarliðiðsins á Kefla- víkurflugvelli. Margskonar krefjandi verkefni verða þreytt á æfingunni, jafnt í lofti, á láði sem á legi og er þetta einn umfangsmesti viðburður á sviði björgunarmála á þessu ári. Áædað er að á fimmta hundrað manns komi að æfingunni. Klukkan 10:00 þennan sama dag verða þjálfunarbúðir Slysa- varnafélagsins Landsbjargar að Gufúskálum vígðar af Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra. GE

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.