Skessuhorn

Eksemplar

Skessuhorn - 11.10.2001, Side 16

Skessuhorn - 11.10.2001, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 ontsðunui.. Umsókn um byggingarleyfi við Grundargötu 69 Ahrifakonur Umsókn hefur borist Skipulags- og byggingarnefnd Eyrarsveitar frá Páli Harðarsyni fyrir hönd Vestur- vals ehf, um leyfi til byggingar íjöl- býlishúss að Grundargötu 69 í Grundarfirði. Um er að ræða um- sókn um byggingu tveggja hæða húss með fjórum íbúðum á þeim stað sem nú stendur húsagrunnur, en það var fyrirtækið Sprettur- Grundarfjörður sem byggði hann. Vísar nefndin í bréf byggingar- fulltrúa frá 26. mars 1999: „Til- Sjötta starfsár Tilveru í Grundar- firði er nú að hefjast. Frá upphafi hafa þær Hildur Sæmundsdóttir og Ingibjörg Þórólfsdóttir staðið á bak við starf Tilveru en þær hættu störf- um í vor. Til starfa taka nú þær Þórey Jónsdóttir, María Guð- mundsóttir og Kolbrún Haralds- dóttir. Starf Tilveru miðast í stórum dráttum við að auka sjálfstraust ung- linga og kenna þeim að fást við ó- þekktar aðstæður, bæði stórar og smáar. Síðustu ár hefur Tilvera beint spjótum sínum að því að virkja foreldra til að vinna saman og þá Málþing í Snorrastofn Á málþinginu sem haldið verður í Snorrastofu laugardaginn 13. októ- ber n.k. kl. 17.30. verður sjónum einkum beint að því umhverfi sem trúarkvæði á fyrri tíð spruttu úr og kynning urn afgreiðslu á bygging- arleyfi,“ þar sem skilyrði fyrir veit- ingu byggingarleyfisins voru tíund- uð er fyrirtækið Sprettur hugðist byggja húsnæði að Grundargötu 69. I fundargerð Skipulags- og byggingarnefndar frá 12. septem- ber sl. kemur fram að nýtt bygging- arleyfi sé háð því að sörnu skilyrði verði uppfyllt, ásamt frekari skil- yrðum byggingarfulltrúa, auk þess sem sýnt verði fram á uinboð Páls frá eiganda. smh ekki síst að vímulausum grunnskóla. Tilvera hefur fengið fjölda viður- kenninga fyrir starf sitt s.s. frá sam- tökunum Heimili og skóli og þá hefur félagsskapurinn tvisvar hlotið stóran styrk ffá Áfengis- og vímu- varnarráði. Hafa þeir styrkir verið notaðir til að þróa starfið inn í námsefnið lífsleikni, sem kennt er í grunnskólanum, og í fýrra kostaði Tilvera svo tvo kennara á sjálfstyrk- inganámskeið. Nær allir þéttbýlis- staðir landsins hafa sett sig í sam- band við Tilveru, kynnt sér starf- semina og tekið upp þá þætti sem þeim hentar. hlutverki þeirra í trúarlífi og samfé- lagi. Fjallað verður um trúarkveð- skap allt frá Geisla Einars Skúlason- ar til kvæða Hallgríms Péturssonar. Fyrirlesarar verða: Martin Chase, Gunnar F. Guðmundsson, Sverrir Tómasson, Margaret Cormack, Guðrún Nordal, Einar Sigur- björnsson, Kristján Valur Ingólfs- son og Margrét Eggertsdóttir. (Fréttatilkynning) Námskeið í Borgarnesi fyrir konur sem vilja hafa áhrif Ráðherraskipuð nefnd um auk- inn hlut kvenna í stjórnmálum hef- ur staðið fýrir námskeiðinu Efling stjórnmálakvenna, félagsmál, ræð- ur, greinar og fjölmiðlar. Nám- skeiðið hefur verið haldið í Reykja- vík, á Isafirði, Egilsstöðum, Akur- eyri og nú er komið að því að halda það í Borgarnesi 15. og 16. október. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Símenntunarmiðstöðina og fer skráning fram í síma 4372390. Námskeiðið er sérstaklega ætlað konum í stjórnmálum en er opið öllum konum sem vilja hafa áhrif á samfélagið. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og fá þátttak- endur þjálfun í stjórnmálalegri vinnu, ræðuflutningi, greinaskrif- um og samskiptum við fjölmiðla. Hlutur kvenna í sveitarstjómum á Is- landi er aðeins 29%. Konur sem starfa í sveitarstjórn- um eru aðeins 213, en karlar í sveit- arstjórnum eru 543. Alls 15 sveitar- félög hafa enga konu í sveitarstjórn og 59 sveitarfélög hafa einungis einni konu á að skipa. Konur eru helmingur þjóðarinnar og þar sem konur og karlar hafa ekki sama uppeldislega bakgrunn er brýnt að fleiri konur taki þátt í að móta og bæta samfélagið sem við búum í. Markmiðið er að bæði kynin taki sameiginlegar ákvarðanir til hags- bóta fýrir heildina. Nefnd um auk- inn hlut kvenna í stjórnmálum hef- ur óskað eftir því við sveitarfélögin í landinu að þau styrktu stjórnmála- konur sínar til þátttöku á nám- skeiðum nefndarinnar. Mörg sveit- arfélög hafa tekið jákvætt í beiðni nefndarinnar og greitt þátttöku- gjald. Námskeiðið Ræður og greinar þurfa að vera skipulagðar og markvissar til að ná eyrum áheyrenda og lesenda. Fjall- að verður um byggingu ritsmíða og bent á einfaldar lausnir til að hefjast handa við að setja fram hugmyndir. Farið verður í helstu þætti skýrrar og skipulegrar framsagnar; að tjá og miðla, framkomu, framburð, á- herslur, hljómfall, hikorð og kæki. Fjallað verður urn fundi og fundar- stjórnun í nefndum og ráðum, á- byrgð, skyldur, afgreiðslu mála og verksvið. Farið í nýjar leiðir til þess að nýta tíma og auka árangur. Skoðað verður hvernig mynd fjöl- miðlar draga upp af konum í stjórn- málum og hvernig þær geti aukið hlut sinn og koinið skilaboðum sín- um betur á framfæri. Rætt hvaða at- riði skipta máli þegar farið er í sjón- varpsviðtal. Kennarar í fremstu röð Kennarar á námskeiðinu eru Sig- rún Jóhannesdóttir M.Sc. í kennslutækni, Ingibjörg Frímanns- dóttir málfræðingur, Guðlaug Guðmundsdóttir íslenskufræðingur og dr. Sigrún Stefánsdóttir fjöl- miðlafræðingur og yfirmaður upp- lýsingadeildar Norrænu ráðherra- nefndarinnar og Norðurlandaráðs. Opinn fimdur um þátttöku kvenna í stjómmálum I tengslum við námskeiðið verður opinn fundur um þátttöku kvenna í stjórnmálum þriðjudaginn 16. októ- ber kl. 16.30 á námskeiðstaðnum í Félagsbæ, Borgarbraut 4, Borgar- nesi. A fundinum munum við ræða aðgerðir til að auka hlut kvenna í stjórnmálum. Umsjón og nánari upplýsingar: Una María Oskarsdóttir uppeldis- og menntunarfræðingur, verkefnis- stjóri nefndar um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum. Sími: 560 9100/9115. Netfang: fleirikonuristjornmal@fel.stjr.is (Fréttatilkynning) Tónleikar í Borgarneskirkju Tónlistarfélag Borgarfjarðar hefur nú sitt 35. starfsár með tón- leikum í Borgarneskirkju föstu- dagskvöldið 12. október nk. Þar munu þeir Haukur Guðlaugsson orgelleikari og sr. Gunnar Björns- son sellóleikari flytja fjölbreytta tónlist auk þess sem sr. Gunnar mun ræða við áheyrendur um verkin og höfunda þeirra. Lista- mennirnir eru að góðu kunnir og hafa báðir haldið fjölda tónleika bæði heima og erlendis. Sr. Gunn- ar lék um árabil með Sinfóníu- hljómsveit Islands og Haukur var söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og skólastjóri Tónskóla þjóðkirkj- unnar á árunum 1974 - 2001. Tónleikarnir í Borgarneskirkju hefjast kl. 20.30. Nýjar konur í Tilveru Grundarfjarðar SENDIBILL * með lyftu Tek að mér alla alhliða flutninga. Þorsteinn Arilíusson, Borgarnesi Símar: 861 0330 og 437 1925 * Einangrunargler Öryggisgler Speglar Fljót og góð þjónusta Sendum á staðinn Ægisbraut 30 • Akranesi • Sími 431 2028 • Fax 431 3828 Búsáhöld ¥ Gjafavara ^Uiikfön£j*|5 HAUKS Sími 437 1125 Verslið við heimamenn. VÖRUFLUTNINGAR J j j IVESTURLANDS m n|K Sólbakka 7-9 S: 437 2030 - Fax: 437 2243 Afgreiðsla í Reykjavík: Vöruflutningamiðstöðin. JÁRNSMÍÐAR skarði9VarSSOn’ ÖRMERKINGAR Lundarreykjadal se”SX Sími/Fax 435-1391 örmerki hross Netfang: skard@aknet.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.