Skessuhorn - 11.10.2001, Page 20
TOYOTA salurinn Borgarnesi
Brúartorgi 4
Sími 437 1055
Fax 437 1060
'borgarnes@toyota.is
PÓSTURINN
Þú pantar.
Pósturinn afhendir.
m
www.postur.is
Landf/utningar
/SAMSKIP
Heimsending um allt land ingjaáil 2, 310 Borgames, síml 437 2300, fax 437 2310
Hvítársíða
haíhar við-
ræðum
Eins og sagt var frá í Skessuhorni
fyrir skömmu óskaði Borgarbyggð
eítir formlegum viðræðum um
sameiningu við Hvítársíðuhrepp.
Hreppsnefnd Hvítársíðuhrepps
hefur svarað erindinu og hafnar
slíkum viðræðum. Því er fátt sem
bendir til að breytingar verði á
samsetningu sveitarfélaga í Borgar-
fjarðar og Mýrasýslu fyrir næstu
sveitarstjórnarkosningar sem verða
næsta vor. Engar formlegar við-
ræður eru í gangi milli sveitarfélaga
á svæðinu og samkvæmt upplýsing-
um Skessuhorns er ekkert sem
bendir tdl að slíkar viðræður verði
teknar upp á næstunni.
A Snæfellsnesi hafa hinsvegar átt
sér stað viðræður um hugsanlega
sameiningu milli Stykkishólmsbæj-
ar og Helgafellssveitar og í vor
hófust sameiningaviðræður milli
Saurbæjarhrepps, Dalabyggðar og
Reykhólahrepps. Búast má við að
það skýrist fyrir áramót hvort af
þessum sameiningum verður. GE
Unmð að þvi að reka mðnrþil i Norðurgarð Grundarfjarðarhafiiar í síðustu viku.
Vandræði við hafiiarframkvæmdir
Lá viö slysi er krani brotnaöi í Grundarfiröi
Á miðvikudaginn í síðustu viku
varð það óhapp, við ffamkvæmdir
vegna lengingar á Norðurgarði
Grundarfjarðarhafnar, að bóma á
krana sem vann við það að reka nið-
ur stálþil slitnaði og féll út í sjó.
Voru menn að störfúm rétt við en
gátu forðað sér vegna þess að bóm-
an féll hægt í fyrstu eða þangað til
vírinn var runninn út. Var aftur byrj-
að að reka þilin daginn eftir en verk-
ið gekk ekki sem skyldi vegna þess
að í óveðrinu á dögunum hafði færst
til efhi úr fyllingunni á þann stað þar
sem þilin eru rekin niður. Þurfti því
að taka fáein aftur upp en nú hefur
verið skrapað undan þiljunum og
aftur hafist handa við að reka þau
niður. Þilin eru um 18 metra löng og
um 3,8 tonn á þyngd. smh
Björgunar-
hring stolið
Um síðustu helgi var björgunar-
hring stolið úr hylki á Borgarfjarð-
arbrú. Lögreglan í Borgarnesi bið-
ur þá sem einhverjar upplýsingar
geta gefið um málið að hafa sam-
band en spjöll á öryggisbúnaði eru
sem kunnugt er litrin alvarlegum
augum af flestum. GE
S
Uppskeruhátíð Knattspymufélags IA
Gunnlaugur og
Ellert bestir
Gunnlaugur Jónsson
Uppskeruhátíð Knattspyrnufé-
lags IA var haldin síðastliðið laugar-
dagskvöld á skemmtistaðnum
Breiðinni á Akranesi. Að vonum var
samkoman vel sótt og glatt á hjalla
enda hafa knattspymumenn á Skag-
anum ærið tilefni til að gleðjast nú.
Páll Gísli Jónsso n
Ellert Bjömsson
Pétur Ottesen stjórnaði samkom-
unni af sinni alkunnu mýkt og fimi
og leikmenn meistaraflokks IA létu
gamminn geysa ásamt Gísla Gísla-
syni bæjarstjóra og fleirum.
Að vanda voru veittar viðurkenn-
ingar fyrir afrek sumarsins í 2. flokki
og meistaraflokki en báðir flokkam-
ir lönduðu Islandsmeistaratitli auk
þess sem 2. flokkur varð einnig bik-
armeistari. 1 öðmm ftokki var Páll
Gísli Jónsson valinn efnilegasti leik-
maðurinn og Ellert Björnsson sá
besti. Ellert var einnig valinn efni-
legasti leikmaður meistaraflokks en
það kom fæstum á óvart að fyrirlið-
inn Gunnlaugur Jónsson hlaut hinn
eftirsótta titil, leikmaður IA árið
2001. GE
Ný aukabúgrein
Undanfarnar vikur hafa bændur
víða um land verið að safna hvann-
arfræjum og verið er að kanna
möguleika þess að rækta ætihvönn-
ina í lækningaskyni.
Þetta er gert fyrir fyrirtækið
Heilsujurtir ehf, sem stofnað var að
fmmkvæði Sigmundar Guðbjarnar-
sonar er hefur rannsakað lækninga-
mátt íslenskra jurta síðastliðin 10 ár.
Heilsujurtir ehf og Landbúnaðarhá-
skólinn á Hvanneyri vinna saman að
þessu verkefni þar sem ráðgjöf er
veitt á Hvanneyri og fullþurrkun
hráefnis fer einnig fram þar. Þetta er
vel við hæfi þar sem nafnið Hvann-
eyri er einmitt dregið af þessari jurt.
Söfnun hvannarfræja
Komið hefur í ljós að hvannarblöð
og fræ ásamt vallhumli innihalda
effii sem vinna vel gegn óeðlilegri
frumufjölgun, s.s. gegn ýmis skonar
krabbameini. Söfnun ætihvannar-
fræja/-blaða hófst í þessu skyni á síð-
astliðnu ári. Flestir hafa tínt og
þurrkað ffæin heima við og sent þau
síðan til Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri þar sem þau em full-
þurrkuð. Eftir það er magnið vegið,
skráð og pakkað til flutnings í
Mjólkursamlagið í Búðardal, þar
sem fullvinnsla afurða og átöppun
fer ffam.
Líta má á þetta sem nýja aukabú-
grein því bændur fá greitt fyrir hvert
þurrkað kíló. Fræjum er safnað frá
ágústmánuði og fram í október.
Pmfukeyrsla á þessu ferli fór ffam
síðastliðið sumar og nú er stefnt að
meiri ffamleiðslu. Enn er efhainni-
hald ffæjanna í rannsókn og verið er
að meta gæði þeirra eftir ræktunar-
svæðum, þroska og meðferð. Sem
liður í því er Nýsköpunarverkefhi
Gunnfríðar Hreiðarsdóttur nema
við Landbúnaðarháskólann, en hún
hefur í sumar verið að vinna að sán-
ingu og ræktun ætihvannar og fylgst
með uppvexti og þroska jurtarinnar.
Verkefnið er einnig liður í því að
kanna möguleika þess að rækta æti-
hvönnina til slíkra nytja.