Skessuhorn - 06.11.2002, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002
§K£SS!iH©BH
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 892 4098
Blaðamaður: Hjörtur J. Hjartorson 864 3228
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjortarson 864 3228
Próforkolestur: Anna S. Einorsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
anna@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta ouglýsingapláss tímamega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu.
Áskriftarverð er 850 kránur með vsk. á mánuði en krónur /50 sé greitt með greiðslukorli. Vetð
í lausasölu er 250 kr.
431 5040
ritstjóri.
Þessa dagana er hvergi matarlegra um að litast en á lögreglu-
stöðinni í Borgarnesi, af öllum stöðum. Þar hefur hlaðist upp á
undanförnum vikum kjötfjall, illklífanlegt. Þetta kjöt er nýtt og
ferskt sem best getur verið og nýkomið af fjalli. Nánar tiltekið af
Holtavörðuheiði. Þar hafa lögregluþjónar verið í eftirleit en ólíkt
hefðbundnum smölum sem þurfa að ráfa um heiðarlönd og hlaupa
uppi kindur og hross og slátra síðan með tilheyrandi veseni þegar
komið er til byggða þá notar Borgarneslögreglan nýstárlegri að-
ferðir og smalar skepnunum dauðum og flegnum út úr sendiferða-
bílum. Afraksturinn hefur verið þvílíkur að án efa þarf að kalla til
aðstoð frá Ríkislögreglustjóra við kjötvinnsluna. An efa gæti það
líka verið verðugt verkefhi fyrir hæstvirtan dómsmálaráðherra að
setjast niður dagstund í Borgarnesi og sauma vambir!
Ekki hvarflar að mér að gera lítið úr kjötglæpum þeim sem upp-
rættir hafa verið á síðustu vikum af vöskum laganna vörðum í
Borgarnesi. Því síður ætla ég að mæla því bót að flutt sé á milli
landsvæða og jafhvel af riðusvæðum kjöt af heimaslátruðu. Það
getur verið hættulegur leikur.
Hinsvegar hafa þessi mál og sú umræða sem ávallt kemur upp
um heimaslátrun í heimasláturtíðinni orðið þess valdandi að ég
hef fengið ómældan áhuga á reglugerðum. Sú staðreynd að bænd-
ur og búalið mega úða í sig keti af lömbum sem þeir hafa sjálfir
murkað lífið úr bak við hús svo lengi sem ketið sé étið heimavið er
ekki skrítnasta dæmið um tvískinnung reglugerða. Samt er það
nokkuð skrítið að bóndinn í Hægra Heygarðshorni megi taka af
lífi hálfa hjörðina sína úti í skúr með eigin hendi og bjóða síðan til
hundrað manna veislu án þess að nokkur geri athugasemd við það
en ef sami bóndinn ætlar að senda syni sínum í Barmahlíðinni eitt
magurt læri af lambi sem hlotið hefur sömu örlög og hin sem fyrr
er getið þá er kjötið allt í einu orðið baneitrað og kolólöglegt. A
sama hátt væri mér heimilt að baka kleinur og bjóða öllum lesend-
um Skessuhorns í kaffi heima í eldhúsi. Ef það hvarflaði hinsveg-
ar að mér að selja sömu kleinurnar sem ég bakaði af alúð og natni
til að drýgja tekjur fátæks héraðsfréttablaðs þá væru þessar klein-
ur orðnar stórhættulegar.
A sama hátt á ég erfitt með að skilja að bjór sem seldur er í gler-
flöskum sé ekki hæfur til neyslu nema veitingastaðurinn þar sem
hann er sötraður geti státað af að minnsta kosti hálftum tug hand-
lauga og fleiri salerunum en gerð er krafa um á meðal útihátíð.
Nú háttar því þannig til að eitt af mínum helstu áhersluatriðum
í leik og starfi er að fá nóg að éta og helst sem oftast. Eg hef étið
á ólíklegustu stöðum og við afar mismunandi aðstæður. Ég hef
úðað í mig allskonar ómeti í útlöndum sem ég þorði ekki einu
sinni að spyrja hvað innihéldi, ég hef étið flestar skepnur íslensk-
ar sem ætlaðar eru til manneldis og ekki endilega litið á heilbrigð-
isvottorðið áður en ég át. Ég hef drukkið kaffi og etið kleinur í
ýmsum skúmaskotum en aldrei orðið misdægurt utan einu sinni er
ég fékk hrottalega matareitrun og fýlgdi henni lítil hamingja svo
ekki sé meira sagt. Það bætti líðan mína lítið á þeim tíma að þetta
var heilbrigðisvottuð matareitrun af bestu svort fram reidd á lög-
giltum veitingastað með bunka af heilbrigðisreglugerðum.
Heilbrigðisreglugerðir eiga að sjálfsögðu að vera til að tryggja
heilbrigði eftir því sem kostur er en ekki til að hefta framfarir og
atvinnuuppbyggingu.
Gísli Einarsson, heilbrigðisvottaður.
Heimaslátrað kjöt
gert upptækt
Síðastliðinn sunnudag stöðvaði
Borgarneslögregla sendiferðabif-
reið í Norðurárdal á leið til Reykja-
víkur. I bílnum reyndist vera kjöt af
heimaslátruðu ásamt innmat og
sviðalöppum. Um var að ræða 5
skrokka af hrossakjöti og fimm
lambskrokka.
Að sögn Steinars Snorrasonar
varðstjóra í Borgarneslögreglu kom
ábending frá lögreglunni á Blöndu-
ósi um umrædda kjötflutninga en
óheimilt er að flytja kjöt af heima-
slátruðu út af lögbýlum. Talið er að
kjötið komi af svæði þar sem riðu-
veiki hefur komið upp á undan-
förnum árum og því er málið litið
enn alvarlegri augum. Þetta er í
annað sinn á stuttum tíma sem
Borgarneslögregla gerir upptækt
kjöt af heimaslátruðu. Kjötinu hef-
ur verið fargað.
GE
Smalahundakeppm að
Hraunsmúla
Verðlaunahafamir
Landskeppni Smalahundafélags
Islands fór fram að Hraunsmúla ný-
lega. All margir smalar komu með
hundana sína og að sjálfsögðu varð
úr hin besta sýning fyrir áhorfendur
sem fjölmenntu og skemmtu sér vel.
Að lokinni keppni sýndi Svanur
Guðmundsson hvemig hann stjóm-
ar hundi gegnum talstöðvarsam-
band og tókst það vonum framar hjá
honum. Slíkt hentar vel hér á landi
því lognið vill stundum vera á ferð-
inni og gerir þar með smölum erfitt
fyrir að tjá sig við hundana.
Fyrri daginn fór fram unghunda-
keppni og röðuðu keppendur sér
þannig. 1. sæti Brynjar Hildibrands-
son með Gutta 2. sæti Kristján Sig-
urvinsson með Snoppu 3. sæti Svan-
ur Guðmundsson með Sunnu og í 4.
sæti Gísli Þórðarson með Spólu.
Seinni daginn kepptu síðan þeir sem
komust í 6 manna úrsht í almenna
flokknum . 1. sæti Svanur Guð-
mundsson með Skessu, 2. sæti Anna
Dóra Markúsdóttir með Kát 3. sæti
Guðmundur Guðmundsson með
Sokka 4. sæti Gísli Þórðarson með
Tinnu 5. sæti Valgeir Magnússon
með Skottu og 6. sæti Svanur Guð-
mundsson með Vask.
EK
Bílprófsstyrkur
Þrjú ungmenni úr Borgarfirði
varu dregin úr pottinum þegar
deilt var út bílprófsstyrk Búnað-
arbankans og Heklu í síðustu
viku. Styrkurinn nemur 15 þús-
und krónum og einnigfá þau 15
þúsund króna inneign sem nýtist
ef keyptur er btll hjá Heklu.
Frá vinstri: Fannar Kristjánsson,
Sóley Baldursdóttir og Ingólfur
Hólmar Valgeirsson.
Mynd:GE
Hafist var handa við dýpkun Akraneshafnar a drjgunwm en Hafnarstjóm Akraness sam-
þykkti nýverið áfundi sínum að taka tilboði Hagtaks upp á tæpar 56 milljónir. Aætluð
verklok dýpkunarinnar er í aprtl á nœsta ári. HJH
Hálfrar aldar
afinæli Stak
Starfsmannafélag Akraness fagnar um
þessar mundir 50 ára afmœti sínu og
afþví tilefni bauðfélagið til glæsilegs
kajfisamsœtis si. laugardag í sal Fjöl-
brautaskóla Vesturlands. Einnig var á
sama stað sett upp skemmtileg sýning á
bréfitm og öðrum gögnum félagsins í
gegnum tíðina. Fjölmargir félagsmenn
lögðu leið sína i fjölbrautaskólann auk
þess sem Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB, hélt stutta ræðu og farði
St.Ak. málverk að gjöffyrir hönd
BSRB. HJH
Drykkja og
rúðubrot
Ur dagbók lögregl-
unnar á Akranesi
Sl. föstudagskvöld hafði lög-
regla afskipti af ungmennum sem
voru við drykkju á götum bæjar-
ins. Hald var lagt á áfengi og for-
ráðamenn og félagsmálayfirvöld
látin vita.
Lögreglu var í þrígang tilkynnt
um eignaspjöll í vikunni sem leið.
Tvisvar voru brotnar rúður í
Brekkubæjarskóla og í einu til-
felli brotin rúða í biffeið.
Talsvert er um að Ijósabúnaði
bifreiða sé áfátt og hafði lögregla
afskipti af nokkrum ökumönnum
sem var bent á að lagfæra ljósa-
búnað hið snarasta. Helst var um
að ræða sprungnar perur en á-
stæða er tdl að hvetja ökumenn til
þess að huga að ljósabúnaði nú í
skammdeginu. Þá er ekki síður
mikilvægt að gangandi vegfár-
endur, ungir sem aldnir, noti
endurskinsmerki
Á þriðja tug ökumanna voru
kærðir vegna ýmissa umferðar-
lagabrota.
Annars var vikan tiltöluiega
róleg og stóráfallalaus. HJH
UMF Bifröst
stofiiað
Frá stofnfimdinum. Mynd: GE
í gær var stofnað nýtt ung-
mennafélag á Bifröst í Borgar-
firði sem ber nafnið Ungmenna-
félagið Bifföst. Félagið er nú
þegar orðið eitt af stærri ung-
mennafélögum héraðsins en
stofiifélagar eru um 250.
Formaður félagsins var kjör-
inn Unnar Steinn Bjamdal. Á
stofnfundinn^ mættu m.a. for-
maður UMFÍ, formaður UMSB
og landbúnaðarráðherra.
GE