Skessuhorn - 06.11.2002, Blaðsíða 5
1
1“
SiZgSSUHÖEM MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002_____________________________________5
Norðurál og samfélagið
efling atvinnu og búsetu
Norðurál á Grundartanga er eftirsóttur og fjölmennur vinnustaður, einn af þeim stærstu utan höfuðborgarsvæðisins.
Norðurál hefur átt ríkan þátt í að treysta atvinnu og búsetu, um 85% starfsmanna búa á Akranesi, í Borgamesi og í öðrum
nágrannasveitarfélögum. Á þessu svæði greiðir stóriðjan hæstu meðallaun af öllum starfsgreinum í landi.
Árið 2001 greiddi Norðurál samtals um einn milljarð króna í laun og launatengd gjöld.
Fyrir hvert starf í álveri á borð við Norðurál verða til a.m.k. 1,5 annars konar störf. Þannig valda 500 ný störf hjá álveri því
að á annað þúsund margvísleg störf skapast í samfélaginu. Áhrifa Norðuráls gætir víða í íslensku atvinnulífi. Fyrirtækið greiddi t.d.
um 3 milljarða króna til innlendra aðila vegna kaupa á raforku og ýmiss konar þjónustu árið 2001. Þjónusta þessi var keypt
af 170 innlendum aðilum, þar af var aðkeypt þjónusta á Vesturlandi 330 milljónir króna frá 67 aðilum.
Alls hefur Norðurál fjárfest fyrir um 30 milljarða króna á íslandi á undanfömum 5 ámm.
Sveiflur í áliðnaði em frekar í afkomu fyrirtækja en í fjölda starfsmanna, þannig að stöðugleiki í atvinnu helst
þó að sveiflur séu í markaðsverði á milli einstakra ára. Atvinnutekjur starfsfólks Norðuráls em jafnar og stöðugar
og starfsemin jafnar því sveiflur í öðmm atvinnugreinum.
NORÐURÁL
Grundartanga • 301 Akranesi
Sími 430 1000 • Fax 430 1001
nordural@nordural.is
EFLIR / HNOTSKÓQUR NA 500-02