Skessuhorn - 15.04.2003, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL 2003
5
onMaunui.
Vatnsveituframkvæmdir
fyiir tvöhundruð milljónir
Viðræður um yfirtöku Orku-
veitu Reykjavíkur á vatnsveitu
Borgarbyggðar eru á lokastigi
og ef fer sem horfir eru líkur á
að farið verði í stórframkvæmdir
vegna kaldavatnsöflunar á næstu
árum. „Þessar viðræður eru í
takt við samkomulagið frá því
2001 þegar Orkuveitan keyptí
hlut sveitarfélagins í HAB,“ seg-
ir Páll S Brynjarsson, bæjarstjóri
Borgarbyggðar. „Það er verið að
horfa á stórar framkvæmdir við
Hrauná í Norðurárdal og kalda-
vatnsveitu þaðan í Borgarnes og
sumarbústaðahverfin á leiðinni.
Einnig er verið að horfa á vatns-
veituframkvæmdir í Bifröst en
þar eru tveir kostir í stöðunni,
annarsvegar að tengja Bifröst
inn á veituna frá Hrauná og
hinsvegar að endurnýja gömlu
vatnsveituna í Brekkulandi." Páll
segir að samningar séu ekki frá
gengnir en að verið sé að ræða
málið af mikilli alvöru. Ef af
verður er búist við að kostnaður
við framkvæmdirnar verði um
200 milljónir króna. GE
Búnaðarsamtök
Vesturlands að Hvanneyri?
Á aðalfundi Búnaðarsamtaka
Vesturlands síðastliðinn föstu-
dag var rætt um hugsanlegan
flutning höfuðstöðva samtak-
anna úr Borgamesi að Hvann-
eyri. Ef af verður munu skrif-
stofur búnaðarsamtakanna flytja
í nýtt húsnæði sem em í eigu
Hvanna ehf. sem er hlutafélag í
eigu Borgarfjarðarsveitar. Aðal-
fundurinn veittí stjórn samtak-
anna heimild til að ganga til
samninga við Hvannir ehf um
kaup á hluta húsnæðisins. Jafh-
framt heimilaði aðalfundurinn
að eignarhlutí Búnaðarsamtak-
anna í Borgarbraut 61, þar sem
skrifstofur samtakanna em tíl
húsa í dag, verði seldur. Heim-
ildin er háð því að niðurstaðan
verði ekki fjárhagslega íþyngj-
andi fyrir samtökin eins og segir
í ályktuninni.
Nýja skrif-
stofuhúsið á
Hvanneyri
var tílbúið um
síðastliðin
áramót. Nú
þegar hefur
Landsam-
band Kúa-
bænda flutt
skrifstofu sína
þangað og
einnig Hag-
þ j ó n u s t a
landsbúnað-
arins, Fram-
leiðnisjóður
landbúnaðar-
ins, PJ bygg- Skrifstofiihiísnæði Hvanna ehfi á Hvanneyri.
ingar og
Landbótasetrið sem samastend- trúa ríkisins og Vesturlands-
ur af Skógræktarfulltrúa ríkisins skógum.
á Vesturlandi, Landgræðslufull- GE
Kosningainiðstöð
Sjálfstæðismanna opnuð
Frá opnun kosningamiðstöðvar Sjálfstæðismanna síðastliðinn jöstudag. Frá
vinstri: Birna Lárusdóttir, Einar K. Guðfinnson, Adolf Bemdsen, Pétur
Ottesen og Guðjón Guðmundsson. Mynd: GE
Síðastliðinn föstudag var
formlega opnuð kosningamið-
stöð Sjálfstæðismanna í Norð-
vesturkjördæmi að Borgarbraut
23 í Borgarnesi. Skrifstofan í
Borgarnesi verður miðstöð
flokksins í kosningabaráttunni
en auk þess er flokkurinn með
þrjár aðalkosningaskrifstofur í
kjördæminu, á Akranesi, Isafirði
og Sauðárkróki sem þegar hafa
verið opnaðar. Um og eftir
páska verða síðan opnaðar kosn-
ingaskrifstofur í flestum öðmm
þéttbýlisstöðum kjördæmisins.
Borgar Þór Einarsson er
kosningastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðvesturkjördæmi og
hann segir baráttuna leggjast
bærilega í sig það sem af er. „Við
eram að feta okkur áfram í nýju
kjördæmi sem er víðfeðmt og
erfitt yfirferðar og það þekkja
allir aðdragandanna að kosn-
ingabaráttunni hjá okkur, þ.e.
prófkjörið fræga. I ljósi þess
hefur það komið mér þægilega á
óvart hversu vel menn hafa náð
að stilla saman strengi. Miðað
við skoðanakannanir erurn við á
þeim stað sem við gerðum ráð
fyrir. Við eigum möguleika á
fjórum þingmönnum sam-
kvæmt könnunum og það er það
sem að er stefnt. Það er því gott
að vera í þeirri stöðu fyrir loka-
sprettinn," segir Borgar.
GE
PÍJZZ
- ALLA FIMMTUDAGA FRÁ KL. 18:00.
— Mikið og gott úrval á matseðli ~
wmt.motelvenus.net
tu
^sauðfjárbændur
Kynningarfundur á vegum
„ Kjötafurðarstöðvar KS um slátrun og
markaðsmál verður haldinn á Hótel
Borgarnesi þriðjudaginn
I 29. apríl kl 14:00
Kaupfélag Skagfirðinga
Laust starf hjá
Landgræðslu
ríkisins
Héraðsfulltrúi á Vesturlandi
50% starf
Starfssvið
Umsjón og ábyrgð á starfsemi héraðsseturs
Landgræðslunnar á Vesturlandi og skipulagning
og áætlanagerð landgræðslustarfs á starfssvæði
héraðssetursins.
Ráðgjöf og samstarf við bændur, sveitarfélög
og sjálfboðaliða varðandi landgræðslu og
gróðurvernd.
Hæfniskröfur
Héraðsfulltrúi þarf að hafa B.Sc. próf í
náttúrufræðum eða sambærilega menntun auk
reynslu og þekkingar á sviði landbúnaðar ásamt
þekkingu á vistfræði lands.
Ábyrgð, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði
í vinnubrögðum og góð samskiptahæfni.
Góð almenn tölvukunnátta.
Launakjör
Samkvæmt kjarasamningi opinberra
| starfsmanna.
o
i Aðsetur
i Héraðssetrið er á Hvanneyri í Borgarfjarðarsveit.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Björn H. Barkarson,
sviðsstjóri landverndarsviðs, netf. bjorn@land.is
og Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri,
sveinn@land.is Sími: 488-3000.
Umsóknarfrestur
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf berist Landgræðslu
ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella, eða á netfangið
bjorn@land.is Æskilegt er að umsókn fylgi nöfn
tveggja umsagnaraðila. Umsóknarfrestur er til
7. maí n.k.
Áætlað er að ráða í starfið frá 1. júní n.k.
Landgræðsla ríkisins