Skessuhorn - 15.04.2003, Síða 9
^ntMUnui..
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL 2003
9
Húsasmiðjan opnar
á Akranesi
Búferlaflutningar fyrstu þrjá mánuði ársins
Mest fjölgun í Borgarbyggð
Húsasmiðjan hyggst um
næstu mánaðarmót opna ríflega
630 fermetra verslun á Akra-
nesi, nánar tiltekið í því hús-
næði sem nú hýsir Pípulagn-
ingaþjónustana. Húsasmiðjan
keypti verslunarhluta Pípulagn-
ingaþjónustarinnar sem mun
hér eftir einungis sinna verk-
takahluta gamla íyrirtækisins.
Ingólfur Hafsteinsson, annar
eiganda Pípulagningaþjónustar-
innar og verðandi rekstrarstjóri
Húsasmiðjunnar á Akranesi,
sagði í samtali við Skessuhorn
að undirbúningur fyrir opnun
verslunarinnar væri í fullum
gangi og allt útlit fyrir að áður-
nefnd tímamörk stæðust.
Verslun Húsasmiðjunnar á
Akranesi verður sú 17 í röðinni
og bindur Olafur Þór Júlíus-
son, hjá Húsasmiðjunni, miklar
vonir við að verslunin komi til
með að dafna vel á Skaganum.
„Við höfum um hríð haft á-
huga á að opna verslun á þessu
svæði en aldrei boðist nógu
hentug tækifæri til þessa. Akra-
nes og nágrenni er sterkt
markaðssvæði sem býður uppá
milda möguleika. I versluninni
verða um 6-7 stöðugildi og
erum við að vinna í því að ráða
til okkar fólk þessa dagana.“,
sagði Olafur.
Samkvæmt tölum frá Hag-
stofu Islands um búferlaflutn-
inga milli landsvæða á fyrsta
fjórðungi ársins fækkar íbúum á
Vesturlandi um 17 ef borinn er
saman fjöldi brottfluttra og að-
fluttra. Ef skoðaðar eru tölur
yfir búferlaflutninga til og ffá
einstökum sveitarfélögum á
Vesturlandi kemur í ljós að
fjölgunin er langmest í Borgar-
byggð. Þar eru aðfluttir um-
fram brottflutta 30. Aðeins eitt
sveitarfélag utan höfuðborgar-
svæðisins, Arborg, er með ineiri
fjölgun íbúa fyrstu þrjá mánuði
ársins en þar fjölgar um 40. A
Akranesi eru fjölgar íbúum um
11 miðað við tölur um aðflutta
og brottflutta, í Dalabyggð og
Skilmannahreppi fjölgar um 3, í
Skorradalshreppi eru aðfluttir
umfram brottflutta 2 og 1 í
Eyja- og Miklaholtshreppi. I
innri Akraneshreppi stendur í-
búafjöldinn í stað en í öðrum
sveitarfélögum fækkar. Mest er
fækkunin í Grundarfirði og
Snæfellsbæ eða um 17 á hvor-
um stað. I Stykkishólmi eru
brottfluttir umfram aðflutta 16
og 11 í Borgarfjarðarsveit. í
Hvalfjarðarstrandarhreppi
fækkar um 5, um 2 í Helgafells-
sveit og um 1 í Saurbæjarhreppi
og Kolbeinsstaðahreppi.
Páll Brynjarsson, bæjarstjóri
Borgarbyggðar, segist ánægður
með fjölgun íbúa og kveðst
vonast til að þessi þróun haldi
áfram út árið. „Eg held þessi
fjölgun skýrist fyrst og fremst af
því að fólk líti almennt á Borg-
arbyggð sem góðan búsetukost.
Hér er allt til alls og þrátt fyrir
að atvinnuástand hafa ekki ver-
ið upp á það allra besta á síðustu
mánuðum sýnir þetta að fólk
hefur trú á þessu sveitarfélagi,“
segir Páll.
GE
Stordansleíkur
Fjáröflunardansleikur Lions síðasta vetrardag
Hljómsveitin Stubbandalagib ^
leikur til kl. 03:00 \
Matse
ðitV-
fOR'
réttur
,asúpa et,a
Matur og ball kr. 3.500,-
Mibaverb kr. 2.000,-
Snyrtilegur klæbnabur
Aldurstakmark 18 ár
SvepP4
laxatvenoa
aÐAI.R£V ureba
EfT\uRÉTfUR
\Coiúekús
1
1
I
I
I
1
I
t
t
1
t
t
t
t
I -
Allur ágóöi rennur til líknarmála
Tilkynnið þátttöku á Hótel Borgarnesi í síma:
437-1119 fyrir þribjudaginn 22. apríl 2003
Lionsklúbbur
Borgarness