Skessuhorn - 19.06.2003, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 24. tbl. 6. árg. 19. júní 2003
Kr. 250 í lausasölu
Sættir að nást í sveitarstjóm Dalabyggðar?
Þorsteinn Jónsson kjörinn oddviti í gærkvöldi í stað Guðrúnar Jónu Gunnarsdóttur
Nýr oddviti var kjörinn fyrir
sveitarstjórn Dalabyggðar í gær-
kvöldi en kjör oddvita átti að fara
fram samkvæmt dagskrá á boð-
uðum fnndi sveitarstjórnar þann
16. júní s.l. Þeim fundi var hins-
vegar ífestað óvænt þegar kom
að kosningum. A fundinum í gær
var Þorsteinn Jónsson efsti mað-
ur á L - lista kjörinn oddviti í
stað Guðrúnar Jónu Gunnars-
dóttur af sama lista sem gegnt
hefur embættinu síðastliðið ár.
Samkvæmt dagskrá fundarins
á mánudag var 20. liður kosn-
ingar skv. sveitarstjórnarlögum
og samþykktum Dalabyggðar.
Þegar kom að þeim lið lagði
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir,
oddviti, ífarn eftirfarandi bókun:
Sem oddviti minnihlutans fresta
ég fundi þar sem sveitarstjóri bar
ekki undir mig boðaða dagskrá
áður en hún var send út. Mér
gafst því ekki nægjanlegt svig-
rúm til að boða til listafundar og
útkljá uppstillingu listans. Eg
fresta því fundi í sveitarstjórn til
18. júní kl. 21.00 þar sem kosn-
ing fer fram.“
Sigurður Rúnar Friðjónsson,
oddviti S - listans, óskaði skýr-
inga á því á hvaða forsendum
fundi væri frestað með þessum
hætti en oddviti gaf þau svör að
fundinum hefði verið lokað.
Niðurstaða kosninganna í
gærkvöldi varð á þann veg að
Þorsteinn Jónsson var kjörinn
oddviti með öllum greiddum at-
Hörður og Þórunn
sæmd fálkaorðu
Tveir Vestlendingar voru í hópi þeirra tólf einstaklinga sem
sæmdir voru heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíð-
lega athöfn á Bessastöðum þann 17. júní. Hörður Húnfjörð
Pálsson, bakarameistari á Akranesi hlaut riddarakross fyrir störf
að félag-s og atvinnumálum og Þórunn Eiríksdóttir húsfreyja á
Kaðalstöðum í Borgarfirði var einnig sæmd riddarakrossi fyrir
störf að félags- og byggðamálum.
kvæðum. Guðrún Jóna Gunn-
arsdóttir var kjörin varaoddviti
með þórum atkvæði gegn þrem-
ur greiddum Bryndísi Karlsdótt-
ur sem einnig er af L - lista. I
byggðarráð voru síðan tilnefnd
Bryndís Karlsdóttir, Guðrún
Jóna Gunnarsdóttir og Sigurður
Rúnar Friðjónsson.
Lægja ólgu
„Það er mjög stutt síðan farið
var að ræða um breytingar og
það varð síðan ákvörðun okkar í
meirihlutanum að skipa þessu
með þessum hætti næsta árið og
sjá svo til,“ segir Þorsteinn Jóns-
son, nýkjörinn oddviti. Aðspurð-
ur um hvort umrædd breyting sé
ekki þvert á fyrirætlanir meiri-
hlutans fyrir kosningar segir
Þorsteinn að það hafi alltaf kom-
ið fram í kosningabaráttu L -
listans að oddviti væri kjörinn
árlega og því gæti verið skipt á
hverju ári ef út í það væri farið.
„Það má hinsvegar kannski segja
að að þetta sé ákveðin leið til að
lægja þá ólgu sem verið hefur í
sveitarstjórninni og vonandi
dugar þetta til þess. Við horfum
allavega björtum augum til
ffamtíðar,“ segir Þorsteinn.
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni tengist sú ólga sem
Þorsteinn talar um ekki síst mál-
efnum hitaveitu Dalabyggðar og
í því máli hafa farið fram hörð
skoðanaskipti milli oddvita Iist-
anna. Sigurður Rúnar, oddviti
minnihlutans, segist líta á kosn-
ingu Þorsteins sem tilraun til að
sætta stríðandi öfl og reyna að
koma viti í hlutina. „Við vildum,
með því að styðja Þorstein, láta
reyna á það hvort ekld verði tek-
in upp ný vinnubrögð innan
sveitarstjórnar sem taki mið af
hagsmunum Dalabyggðar en
ekki öðrum hagsmunum og við
bindum miklar vonir við það.“
GE
Borgfirðingahdtíð var haldin um síðustu helgi í fjórða sinn með hátíðahöldum
um allt hérað. Myndin er tekin í Skoiradal á sunnudag en þar stóð björgunar-
sveitin Brák í Borgamesi fyrir bátssiglingum á Skorradalsdvatni.
Mynd: Helena.
y
fydiUJJii
Við eigum það sem þig vantar á leið í fríið,
y sumarbústaðinn, tjaldið
í Borgarnesi alla daga
Góður kostur
Opið kl. 23:30 alla daga
Góður kostur
Opið kl. 9-19 virkadaga
Laugardaga kl. 10-19
Sunnudaga kl. 12-19
Hyrnan: Bensínstöð -Verslun -Veitingar - Hraðbanki - Rútuferðir - Upplýsingamiðstöð Hyrnutorg: Stórmarkaður - Hraðbanki