Skessuhorn - 19.06.2003, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 19JUNI 2003
^&iisaunu^
Landsmót
kleinu-
steikingar-
fólks
Laugardaginn 21. júní
verður nýstárleg keppni
haldin á Safnasvæðinu á
Akranesi en þá verður í
fyrsta skipti haldið landsmót
kleinusteikingarfólks. Þar
munu steikingartneistarar,
kvenfélög, húsmæður og
húsbændur af öllu landinu
keppa um titilinn „Kleinu-
meistari Islands".
Dómnefnd mun dæma um
bestu kleinurnar út frá útliti,
bragði og stökkleika. Bæði
einstaklingar og hópar geta
keppt en æskilegt er að hver
bakari hafi a.rn.k. einn að-
stoðarmann. Veitt verða
verðlaun fyrir þrjú efstu sæt-
in. Keppnin fer fram í stóru
tjaldi sem staðsett er á
Safnasvæðinu að Görðum.
Hver þátttakandi tekur með
sér það hráeíhi sem viðkom-
andi er vanur að nota við
kleinugerð. Einnig nauðsyn-
legan búnað svo sem raf-
magnshellu, pott og
kleinufeiti. Gert er ráð fyrir
að a.m.k. 20-30 aðilar muni
taki þátt í mótinu um bestu
kleinuna; þjóðlegasta bakk-
elsi okkar Islendinga.
Landsmót kleinusteiking-
arfólks er liður í dagskránni
Viðburðaveisla á Akranesi
2003 en það er röð 8 ólíkra
viðburða sem fram fara á
Safnasvæðinu í sumar.
UKV
flutt í
Hymuna
Upplýsinga- og kynninga-
miðstöð Vesturlands opnar í
dag formlega nýja aðstöðu á
nýjum stað í Hyrnunni í
Borgarnesi en UKV var
áður til húsa í húsi Fram-
köllunarþjónustunnar.
Fækkarí
I stöðuskýrslu sem markaðs-
og atvinnnuskrifstofa Akranes-
kaupstaðar hefur unnið fyrir
bæjarráð Akraneskaupstaðar
um verkefnið Atak 50 kemur
fram að með samstilltu átaki
bæjarfélagsins og nokkurra fyr-
irtækja hafi tekist að fækka at-
vinnulausum einstaklingum urn
rúmlega 50 á tímabilinu febrú-
Sendiherra írlands í heimsókn
Sendiherra írlands á íslandi
með aðsetur í Danmörku
heimsótti Akranes í gær og
dvaldi þar daglangt. James
Brennan kom til Akraness að
eigin frumkvæði en hin árlega
hátíð Irskir dagar munu hafa
vakið áhuga hans. Sendiherr-
ann heimsótti m.a. Harald
Böðvarsson, íþróttamiðstöðina
á Jaðarsbökkum og Byggða-
safnið að Görðum í fylgd nokk-
urra bæjarstjórnarmanna. HJH
Irski sendiheiTtmn ásamt fylgdarliði ogfulltníum Akraness við Irska steininn
sem var gjöf frá írsku þjóðinni til Akraneskaupstaðar árið 1974.
Búmenn vilia nema land á Granastöðum
Borgarfjarðardeild Búmanna
hefur áhuga á að byggja upp í-
búðahverfi fyrir sína félagsmenn
í landi Granastaða í Borgamesi.
Ef þau áform ganga eftir gætu
framkvæmdir hugsanlega hafist á
næsta ári og trúlega yrði um að
ræða á annan tug íbúða eða meir.
Búmenn eru húsnæðissam-
vinnufélag fyrir eldri borgara
sem á og rekur húsnæði og selur
sínum félagsmönnum, sem náð
hafa 50 ára aldri, búseturétt. Fyr-
ir um tveimur áram var stofnuð
deild innan félagsins í Borgar-
firði, sem nefndist Búmenn -
Borgarfjarðarardeild en félags-
svæðið er Mýra- og Borgarfjarð-
arsýsla norðan Skarðsheiðar,
Kolbeinsstaðahreppur og Eyja-
og Miklaholtshreppur. Starfsemi
Borgarfjarðardeildarinnar hefur
farið rólega af stað ffaman af en
nú ætla borgfirskir Búmenn að
láta hendur standa ffam úr erm-
um að sögn þeirra Bjarna Ara-
sonar og Páls Guðbjartssonar en
blaðamaður
Skessuhorns
skoðaði með
þeim væntan-
legt landnám
á Granastöð-
um í vikunni.
Þeir Bjarni
og Páll skipa
stjórn Bú-
manna
borgarfjarð-
ardeildar á-
samt Geir
Björnssyni.
„A aðalfundi deildarinnar
þann 12. júní sl. kom Daníel
Hafsteinsson framkvæmdastjóri
Búmanna í heimsókn og kynnti
starfsemi Búmanna. Þar kom
frarn að Búmenn hafa áhuga á að
byggja í Borgarnesi og einnig
virðist áhugi vera fyrir hendi hjá
félagsmönnum og bæjaryfirvöld-
um í Borgarbyggð," segir Páll.
Þeir Páll og Bjarni segja að fyrst
og ffemst hafi verið horft á þrjá
staði varðandi byggingasvæði í
Borgarbyggð, Stöðulsholt í
Bjargslandi, timburport Kaupfé-
lagsins við Brákarsund og
Granastaði á móti Sandvík. „A
aðalfundinum kom fram yfir-
gnæfandi meirihluti fyrir því að
kanna nánar möguleika á að fá
byggingaland á Granastöðum.
Granastaðir eru reyndar skil-
greindir sem grænt svæði sam-
kvæmt aðalskipulagi og því þyrfti
að breyta og að sjálfsögðu ekki
komið í ljós hvort það gengur
eftir en bæjaryfirvöld hafa tekið
jákvætt í okkar erindi það sem af
er,“ segja þeir Bjarni og Páll.
Ekki er ljóst hversu margar í-
búðir yrðu byggðar að Grana-
stöðum í fyrsta áfanga en það
kemur til með að ráðast af eftir-
spurn. Félagsmenn í Borgar-
fjarðardeild Búmanna era tæp-
lega 50 en það era ekki endilega
þeir sem kæmu til með að fá bú-
seturétt í nýjum íbúðum á þessu
svæði þar sem lægsta félagsnúm-
er á landsvísu ræður því hver
hefur forkaupsrétt að búseturétti
í nýjum búmannaíbúðum.
GE
Bjami Arason og Pdll Guðbjartsson í tú?iinu á Granastöðum.
Mynd: GE
Mikil aðsóknaraukning
Það sem af er þessu ári eru
gestir Safhasvæðisins að Görð-
um á Akranesi komnir yfir 10
þúsund talsins. Gert er ráð fyr-
ir að þeir verði 20-25 þúsund á
árinu en það er mikil aukning
frá síðasta ári, þegar gestir
urðu 16.400. Að sögn Þor-
steins Þorleifssonar, safnvarðar
í Steinaríki Islands, er hver
mánuður nú að slá fyrri að-
sóknarmet. „í sumar er skipu-
lögð dagskrá með ýmsum við-
burðum hér á svæðinu og hafa
viðtökur bæjarbúa og ferða-
fólks verið með ágætum. Um
síðustu helgi var hér hand-
verksmarkaður og opnun list-
húss og komu á svæðið um
1800 gestir þessa helgi. 17.
júní hátíðahöldin fóru hér
fram í fyrsta skipti og var það
ágæt nýjung og vel til þess fall-
in að nýta enn betur aðstöðuna
sem hér hefur verið byggð
upp“, segir Þorsteinn. Þess má
geta að laugardaginn 21. júní
verður landsmót kleinugerðar-
fólks haldið á Safnasvæðinu en
um kvöldið gengst æskulýðs og
forvarnanefnd bæjarins fyrir
ratleik, varðeldi og grillveislu í
útitjaldi á Safnasvæðinu.
hópi atvinnulausra á Skaganum
ar til maí á þessu ári.
Atak 50 var átaksverkefni sem
sviðsstjóri tómstunda- og for-
varnasviðs ásamt markaðs- og at-
vinnufulltrúum önnuðust fyrir
hönd bæjarfélagsins. Atakinu var,
eins og nafhið bendir til, ætlað að
fækka um jafnháa tölu á atvinnu-
leysisskrá á Akranesi. I byrjun
febrúar, þegar verkefnið fór af
stað, var tala atvinnulausra í há-
marki, eða um 150 einstaklingar.
Miðaði verkefnið að því að skapa
ýmis verkefhi á vegum stofnana
bæjarins og hvetja fyrirtæki til
tímabundinna verkefna og sækja
um styrk til niðurgreiðslu launa
frá stjórn atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs. Það sem uppá vantaði
til greiðslu lögbundinna launa
greiddi síðan Akraneskaupstaður
eða viðkomandi fyrirtæki. Styrk-
ur fékkst til ráðningar í rúmlega
50 slík verkefhi og þykir því að
markmið verkefnisins hafi náðst
og vel það.
Nú eru á atvinnuleysisskrá á
Akranesi 99 einstaklingar og er
yfir helmingur þeirra, eða 54, á
aldrinum 17-24 ára.
Sjálfsbjörg
safiiar fyrir
utanlandsferð
Unglingadeild Sjálfsbjarg-
ar (BUSL) er um þessar
rnundir að safna sér fyrir ut-
anlandsferð sem fara verður
á næsta ári. Krakkarnir hafa
verið dugleg að safna fyrir
ferðinni með ýmsum hætti
og ein af þeim er að fara á
hjólastólum fyrir Hvalfjörð
til Reykjavíkur. Sú ferð var
farin um helgina og var lagt
af stað frá Akranesi á laugar-
dagsmorgunin. Ferðin gekk
vel en hún tók um tvo daga.
Þjálfari ÍA, Ólafur Þórðar-
son, fór fyrsta hlutann með
BUSL, frá Akratorgi til bæj-
armarkanna. A myndinni má
sjá Ólaf við upphaf ferðar-
innar.
HJH
Hönnun
flyturínýtt
húsnæði
Starfsstöð Hönnunar hf. á
Akranesi hefur flutt í nýtt
húsnæði að Garðabraut 2.
Húsið er byggt af Sveinbirni
Sveinbjörnssyni ehf. og var á
síðasta ári ákveðið að Hönn-
un tæki á leigu um 210m2 á
jarðhæð með sérstökum inn-
gangi að vestanverðu auk
tæplega 60 m2 í kjallara. í
starfsstöð Hönnunar starfa
núna átta manns og fram-
kvæmdastjóri er Lárus Ar-
sælsson, byggingarverkfræð-
ingur.
Húsnæðið er á jarðhæð í
þriggja hæða húsi og var
innréttað sérstaklega eftir
hönnun stofunar fyrir starf-
semina. Aðstaðan öll hin
glæsilegasta, með stórum
gluggum, hátt til lofts og vítt
til veggja. Fimmtudaginn
12.júní var opið hús fyrir
viðskiptavini stofunnar og
þeim kynnt aðstaðan.