Skessuhorn - 19.06.2003, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 19. JUNI 2003
»&£99UtlU>..
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi:
Bjarnarbraut 8 Sími: 437 1677
Fax: 437 1678
Kirkjubraut 3 Sími: 431 3677
Akranesi:
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf 437 1677
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 899 4098
Blaðamaður: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentun: Prentmet ehf.
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ú
L ^: J''gum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
Skilafrestur smúauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt med
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
437 1677
Herinn
urt
Sem ungur, sætur og saklaus, drengur bjó ég við það árum
saman að erlent herlið hafði bækistöðvar sínar í vistarverum
mínum. Þarna voru á ferðinni tindátar, innfluttir frá Banda-
ríkjahreppi. Setulið þetta var þarna með mínu samþykki og í
fullkominni sátt við mig sem sjálfstæðan og fullvalda herberg-
iseiganda enda var byggðist sambúðin meðal annars á því að
herliðið héldi sig á íyrirfram afmörkuðu landsvæði sem var
kassi undan gefjunarskóm og virtu hermennirnir þessi landa-
mæri þrátt fyrir að lokið af skókassanum væri tínt fyrir nokkru.
Fyrrnefnd hersveit var vissulega ekki með búðir sínar í mín-
um heimkynnum að nauðsynjalausu. Hún hafði þar mikilvægu
hlutverki að gegna þar sem við höfðum með okkur varnar-
bandalag sem tryggði að mestu öryggi mitt fram á unglingsár.
Varnarliðið gegndi með öðrum orðum því veigamikla hlut-
verki að verja herbergi mitt fyrir innrásum systra minna sem á
þeim tíma var trúandi til að beita gjöreyðingarvopnum sem á
góðu síðdegi hefðu tortímt öllu fémætu í mínu lögbúi.
Síðan kom að því að kalda stríðinu lauk og ég hætti að vera
hræddur við systur mínar. Enda kom það á daginn að þær væru
nokkurn veginn meinlausar þrátt Jyrir að margt benti á tíma-
bili til annars.
Eg þurfti því ekki lengur á varnarliði mínu að halda og svo
fór að lokum að tindátarnir tíndu tölunni einn af öðrum her-
liðið leistist upp og nú standa eru engar menjar lengur til um
veru þess í mínum gögnum. Meira að segja gefjunarskókassinn
er með öllu glataður. Eg verð líka að viðurkenna að mér stend-
ur nokkuð á sama. Eg hef ekki neinna hagsmuna að gæta leng-
ur og hef því einskis að sakna. Eg hef heldur ekki ástæðu til að
gleðjast þar sem tindátarnir voru aldrei fyrir mér og ég skipu-
lagði aldrei neinar kröfugöngur til að krefjast þess að þeir yrðu
settir upp á háloft. Eg hef sannast sagna ekki velt mér sérstak-
lega mikið upp úr þessu máli í alhnörg ár.
Mér finnst hinsvegar sorglegt að þeir sem alla tíð hafa ósk-
að þess að losna við her skuli ekki getað glaðst yfir því að hann
sé á förum. Mér finnst sorglegt að fjölmörgum uppreimuðum
strigaskóm skuli hafa verið til einskis uppslitið í Keflavíkur-
göngum fortíðarinnar.
Ekki það að sá her sé nokkurn skapaðan hlut að angra mig
fremur en sá sé ég átti sjálfur og síst af öllu á meðan hann held-
ur sig á Suðurnesjunum sem er engin þörf á að nota í annað
hvort eð er. IIinsvegar finnst mér alltaf mannsbragur af því að
vera á móti einhverju og meina það.
Gísli Einarsson, lautinant.
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Flöskuskeytí við árbakkann
Krakkarnir í leikskólanum
Hnoðrabóli urðu heldur betur
undrandi þegar voru á gangi
við Reykjadalsá í fylgd með
fóstrum sínum og fundu
flöskuskeyti enda óvenjulegt
að slíkt finnist við árbakka.
Dómkórinn í Reykjavík held-
ur sumartónleika í Reykholts-
kirkju í Borgarfirði á sumarsól-
stöðum, laugardaginn 21. júní,
kl. 14:00. Ymis kórlög, gömul
og ný, sem tengjast þessum
yndislega árstíma verða flutt á
tónleikunum, meðal annars
verk eftir þá Edward Grieg,
Anton Bruckner, Johannes
Brahms og Bob Chilcott.
Bátasmiðja Guðgeirs skilaði á
dögunum af sér tveimur nýjum
bátum og voru þeir sjósettir í
Akraneshöfn. Bátarnir eru af
gerðinni Perla 790 sem að sögn
kunnugra henta mjög vel í daga-
kerfið. Bátarnir tveir eru 3,7
tonn og taka 8 kör í lest. Bátarn-
ir verða gerðir út frá Akureyri
og Súðavík en einn bátur af
sömu tegund frá Bátasmiðju
Guðgeirs var sjósettur fyrir
Skeytið var rakið til sumarbú-
staðar í Vilmundastaðalandi og
mun hafa verið sent af ungri
stúlku sem þar dvaldi síðasta
sumar. A myndinni má sjá
hluta krakkanna með flösku-
skeytið.
Þá flytur kórinn, undir stjórn
Marteins H. Friðrikssonar,
íjögur ný íslensk sálmalög, sem
samin voru fyrir Dómkórinn í
fýrrahaust.
Aðgangur á tónleikana er ó-
keypis, en einnig er minnt á að
á laugardagskvöldinu kl. 20:30
verður Guðmundur Sigurðsson
með orgeltónleika í Reykholts-
kirkju. (fréttatilkynning)
mánuði síðan og er gerður út ffá
Akranesi. Að sögn Guðgeirs
Svavarssonar liggja ekki íyrir
fleiri pantanir á álíka bátum hjá
Bátasmiðjunni en þó sé inikill á-
hugi hjá útgerðarmönnum.
Guðgeir segir að Bátasmiðjan
geti smíðað 6-8 báta á ári en til
að ná þeim fjölda pantana þurfi
að markaðssetja bátasmíðina
meira.
HJH
Katrín Jóhannesdóttir var fjallkona
Borgarbyggðr á 17. júnt
hátíðarhöldum í Skallagrímsgarði
Langá
opnuð
Veiði hófst í Langá á Mýr-
um á mánudag og fýrsta dag-
inn komu þrír laxar á land.
Veiði hefur farið rólega af
stað í vestlensku ánum en
væntanlega ætti eitthvað að
glæðast við rigningar síðustu
daga. GE
Þeir fiska
sem róa í
haust
Dagana 26. - 28. september
í haus verður haldin á Akra-
nesi atvinnuvegasýningin
„Þeir fiska sem róa“. Það er
Markaðsráð Akraness sem
stendur fýrir sýningunni en
markaðs- og atvinnufulltrúar
Akraneskaupstaðar annast
framkvæmdastjórn og undir-
búning fýrir hönd félagsins. I
viðtali við Magnús Magnús-
son markaðsfulltrúa kom ffam
að sýningin verður uppbyggð
sem fjölskyldusýning til að
kynna fjölbreytta atvinnuflóru
á Akranesi. I upphafi sýning-
arinnar gefst þátttökufýrir-
tækjum þó kostur á að bjóða
viðskiptavinum, birgjum og
öðrum gestum sérstaklega.
„Sýningarsvæðið er Iþrótta-
húsið að Jaðarsbökkum og
útisvæði umhverfis húsið. Við
gerum ráð fýrir að smekkfýlla
það svæði sem við höfum til
umráða, en viðtökur fýrir-
tækja og stofnana hér hafa
verið afar jákvæðar fýrir þátt-
töku í sýningarhaldinu. Mark-
mið okkar er að skapa
skemmtilega og ekki síður
fjölbreytta sýningu þar sem
fýrirtæki sem og samfélagið í
heild eiga að geta fengið já-
kvæða og mikla umfjöllun á
landsvísu. Þessa dagana er
unnið að skráningu og heim-
sóknum til fýrirtækja til að
hnýta sem flesta hnúta áður en
sumarfrí skella á í júlí“, sagði
Magnús.
Jónsmessusöngvar í
Reykholtsldrkju
Nýir bátar sjósettir