Skessuhorn - 19.06.2003, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 19.JUNI 2003
jnUíltlw*.
Myndlist og bílatónleikar
við Mími Borgamesi
Fjölmargir lögðu leið sína í
Félagsmiðstöðina Mími, kaffi-
og menningarhús 16-25 ára
ungmenna í Borgarbyggð sl.
mánudagskvöld.
A opnu húsi fyrir almenning
sýndi Þórhildur Kristín Guð-
jónsdóttir Bachman (Bessý), 17
ára stúlka úr Borgarnesi vams-
litamyndir sínar og heitt var á
könnunni.
I tilefni loka vetrarstarfsins
og Borgfirðingarhátíðar spilaði
hljómsveitin Buff.
Hellirigning aftraði ekki
fjölda manns frá því að koma og
hlusta.
Þeir sem ekki vildu vökna
sátu í bílum sínum á
þvottaplaninu, gegnt Mími.
Eftir því sem best er vitað er
þetta fyrsm bílatónleikar á Is-
landi.
Félagsmiðstöðin er 3. ára og
hefur verið opið tvö kvöld í
viku. Þá hefur Mótorhjóla-
klúbburinn Raftar og spila-
klúbbur aðstöðu í Mími.
Aðsóknin nú um helgina
sýndi að núverandi húsnæði er
orðið of lítið og mikilvægt að
fara að huga að framtíðarhús-
næði. Aðstandendur Mírnis
vilja að lokum þakka menn-
ingamálanefnd Borgarbyggðar,
Fjöliðjunni, Rarik, KB Bygg-
ingavörudeild og Shell stöð-
inni fyrir stuðninginn og þeim
fjölmörgu sem komu í Mími
um helgina og sýndu þannig
stuðning við starfsemi ung-
mennana. Eggert Sólbert.
---------------------7
Dvalarheimilið Jaðar, Olafsvík:
Soroptímistar aflienda gjöf
Félagar í Sor-
optimistaklúbbi
Snæfellsnes komu
færandi hendi í
heimsókn á Dval-
arheimilið Jaðar í
Olafsvík á dögun-
um.
Unnur Óladóttir
og Sigríður Þórar-
insdóttir, félagar í
Soroptimistaklúbbi
Snæfellsness, færðu
vistfólki Jaðars að
gjöf veglegt
trambólín.
Við afhendingu
gjafarinnar kom fram í máli
Unnar Óladóttur, formanns
klúbbsins, að með gjöf þessari
vildu félagskonur styðja starf-
semi Davalarheimilisins Jaðars.
Jafnframt kynnti hún þau á-
form Soroptimistafélaga að á
næsta starfsári hyggðust þeir
standa fyrir afþreyingu ýmiss-
konar fyrir vistfólk heimilisins.
Inga Jóhanna Kristinsdóttir,
forstöðumaður Jaðars, veitti
gjöfinni viðtöku fyrir hönd
heimilisins og færði félögum
Soroptimistaklúbbs Snæfells-
ness bestu þakkir fyrir gjöf
þessa sem án nokkurs vafa
kæmi vistfólki vel. VistfólkJað-
ars lýsti mikilli ánægju sinni
með tækið þegar Sigríður Þór-
arinsdóttir, sem jafnframt er
starfandi sjúkraþjálfari, leið-
beindi þeim urn notkun þess.
Afinæli
Samband breiðfirskra kvenna
sem samanstendur af kvenfé-
lögum í Dalasýslu og Reyk-
hólahreppi, heldur veglegan
affnælisfund þ. 19. Júní að
Laugum í Sælingsdal og hefst
hann kl. 20:30.
Minnst er 70 ára afmælis
sambandsins, sem stofnað var
19. júní 1933 á þeim degi sem
konur fengu kosningarétt með
lögum árið 1915. Fjölbreytt
dagskrá verður í boði, m.a.
ræðumaður frá Feministafélagi
Islands, Helga Braga leikkona
skemmtir auk þess sem heima-
fólk leggur sitt af mörkum.
Allir eru velkomnir, en konur
sérstaklega hvattar til að fjöl-
menna.
Kærar þakkir fyrir góða þjónustu
Helgina 13. til 15. júní vor-
um við hjón á ættarmóti á
Laugum í Sælingsdal.
Við viljum koma á ffamfæri
þakklæti fyrir góða þjónustu á
Laugum og frábæra þjónustu
og gott viðmót í verslunni í
Búðardal.
Enn og aftur kærar þakkir og
bestu kveðjur.
Sigríður og Valdimar,
Laugarvatni.
Óskar Þór Óskarsson kvikmyndaáhugamaður er
heiðurslistamaður Borgarbyggðar 2003
Safnar skemmilegu fólki
Einn liður í nýafstaðinni
Borgfirðingahátíð var kvik-
myndasýningin „Óskarinn“ þar
sem Óskar Þór Óskarsson í
Borgarnesi sýndi tvær heimild-
armyndir sem hann hefur gert,
annars vegar sögur frá stríðsár-
unum og hinsvegar heimilda-
mynd um netaveiðar í Hvítá.
Við sama tækifæri var Borgfirð-
ingahátíð sett auk þess sem Jón-
ína Arnardóttir, formaður
menningamálanefndar Borgar-
byggðar úmefndi Óskar heið-
urslistamann sveitarfélagsins
árið 2003 og má segja að þar hafi
verið á ferðinni sannkölluð Ósk-
arsverðlaun.
Blaðamaður Skessuhorns
ræddi við nýkrýndan heiðurs-
listamann til að forvitnast lítdl-
lega um manninn á bak við lins-
una sem á síðustu árum hefur
fest á filmu ýmsa viðburði í
Borgarfjarðarhéraði og tekið
viðtöl við fjölda einstaklinga sem
margir hverjir eru horfnir á
braut en lifa í filinusafni Óskars.
Eingöngu fikt
Óskar Þór er vélamaður að
aðalstarfi og hefur um áratuga-
skeið gert út traktorsgröfu og
þykir með þeim flinkari á því
sviði. Hann er hinsvegar hóg-
værðin holdi klædd þegar talið
berst að kvikmyndagerðinni.
„Eg tek þetta nú ekki alvarlega
og lít eingöngu á þetta sem tóm-
stundagaman,“ segir Oskar. „Eg
byrjaði á þessu að einhverju ráði
árið 1996 og keypti þá vél sem
var ekki beint heimilisvél. Þetta
var super VHS vél og þótti góð
á þeim tíma. Eg var búinn að
taka eitthvað smávegis áður á
venjulega heimilisvél en gæðin á
því voru ekki neitt sérstök. Síðan
hefur þetta undið upp á sig og
þótt það segi kannski ekki mikið
þá held ég að ég eigi núna um
300 spólur af efni sem er allt
skráð í heimatilbúnu kerfi en
allavega þannig að það er að-
gengilegt fyrir mig.“
Óskar segist lengi hafa haft á-
huga á kvikmyndagerð og þá
sérstaklega heimildamyndum.
„Það má segja að bróðir minn
sem býr í Vestmannaeyjum hafi
kveikt í mér. Hann hefur tekið
upp mikið af viðtölum við eldri
karla, sjómenn og aðra Vest-
mannaeyinga og safnað því upp í
hillu. Það má eiginlega segja að
hann hafi ýtt mér svolítið út í
þetta. Eg byrjaði að taka upp
kórtónleika og ýmsa viðburði,
leikrit og sitthvað fleira. Þegar
ég var síðan farinn að láta sjá
mig með þetta tæki á ferð fannst
mér ómögulegt annað en að
gera eitthvað með þetta og fór
niður í Félagsstarf aldraðra og
athugaði hvort þar væri einhver
áhugi fyrir þessu. Síðan hef ég
sýnt eitthvað á hverjum vetri
fyrir gamla fólkið og það hefur
verið mjög þakklátt," segir Ósk-
ar en þess má geta að hann hef-
ur aldrei þegið laun fyrir sín
störf með myndavélina.
Saftiar fólki
Óskar segir að í seinni tíð hafi
hann farið meira út í að heim-
sækja fólk með myndavélina og
taka upp samtöl. „Það er fyrst og
fremst það að ég hef gaman af
skemmtilegu fólki og þekki
marga skemmtilega kalla og
konur og þessvegna hefur þetta
bara þróast svona og nú á ég
orðið nokkuð gott safn af
skemmtílegu fólki.“
Óskar hefur ekki látið nægja
að safna efni á spólur heldur hef-
ur hann í seinni tíð farið út í að
fullvinna efnið sjálfur. „Eg var
fyrst að reyna að klippa þetta
með tveimur vídeotækjum og
tveimur fjarstýringum en það
var eiginlega ómögulegt. Síðan
fór ég út í það í vetur að kaupa
mér tölvu og koma mér upp
klippibúnaði og núna hef ég set-
ið töluvert við þetta og með
góðri aðstoð tæknisnillingsins
Einars Braga Haukssonar er ég
að ná tökum á þessu en hann
hefur reynst mér vel í þessu
brambolti mínu.
Eg hef svosem ekki sett mér
neitt sérstakt markmið en þetta
fer ekkert frá manni og alltaf
hægt að grípa í þetta og klippa
þetta til og matreiða þannig bet-
ur í þá sem áhuga hafa á að sækja
þetta. Ég neita því svosem ekki
að ég er með ýmsar hugmyndir
sem ég veit ekki hvort verður
eitthvað úr.“
Óskar vill eins og fyrr segir
sem minnst gera úr sinni kvik-
myndagerð en segir að það hafi
komið sér ánægjulega á óvart sú
viðurkennig sem hann hlaut um
helgina. „Ég var hvattur til þess í
vetur af góðu fólki að sækja um
styrk hjá menningarsjóði Borg-
arbyggðar til tækjakaupa og átti
ekki von á neinu en fékk síðan
mjmdarlegan styrk sem var ekki
aðeins fjárhagslegur stuðningur
heldur ekki síður móralskur.
Síðan má segja að þessi viður-
kenning hafi verið annar óvænt-
ur bónus,“ segir Óskar að lok-
um. GE
Sólstöðuganga 21. júní
Söguferðir
Sæmundar
Sólstöðuganga verður 21.
júní á vegum Sæmundar
Kristjánssonar á Rifi. Lagt
upp frá Ingjaldshóli kl. 23 og
endað í Eysteinsdal. Litið
verður á ummerki eftir Bárð
Snæfellsás og gengið á slóð-
ir Víglundarsögu. I Blágili er
komið að fallegum fossum,
Þverfossum. Gengið er um
þurrt land en seinni hluti
leiðar er örlítið á fótinn. A-
ætlaður göngutími er 4
klukkustundir. Þátttaka er
gestum að kostnaðarlausu.
(Tréttatilkynning)