Skessuhorn - 19.06.2003, Síða 7
^&tssunu^
FIMMTUDAGUR 19. JUNI 2003
7
Landslag og lúnir hlutir
í Pakkhúsinu í Ólafsvík
Jón Axel Egilsson sýnir
vatnslitamyndir í Pakkhúsinu í
Olafsvík dagana 9. -29. júní.
Myndefnið er flest sótt í snæ-
fellska náttúru, landslag og
lúnir hlutir úr fjöru og melum
eru þema sýningarinnar.
Pakkhúsið er 160 ára gamalt
timburhús í hjarta bæjarins og
timburfjalir og gamlir burðar-
bitar gefa listinni hlýlegan
undirtón. Húsið er opið alla
daga frá kl. 9 - 19.
(Fréttatilkynning)
Kaffihús í safoahúsi
Kíiffihúsið Kveldiílfskaffii opnaði um síðustu helgi í safnahúsi Borgarfjariar. Það
er Oddbjörgjónsdóttir sem annast sölu kaffitveitinga á neðri hæð safnahússins í
sumar og verður opiðfi-á kl. 13.00 - 18.00 alla daga í sumar. Þegar Ijósmynd-
ara Skessuhoms bar að garði voru þær Hekla og Gunnhildur að gæða se'r á gos-
drykkjum í hinu nýja Kveldidfskaffi.
Orgeltónleikaröð í
Reykholtskirkju
I sumar verður röð orgeltón-
leika í Reykholtskirkju. Þeir eru
haldnir í samvinnu við Félag ís-
lenskra organleikara til styrktar
orgelinu í kirkjunni og verða á
laugardögum kl. 20.30. Fyrstu
tónleikarnir verða á laugardag-
inn kemur þ. 21. júní.
Þá leikur Guðmundur Sig-
urðsson organisti Bústaðakirkju
í Reykjavík verk eftir Bach,
Böhm, Buxtehude og de Grigny
og auk þess smáverk eftir Pál Is-
ólfsson og Max Reger.
Guðmundur Sigurðsson lauk
kantorsprófi frá Tónskóla þjóð-
kirkjunnar árið 1996. Þar var
Hörður Askelsson orgelkennari
hans og lauk Guðmundur þaðan
burtfararprófi í orgelleik 1998.
Vorið 2002 lauk hann Masters-
námi í orgelleik með láði frá
Westminster Choir College í
Princeton, þar sem Mark A.
Anderson var kennari hans.
Guðmundur tók við starfi org-
anista við Bústaðakirkju í ágúst
2002.
Auk Guðmundar leika í tón-
leikaröðinni 28. júní, Kjartan
Sigurjónsson organistí, formað-
ur Félags íslenskra organleikara,
5. júlí Arni Arinbjarnarson org-
anisti, 12. júlí Sigrún Þórsteins-
dóttir organisti, 19. júlí Reynir
Jónasson organisti, 2. ágúst
Douglas A. Brotchie organisti
og 9. ágúst lýkur tónleikaröð-
inni með tónleikum Marteins
H. Friðrikssonar dómorganista.
(Fréttatilkynning)
Einnfyrstu Bjamanna kominn áflot.
Bimir framleiddir
í Bátahölliimi
Bátahöllin ehf. í Snæfellsbæ
hefur nú hannað og hafið fram-
leiðslu á bátum undir tegundar-
heitinu Björn, og eru nú þegar
þrír bátar seldir samkvæmt tíl-
kynningu frá fyrirtækinu. Birn-
irnir eru eru hraðíiskibátar frá
3.BT uppí 10.BT og gengur
hönnunin út á það að ná sem
mestu lestarrými og bestu
vinnuaðstöðunni sem völ er á í
samfloti við mikla og góða sjó-
hæfni. Má þar nefna 3.BT bát-
Laugardaginn 14. júní sl. var
forinlega opnað á Safnasvæðinu
á Akranesi nýtt handverkshús.
Það er til húsa í Fróðá, einu af
gömlu uppgerðu húsum svæðis-
ins. Framvegis verður húsið
vinnustofa kvennanna sem reka
Listsmiðjuna Hug og hönd auk
þess sem Dýrfinna 'Ibrfadóttír
gullsmiður hefur vinnustofu
sína í húsinu. Handverkshúsið
verður hér eftir opið almenningi
inn sem er þá Björn 690, en
hann er þilfarsbátur búinn 370
Hö vél með hefðbundnum
skrúfbúnaði, tekur 7 stk. 380.L
fiskiker í lest, með svefnaðstöðu
fýrir 2 menn og er búinn 6 stk.
færarúllum.
Bátahöllin ehf. er plastbáta-
smiðja sem hefur á undanförn-
um árum sinnt viðhaldi og um-
fangsmiklum breytingum á
plastbátum en er nú að færa sig í
auknum mæli í eigin framleiðslu.
og ferðamönnum til sýnis á á-
kveðnum tímum dagsins en slík-
ar vinnustofur þekkjast víða er-
lendis undir heitinu „Work-
Shop“ og eru til þess gerðar að
færa aukið líf inn á sýningar-
svæði og söfn. Ferðamenn geta í
framtíðinni keypt listmuni
hannaða og unna af listakonun-
um sem sérstaklega verða tíl-
einkaðir Akranesi og Safnasvæð-
inu.
Kvenna-
slóðir
- íslenskur
kvenna-
gagnabanki
I september 2003 verður
opnaður við hátíðlega athöfn
íslenskur kvennagagnabanki,
kvennaslóðir.is. I gagnabank-
ann verða skráðir kvensér-
fræðingar á ýmsum sviðum
með það að markmiði að gera
þekkingu og hæfni kvenna
sýnilega og aðgengilega.
Tilgangur kvennagagna-
bankans er að auðvelda fjöl-
miðlum, stjórnendum á
vinnumarkaði, stjórnvöldum
og stjórnmálaflokkum leit að
hæfum konum. I gagna-
grunninum verða aðgengileg-
ar upplýsingar um menntun,
störf, þekkingarsvið, rann-
sóknasvið og útgefið efni
þeirra kvenna sem skráðar
eru. Sambærilegir gagna-
bankar um kvensérffæðinga á
ýmsum sviðum atvinnulífsins
eru þegar til staðar á Norður-
löndunum og í Evrópu.
Kannanir hafa ítrekað sýnt
fram á að verulega hallar á
hlut kvenna í fjölmiðlum sem
og í ráðum, nefndum og
stjórnum fyrirtækja og opin-
bera geirans. Kvennagagna-
bankinn er því mikilvægt tæki
til að ná ffam markmiðum um
jafnan hlut kvenna og karla
við stefhumótun og ákvarð-
anatöku.
Að gerð kvennaslóða.is
standa Rannsóknastofa í
kvenna- og kynjafræðum við
Háskóla Islands, jafnréttis-
nefnd Háskóla íslands,
Kvennasögusafn Islands og
Jafnréttisstofa fyrir styrk
fjölda stofnana, fyrirtækja og
ráðuneyta.
Skráning í gagnagrunninn
er þegar hafin. Allar konur
sem hafa áhuga, hæfni og
metnað til starfa í ábyrgðar-
stöðum, að vera kallaðar tíl
viðtals, álitsgjafar eða ráðgjaf-
ar um sérsvið sitt og koma
rannsóknum sínum á ffam-
færi eru hvattar til að skrá sig
á slóðinni kvennaslodir.is.
Fyrir skemmstu bauð Þorsteinn Magnússon, vert í Hreðavatnsskála heimilis-
mönnum og starfsmönnum sambýlisins í Borgamesi í pizzuhlaðborð með t's á
eftir og tilheyrandi í sólinni. Var þessu boðið vel tekið ogfóru allir heim með
bros á vör eins og se'st á myndinni.
Lifandi handverk í Fróðá
Myndatexti: Sveinn Kristinsson, formaður stjómar Byggðasafns Akraness og
nærsveita, bauð listakonumar velkomnar á svæðið ogfærði þeim blóm í tilefhi
dagsins. Frá vinstri: Dýrfinna Totfadóttir, Inga Dóra Steinþórsdóttir, Inga
Björg Sigurðardóttir og Sveinn Kristinsson. A myndina vantar Guðnýju Frið-
þjófsdóttur frá Hug og hönd. Mynd: JA