Skessuhorn


Skessuhorn - 17.12.2003, Page 4

Skessuhorn - 17.12.2003, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 437 1677 Fax: 437 1678 SkRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 899 4098 Blaðamaður: Hrofnkell Proppé 892 2698 Auglýsingar: Guðrún Björk Friðriksdóttir Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir Prentun: Prentmet ehf. 437 1677 skes$uhorn@skessuhorn.is ritstjori@skessuhorn.is hrafnkell@skessuhorn.is ougl@skessuhorn.is gudrun@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 6 þriðjudögum. Auglýsendum er bent ó að panta auglýsingaplóss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr. 437 1677 í árslok Gísli Einarsson, Senn líður að jólum eins og svo oft ritstjóri. áður um þetta leyti árs. Reyndar man ég ekki eftir öðru en að það hafi komið jól í desember og mér sýnist ekki útlit fyrir annað en svo verði einnig nú og er það vel. Annar árviss viðburður eru áramótin en þau eru einnig und- antekningalaust alltaf á sama tíma, eða nákvæmlega í árslok. A þeim tímapunkti er árið búið og þá líta menn gjarnan um öxl, varlega þó til að forðast hnjask, og líta yfir farinn veg. Arið 2003 hefur verið nokkuð venjulegt ár að því leyti að allt údit er fyrir að það sé með upphafi og endi og ýmsum öðrum á- föngum sem eru þeir sömu og önnur ár. Hvert ár er samt sem áður í eðli sínu einstakt þó stórtíðindin hafi kannski ekki hlaðist upp- Meðal þess sem kemur fyrst í hugann þegar litið er jtfir sviðið hér á Vesturlandi eru samgöngubætur en síðustu árin hefur bæst við þó nokkuð að akfærum vegarspottum hér á svæðinu og nú síðast nýr vegur yfir Bröttubrekku. Töluverð uppbygging hefur verið víðast hvar á Vesturlandi og töluvert byggt af húskofum af ýmsum stærðum og gerðum þrátt fyrir að nokkurrar óvissu hafi gætt í atvinnumálum í landshlutanum. Væntanlega má búast við að sú uppbygging verði enn meiri á næstu mánuðum og misser- um um leið og áhrifa af álversstækkun fer að gæta fyrir alvöru. Sumarið og ríflega það, var ferðaþjónustufyrirtækjum Vestur- lands nokkuð farsælt eftir því sem ég best veit og svo virðist sem ferðamenn séu í æ ríkari mæli að átta sig á því að Vesturland er fysilegri kostur til ferðalaga en önnur landssvæði og er ánægju- legt að sjá að ferðaþjónustufólk virðist vera að nýta sér í auknum mæli þá kosti sem svæðið hefur upp á að bjóða. I því sambandi má gjarnan nefna að eitt af því sem upp úr stendur er fjöldi vel heppnaðra fjölskylduhátíða um allt Vesturland og fjölmarga menningarviðburði aðra mætti nefna ef út í það væri farið. Kosningar til alþingis eru væntanlega flestum ofarlega í huga og veit ég ekki annað en þær hafi gengið eftir vonum. I það minnsta fengum við jafh marga þingmenn og búist var við. Að sjálfsögðu skiptust á skin og skúrir á þessu ári líkt og flest önnur og einstökum viðburðum væri gott að geta gleymt, líkt og Islandsmeistaratitli KR inga svo dæmi sé tekið af handahófi. I heildina litið held ég að þetta ár hafi ekki verið svo slæmt og vona að það næsta verði ekki síðra. Þar sem þetta er síðasta tölu- blað ársins þakka ég hinum dyggu lesendum Skessuhorns sam- fylgdina á þessu ári og ánægjuleg samskipti og óska ykkur árs og ffiðar. Gísli Einarsson í árslok Viðræður að heíjast um sölu HB Það hefur líklega ekld komið neinum á óvart þegar tilkjmnt var nú í síðustu viku að Eimskip ætlaði að selja sjávarútvegsfyrir- tækið Brim. Eins og fjallað hef- ur verið um m.a. á síðum Skessuhornsins eru margir Ak- urnesingar óttaslegnir um fram- tíð HB og þess kvóta sem fyrir- tækið er með á Akranesi. Menn óttast að á torgi markaðarins verði það ekki heimamenn sem hneppi gamla HB. Stjórn Eim- skipafélagsins hefur nú falið Landsbanka Islands að kanna möguleika á sölu Brims í heilu lagi eða hlutum til eins eða fleiri kaupenda. Magnús Gunnarsson stjórnarformaður Eimskips hef- ur lýst því yfir að það sé vilji Eimskipafélagsins að vinna að þessum málum með heima- mönnum. Það hefur þó einnig komið ffam að ýmsir hafa áhuga á að eignast HB en þar hefur Grandi oftast verið nefndur á nafn. Heyrst hefur að gömlu eigendur HB íhugi nú að kaupa fyrirtækið í samvinnu við Isfé- lagið í Vestmannaeyjum, TM og jafnvel fleiri. Haraldur Sturlaugsson gat í samtali við Skessuhorn hvorki játað né neitað þessum fregnum. „Eg vill sem minnst tjá mig um þetta mál á þessari stundu. Við- ræður eru að hefjast og má búast við að þær verði komnar á fullan skrið í vikulokin.“ Það skýrist vonandi fljótlega hvað um hlut HB í Brimi verður en ljóst er að margir hefðu á- huga á að eignast fyrirtækið og um leið 3,96% hlut í fiskveiði- kvótunum sé miðað við yfir- standandi fiskveiðiár og með markaðsverðmæti uppá 6-7 milljaða króna. Framkvæmdir standa nú yfir við endurlagningu 2, J km. kafla á Snæfellsnes- vegi á Fróðárheiöi, fi~á Miðfellsgili að Valavatni. Það er Stafnafell ehf á Kálfár- völlum sem annast framkvæmdimar en verkinu á að Ijúkafyrir 1. ágúst á næsta ári. Kraftur í keilunm 2 5 lið skráðu sig til leiks í fyr- irtækja- og hópakeppni Keilu- félags Akraness. Forkeppnin er í fullum gangi og er spilað í 5 riðlum. Spilað hefur verið í öll- um riðlum og mun riðlakeppn- in klárast í mars á næsta ári. Bikarmeistararnir frá í fýrra, Vélsmiðja Ólafs Guðjónssonar, hefur unnið báða þá leiki sem þeir hafa spilað. Stigahæsti leikmaðurinn til þessa er Garð- ar Jónsson málari með meiru með skor uppá 185 í einum leik og að meðaltali 162 í þremur leikjum. Linda sveitar- stjóri Samþykkt var á fundi sveitarstjórnar Borgarfjarð- arsveitar að ráða Lindu Björk Pálsdóttur sem sveit- arstjóra. Linda hefur frá síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum gegnt stöðu skrif- stofustjóra og þar áður sá hún um bókhald. Eftir síð- ustu sveitarstjórnarkosn- ingar var ákveðið að fresta ráðningu sveitarstjóra. Haukur Gunnarsson gegndi að vísu tímabundið starfi sveitarstjóra sumarið 2002. Við ráðningu Lindu verða þær breytingar að ráðið verður í 50% starf við almenn skrifstofustörf á sveitarstjórnarskrifstofunni í Reykholti. Þjónustu- gjöld hækka I forsendum fjárhagsá- ætlunar Akraneskaupstaðar er gert ráð fýrir að þjón- ustugjöld á leikskólum og í grunnskólum á Akranesi hækka um 4%. Hækkunin mun koma til framkvæmdar í byrjun næsta árs. Vert er að vekja athygli foreldra á að seðilgjaldi vegna gíró- seðils og póstburðargjald að upphæð 160 kr er bætt við hjá þeim sem ekki nota greiðsluþjónustu banka eða greiða með kreditkorti er bætt á hvert einasta barn. Er Skessuhorni kunnugt um foreldra sem eiga 3 börn í skóla, sem öll nýta sér mötuneytisþjónustu auk þess sem yngsta barnið er einnig í skóladagvist, greiði 640 kr á hverjum mánuði í seðilgjald og munar um minna fýrir barnmargar fjölskyldur.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.