Skessuhorn - 17.12.2003, Qupperneq 5
jntssunu..
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
5
Sameining grunnskólanna í
Snæfellsbæ samþykkt samhljóða
Staða Lýsuhólsskóla endurmetin að þremur árum liðnum
Á fundi bæjarstjórnar Snæ-
fellsbæjar síðastliðinn fimmtu-
dag var samþykkt að sameina
grunnskólana þrjá í sveitarfélag-
inu undir eina yfirstjórn og að
skólarnir á Hellissandi og Olafs-
vík verði aldursskiptir.
Tillögurnar sem samþykktar
voru á fimmtudag eru í meginat-
riðum þær sömu og skólanefnd
kynnti fyrir bæjarstjórn síðast-
liðið vor en þær fela í sér afar
róttækar breytingar á skólamál-
um í sveitarfélaginu. Eftir að
skólanefnd lagði sínar tillögur
ffam í vor var skipuð undirbún-
ingsnefnd til að þróa þær frekar
og setja í endanlegan búning.
Neindin var skipuð þeim Kristni
Jónassyni, bæjarstjóra, Ásbirni
Ottarssyni og Olínu B. Kristins-
dóttur, bæjarfulltrúum D lista,
Gunnari Erni Gunnarssyni og
Kristjáni Þórðarsyni bæjarfull-
trúum L - lista og Sigrúnu Guð-
mundsdóttur og Oskari Haf-
steini Oskarssyni frá skólanefnd.
Fram kom í skýrslu undir-
búningsnefndarinnar að haldnir
hefðu verið fundir með kennur-
um í grunnskólum Snæfellsbæjar
þar sem kallað var eftir við-
brögðum við tillögum skóla-
nefndarinnar. Þá var haldinn op-
inn íbúafundur í nóvember, auk
þess sem leitað var upplýsinga
hjá sveitarfélögum sem gengið
hafa í gegnum sambærilegt ferli.
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni hafa komið fram
skiptar skoðanir um sameiningu
skólanna og hafa foreldrar m.a.
lýst yfir áhyggjum af skólaakstri
milli Hellissands og Olafsvíkur.
Miklar breytingar
Fyrirkomulag skólamála í
Snæfellsbæ verður með eftirfar-
andi hætti:
a. Grunnskólarnir þrír í Snæ-
fellsbæ verði sameinaðir fyr-
ir næsta skólaár 2004-2005.
b. Ráðinn verði einn skólastjóri
yfir hinum sameinaða
grunnskóla og einn aðstoð-
arskólastjóri. Skólastjóri hafi
starfsstöð í Olafsvík og að-
stoðarskólastjóri starfsstöð á
Hellissandi. Hvorki skóla-
stjóri né aðstoðarskólastjóri
hafi kennsluskyldu fyrsta
skólaárið. Skólastjóra er
heimilt, í samráði við skóla-
nefnd, að endurskoða áður-
greind ákvæði um starfs-
stöðvar og kennsluskyldu en
þó ekki fyrr en að loknu
fyrsta skólaári hins samein-
aða grunnskóla. Miðað við
þessar breytingar á skóla-
haldi telur undirbúnings-
nefhd að segja þurfi upp öll-
um núverandi skólastjórn-
endum. Stefht verði að því
yfir sameinuðum grunnskóla
í byrjun árs. Staða aðstoðar-
skólastjóra verði auglýst í
kjölfarið á ráðningu skóla-
stjóra.
c. Deildarstjórar verði ráðnir
til að hafa umsjón með sér-
deild og ákveðnum bekkjar-
deildum samkvæmt nánari
tilhögun starfshóps sem falið
verði að útfæra sameining-
una.
d. Þá verði deildarstjóri ráðinn
til að stýra Lýsuhólsskóla en
gert er ráð fyrir að hann
starfi með óbreyttu sniði
næstu þrjú árin og þá verði
staða hans endurmetin.
e. Með sameiningunni er
einnig lagt til að skólahald í
Olafsvík og á Hellissandi
verði aldursskipt þannig að
1.-4. bekkur verði starfrækt-
ur á Hellissandi og 5.-10.
bekkur í Olafsvík.
f. Sérdeildir verði staríræktar á
báðum stöðum.
g. Biðskýli vegna skólaaksturs
verði sett upp á ákveðnum
stöðum í bæjarfélaginu. (Sjá
meðfylgjandi drög að akst-
ursleiðum).
h. Gæsla verði í skólabílum til
að tryggja öryggi barnanna.
i. Boðið verði upp á mat í skól-
anum, bæði á Hellissandi og
í Ólafsvík. Möguleikar á
heitri máltíð fyrir eldri nem-
endurna, þ.e. þeirra sem
stunda nám í Ólafsvík, verði
athugaðir og þörfin könnuð
meðal foreldra. Skóladagur
yngri barnanna, á Hell-
issandi, verður styttri og því
verði mötuneytið þar með
einfaldara sniði.
j. Oll íþróttakennsla fari fram í
íþrótthúsi Snæfellsbæjar í
Ólafsvík og tryggt verði í 1.
stundatöflu að yngri börnin,
sem sækja skóla á Hell-
issandi, byrji skóladaginn
eða endi á íþróttakennslu
þannig að komist verði hjá
óþarfa ferðum.
k. Skipaður verði starfshópur
nú í lok árs til að undirbúa
og útfæra ffekar fyrrnefndar
tillögur, ekki síst það sem
snýr að innra starfi hins sam-
einaða grunnskóla. I starfs-
hópnum eigi sæti, 2 fulltrúar
kennara, 2 fulltrúar foreldra,
2 fulltrúar starfsfólks skól-
anna, 1 fulltrúi ffá skóla-
nefnd, formaður skólanefnd-
ar og bæjarstjóri. Starfshóp-
urinn ráði til sín Harald
Finnson, fv. skólastjóra, sem
sérstakan ráðgjafa og starfs-
mann hópsins.
Undirbúningsnefnd leggur
til að sá sparnaður sem verð-
ur til við þessar breyting-
ar verði notaður m.a. til
aukinna tækjakaupa,
bætts aðbúnaðar nem-
enda og kennara og til að
efla innra starf skólanna.
Skólahald eflist
I rökstuðningi undir-
búningsnefndarinnar
segir meðal annars:
,JVIeð ofangreindum til-
lögum telur undirbún-
ingsnefnd að skólahald í
bæjarfélaginu muni eflast
og vísar þar m.a. í rök-
stuðning úr skýrslu
skólanefhdar og upplýs-
ingar ff á sveitarfélögum sem búa
við sambærilegar aðstæður og
Snæfellsbær.
I umræðunni hefur nokkur
gagnrýni komið fram á aukinn
skólaakstur sem fylgja mun sam-
einingunni. Undirbúningsnefhd
álítur að skólaaksturinn einn og
sér geti ekki staðið í vegi fyrir
þeim breytingum sem lagðar eru
til enda ávinningur af samein-
ingu skólanna ótvíræður að mati
nefndarinnar. Þá má benda á að
reynsla Snæfellsbæjar og annarra
sambærilegra sveitarfélaga af
skólaakstri er ágæt og því ekkert
sem bendir til að skólaakstur og
gott skólastarf geti ekki haldist í
hendur".
Þá segir í skýrslunni að nokk-
ur umræða hafi átt sér stað um
að íþróttahúsið á Hellissandi
yrði opnað að nýju fyrir yngri
börnin. Nefhdin telur hinsvegar
að ráðast þyrfri í töluverðar end-
urbætur á íþróttahúsinu ef það
yrði opnað og kostnaðurinn við
að ráða starfsfólk til daglegs
reksturs yrði einnig verulegur. I
skýrslunni segir: „Þessum út-
gjöldum er að mati nefndarinnar
betur varið í að efla innra starf
og aðbúnað í skólanum. Eins
telur undirbúningsnefhd slæmt
að yngri börnin fari á mis við þá
góðu aðstöðu sem er til staðar í
íþróttahúsi Snæfellsbæjar í
Olafsvík.11
Ennfremur segir í skýrslu
undirbúningsnefndarinnar að
komið sé til móts við ýmissjón-
armið sem bent hafi verið á í
umræðum um tillögur skóla-
nefndarinnar ffá í vor. Hins veg-
ar segir að mildl undirbúngs-
vinna sé enn ffamundan þar sem
margir þættir bíði úrlausnar
samfara sameiningunni.
Tillögur undirbúningsnefhd-
arinnar voru samþykktar sam-
hljóða í bæjarstjórn og einnig var
samþykkt að fela bæjarstjóra að
undirbúa skipan starfshóps til að
sjá um forvinnuna við samein-
ingu grunnskólanna í Snæfells-
bæ.
að auglýsa stöðu skólastjóra