Skessuhorn - 17.12.2003, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
Snafellingarfylgnir sér
Eins og lesendur Skessuhorns hafa
fengið að íylgjast með á síðustu miss-
erum hyllir nú undir að framhalds-
skólanemar á Snæfellsnesi þurfi ekki
lengur að fara yfir íjallgarðinn til að
sækja sér framhaldsskólamenntun.
Fjölbrautaskóli Snæfellsnes hefur ver-
ið formlega stofnaður og verður settur
í fyrsta sinn í september á næsta ári í nýju húsnæði sem reist
verður í Grundarfirði á næstu mánuðum. I síðustu viku var skip-
uð fyrsta skólanefnd fjölbrautaskólans nýja og formaður hennar
er Kjartan Einarsson útibússtjóri Kaupþings Búnaðarbanka í
Stykkishólmi. Kjartan er í Skráargatinu þessa viku.
Nafii: Kjartan Páll Einarsson.
Fæðingadagnr og ár: 16.04 1956.
Starf: Útibússtjóri útibúa Kanpþings Búnaðarbanka hfi í Stykkis-
hóhni og Grundarfiirði.
Fjölskylduhagir: Eiginkona er Dagný Þórisdóttir og eigum við 3
dætur.
Hvemig bíl áttu: Nissan Patrol.
Uppáhalds matur: Fýll og slátur.
Uppáhalds drykkur: Vatn og tengdar afurðir.
Uppáhalds sjónvarpsefiti: Fréttir og íþróttir.
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Gísli Marteinn.
Uppáhalds leikari innlendur: Flosi Olafsson.
Uppáhalds leikari erlendur: Harrison Ford.
Besta bíómyndin: Stella í orlofi.
Uppáhalds íþróttamaður: Eiður Smári Guðjohnsen.
Uppáhalds íþróttafélag: Snæfell (og gamla félagið mitt IS ).
Uppáhalds stjómmálamaður: No comment.
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Kristján B. Snorrason
kollegi minn í Borgarnesi.
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Bítlamir.
Uppáhalds rithöfundur: Halldór Laxness.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjóminni: Hlynntur.
Hvað meturðu mest ífari annarra: Heiðarleika og léttleika.
Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra: Að koma ekki
hreint og beintfratn.
Hver þinn helsti kostur: Lipurð ísamskiptum..
Hver er þinn helsti ókostur: Læt aðra um að dæma það.
Hvernig leggst nýja embættið í þig? Vel, spennandi verkefni
framundan.
Breytir það miklu fyrir samfélagið á SnæfeUsncsi að fá fram-
haldsskóla? Já það breytir miklu, svæðið verður mun betri kostur
fiyrir migt fólk til bzisetu og gerir gott samfélag á Snæfellsnesi enn
betra. Við vonumst til að sjá verulega fjólgun íbúa auk þess sem ung-
lingamir eiga möguleika á að dvelja lengur í fioreldrahúsum.
Verður ekki erfitt að móta starfií nýjum skóla með nýjum áherslum?
Þetta er verkefni sem þarf að vinna,með góðufólki sem hefiúr brenn-
andi áhuga og kjark og þannig verða öll verkefni tiltölulega auðveld
lírlausna. Auðvitað er mótun skólastarfs með nýjmn áherslum verk-
efni sem þarf að vanda til.
Attu von á að smæðin verði vandamál? Ég á ekki von áþví, íbzi-
ar á Snæfellsnesi hafa alltaf verið stórhuga, þetta er eitt afstórzi verk-
efnzmtim sem við munum stazida saman um að láta ganga upp.
Ertu bjartsýnn á að ungmenni á Snæfellsnesi nýti þennan
kost? Já ég er bjartsýnn á það.
Að lokum? Snæfellingar eru jýlgnir sér, hafa mikinn kjark og þor
og munu í sameiningu þétt saman um skóla sem á efitir að koma okk-
ur öllum til góða í framtíðinni.
íMjartcm& þakkur
til allra þeirra, sem glöddu
mig með heimsóknum,
gjöfum og góðum óskum á
nýliðnu sjötugsafmæli mínu.
Gleðileg jól, öllsömul.
Þorsteinn Þorsteinsson
Skálpastöðum
17 ára
Bæjarstjórn Akraness sam-
þykkti á síðasta fundi sínum
tillögur æskulýðsfulltrúa um að
17 ára unglingar fái vinnu í
Vinnuskólanum næsta sumar.
Undanfarin ár hefur nokkuð
stór hluti 17 ára ekki fengið
sumarvinnu en hefur komið
inn í atvinnuátaksverkefni á
vegum bæjarins. Einnig hefur
vinnulöggjöfin herst hvað
varðar vinnu unglinga og úti-
lokar nokkuð stóran hóp
vinnuskólanema frá verkefnum
þar sem vinna þarf með vélum.
sautján ára unglingum er ætlað
að vinna þessi verkefni og
koma til vinnu strax á vorin
þegar þau yngri eru enn í
grunnskólanum. Afram verður
gert ráð fýrir að grípa þurfi til
atvinnuátaksverkefna fyrir
ungmenni yngri en 20 ára.
í vinnuskólann
Kuml merkt í Skarðsvík
Framfarafélag Snæfellsbæjar
setti nýverið upp veglegt upp-
lýsingaskilti í Skarðsvík á utan-
verðu Snæfellsnesi. Á skiltinu er
að finna upplýsingar um kuml
sem fannst í víkinni og talið er
vera frá söguöld. Skúli Alexand-
ersson ferðamálafrömuður á
Hellissandi hafði forgöngu um
verkið.
Mikill fjöldi ferðamanna fer
um þessar slóðir á ári hverju
enda margt að sjá auk Skarðs-
víkurinnar sem skartar glæsi-
legri sandfjöru og fyrrnefndum
fornleifum má nefna Ondverð-
arnes, Skálasnaga og fleiri nátt-
úruperlur.
Nýja upplýsingaskiltið í Skarðsvík.