Skessuhorn


Skessuhorn - 17.12.2003, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 17.12.2003, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 unM5Unv. Fjárhagsáædun Borgarbyggðar fyrir árið 2004 samþykkt í bæjarstjóm Fjárhagsáætlun Borgarbyggð- ar fyrir árið 2004 gerir ráð fyrir að heildartekjur bæjarsjóðs og fyrirtækja sveitarfélagsins verði 923 milljónir, en þar af eru skatttekjur rúmar 730 milljónir eða tæp 80% af tekjum. Þá er gert ráð fyrir að rekstrargjöld og fjármagnsliðir verði 919 millj- ónir. Afgangur ífá rekstri verð- ur því rúmar 4 milljónir. Veltu- fé ffá rekstri er áætlað 31 millj- ón sem eru tæp 4% af heildar- tekjum og söluhagnaður eigna er áætlaður 35 milljónir efrir því sem fram kemur í fféttatílkynn- ingu frá Borgarbyggð. Hærri tekjur verslunarhúsnæði. Einnig verð- ur unnið að deiliskipulagi á Varmalandi. Þá er áætlað að verja um 25 milljónum til við- halds á fasteignum sveitarfélags- ins og vegur þar þyngst að fyrir- hugað er að skipta um gólf í í- þróttahúsinu í Borgarnesi. Ný lán Gert er ráð fyrir að ný lántaka á árinu 2004 verði alls 136 millj- ónir og að afborganir eldri lána verði tæpar 135 milljónir. Því er áætlað að skuldir sveitarfélagsins munu aðeins aukast um eina og hálfa milljón. Ný lántaka verð- ur því fyrst og fremst nýtt til að greiða eldri skuldir. 50 nemendur þreyta háskólapróf í heimabyggð ,Hjúkrunarfrœðnemar þreyta prófá Akranesi' Nú í desember þreyta 50 háskólanem- ar próf í heimabyggð á Vesturlandi þótt þeir stundi nám frá Háskól- ananum á Akureyri og Háskóla Islands. 12 leikskólakennarar tóku próf í Borgarnesi og á Akranesi. Níu hafa stundað rekstrarfræði- nám í Stykkishólmi og tóku sín próf þar. Atta eru í íslenskunámi og taka prófin á fjórum stöðum á svæðinu. A Akranesi þreyta 20 hjúkrunarnemar sam- keppnispróf eftir að hafa stundað íjarnám á Akra- nesi síðan í haust. Þær eru í hópi 63 nema Háskólans á Ak- ureyri og munu 3 5 þeirra kom- ast áfram í náminu. I samstarfi við Símenntunarmiðstöðina hafa verið sett upp námsver á vegum sveitarfélaganna þar sem nemendur þreyta sín próf og taka á móti kennslustund- um í gegnum myndfundabún- að. Er þetta samstarf við sveit- arfélögin grundvöllur þess að vel takist til við framkvæmd fjarnámsins. Mótmælm byggja á missldbringi Skatttekjur sveitarfélagsins hækka á milli ára um tæp 7% miðað við endurskoðaða fjár- hagsáædun fyrir árið 2003. A- lagning útsvars er óbreytt, þjón- ustugjöld vegna vatnsveitu, ffá- veitu og sorphirðu hækka, en á- lagningarprósenta fasteigna- skatts lækkar hins vegar. Stærstum hluta rekstrarút- gjalda, eða 445 milljónum er varið tíl ffæðslu- og uppeldis- mála. Nemendum við grunn- skóla sveitarfélagsins í Borgar- nesi og á Varmalandi hefur fjölgað um tæplega 40 það sem af er árinu. Borgarbyggð rek- ur þrjá leikskóla og taka þeir við börnum ffá tveggja ára aldri. Aðrir málaflokkar sem taka hvað mest til sín í rekstri eru æsku- lýðs- og íþróttamál 99 milljónir, sameiginlegur kostnaður 80 milljónir, félagsþjónusta 49 milljónir og umhverfis- sam- göngu- og skipulagsmál 32 milljónir. Leikskóli og gervigras Á árinu 2004 er áædað að verja 87 milljónum til nýffam- kvæmda samkvæmt fjárhagsá- ædun. Rúmum 40 milljónum verður varið til framkvæmda við skólamannvirki, en fýrirhugað er að byggja við leikskólann Klettaborg og leggja gervigras- völl við Grunnskólann í Borgar- nesi. Auk þess verður varið rúmum 30 milljónum tíl gatna- gerðar í Borgarnesi. Stærstu ffamkvæmdir í gatnagerð eru við Brúartorg en þar hyggst Sparisjóður Mýrasýslu reisa nýtt húsnæði undir starfsemi sína. Þá verður unnið áffam að skipu- lagsmálum í gamla miðbænum í Borgarnesi, en þar mun rísa íbúðabyggð og þjónustu- og Fjölgun íbúa Það sem af er árinu hefur í- búafjölgun í Borgarbyggð verið með því mesta á landinu. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru aðfluttir íbúar umfram brott- flutta alls 70.1 fféttatilkynningu frá Borgarbyggð segir að lokum: „Fjölgun íbúa kallar vissulega á eflingu þjónustu og nýfram- kvæmdir hjá sveitarfélaginu. Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2004 tekur mið af þessu, hún gerir ráð fyrir að- haldi í rekstri sem er nauðsyn- legt til þess að áffam megi halda uppi háu þjónustustigi í sveitar- félaginu. En áædunin endur- speglar líka bjartsýni á framtíð byggðarlagsins þar sem ráðist er í ffamkvæmdir og fjárfestingar sem eru forsenda fyrir íbúa- fjölgun. Eins og greint var frá í síðasta Skessuhorni eru slökkviliðs- menn á Akranesi alls ekki sáttir við þær hugmyndir sem fram koma um úrbætur á tækni- og umhverfissviði bæjarins og nú liggja tíl umfjöllunar í bæjar- ráði. Á almennum félagsfundi þann 5. desember urðu miklar umræður um þær tillögur í skýrslunni sem lúta að slökkvi- liðinu, sérílagi þær hugmyndir að undir einn hatt Þjónustu- miðstöðvar verið sameinað áhaldahúsið, slökkviliðið og sorpmóttökustöðin Gáma. I bréfi sem Valdimar Sólbergsson formaður Félags slökkviliðs- manna sendi bæjarráði eftir fé- lagsfundinn kemur fram að fé- lagið hafni alfarið framkomn- um hugmyndum um flutning á Þjónustumiðstöð í slökkvistöð á Kalmansvöllum. Fram kemur að slökkviliðsmenn óttast að missa þá góðu aðstöðu sem þeir fengu þegar nýja Slökkvistöðin við Kalmansvelli 2 var tekin í notkun nú í sumar. I samtali við Skessuhorn sagði Valdimar að hann tryði því ekki að menn væru í alvöru að velta þessu fyrir sér og að tillögurnar yrðu að veruleika. „Slökkviliðið verður að fá að vera sjálfstæð stofnun og slökkviliðsmenn að komast algjörlega óhindraðir til og frá slökkvistöð við út- köll“ sagði Valdimar. Slökkvi- liðsmenn hafa ekki fengið nein viðbrögð frá bæjarráði önnur en tilkynningu um að bréfið hafi verið lagt fram á síðasta fundi. Aðspurður sagði Gísli Gíslason bæjarstjóri að mót- mælin hlytu að vera á misskiln- ingi byggð. Alls ekki standi til að skerða aðstöðu slökkviliðs- manna heldur kæmi ffam í til- lögum IBM að þegar þjónustu- miðstöðinni verið fundin var- anlegt húsnæði verði það at- hugað hvort akkur yrði í því að koma henni fyrir á aðliggjandi lóðum við slökkvistöðina. Að sögn Gísla mun ekki ákvörðun um breytingar á tækni- og um- hverfissviði ekki verða teknar á þessu ári eins og stóð til heldur í byrjun þess næsta. Fundur með Hilltnjum sambandsins Það voru íbyggnir sveitarstjórnarme?m sem hlýddu á málfulltrúa Sambands íslenskra sveitatfélaga um málefiii sveitarfélaganna í bœjarþingsalnum á Akranesi. Fulltrúar Borgarfjarðarsveit- ar og Borgarbyggðar heim- sóttu Akranes nýlega eins og greint er frá á öðrum síðum Skessuhornsins. Auk þess sem fulltrúar allra þriggja sveitarfé- laganna staðfestu með sér sam- komulag þá funduðu þeir með fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga, þeim Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni formanni og Þórði Skúlasyni framkvæmda- stjóra. Farið var yfir ýmis mál er Iúta að rekstri sveitarfélaga, yfirtöku á verkefnum frá ríki og önnur samskipti ríkis og bæja. Það kom m.a. fram í máli VI- hjálms að oft vantaði á að þeir tekjustofnar sem ríkið legði með verkefhum sínum til sveit- arfélaganna dygðu ekki til að standa undir rekstrarkostnaði. Það væri þó ekki eingöngu hægt að kenna ríkinu um slæma fjárhagsstöðu sveitarfé- laganna því mörg dæmi væru um að sveitarstjórnarmenn væru ekki alltaf ábyrgir í fjár- málum síns sveitarfélags. Taldi Vilhjálmur að nálægð kjörinna fulltrúa á sveitarstjórnarstigi við íbúa hefði þar oft mikið að segja. Með stærri einingum væri líklegra að menn létu ekki undan þrýstingi og færu út í verkefni þar sem fyrirséð væri að samfélagið gætí ekki staðið undir. Nefndi Vlhjálmur upp- byggingu á fjölnota íþróttahúsi sem dæmi máli sínu til stuðn- ings. Nú styttist í að málefhi fatlaðra verði færð frá ríki til sveitarfélaga og er ætlun þess- ara þriggja sveitarfélaga að standa sameiginlega að úrlausn þess verkefhis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.