Skessuhorn - 17.12.2003, Qupperneq 16
16
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
ontSSUnui.
Framtíðin er stæm og öflugri sveitarfélög
segir Linda Björk Pálsdóttir nýráðin sveitarstjóri Borgaríjarðarsveitar
Sveitarfélagið Borgarfjarðar-
sveit varð til við sameiningu
Andakílshrepps, Lundarreykja-
dalshrepps, Reykholtsdalshrepps
og Hálsasveitar árið 1998. Eftir
fyrstu sveitarstjórnarkosning-
amar í nýju sameinuðu sveitarfé-
lagi var Þórunn Gestsdóttir ráð-
inn sveitarstjóri og gegndi hún
því embætti út kjörtímabilið.
Eftdr kosningar 2002 var hins-
vegar ákveðið í sparnaðarskyni
að ráða ekki sveitarstjóra að sinni
en Haukur Gunnarsson var
hinsvegar ráðinn í starfið í þrjá
mánuði á meðan ný sveitarstjórn
var að átta sig á stöðunni.
Nú hefur loks verið gengið ffá
ráðningu sveitarstjóra Borgar-
fjarðarsveitar. Linda Björk Páls-
dóttir sem verið hefúr skrifstofu-
stjóri sveitarfélagsins síðasdiðið
ár hefur verið ráðin sveitarstjóri
fi-á 1. desember að telja. Af því
tilefni' ræddi blaðamaður
Skessuhoms við Lindu og spurði
meðal annars hinnar hefðbundu
spurningar, „hvernig leggst þetta
í þig?“ og svo ffamvegis. Ohjá-
kvæmilega bám sameiningarmál
einnig á góma og framtíðar-
möguleikar svæðisins að sjálf-
sögðu einnig. Þess má geta að
Linda er yngsti sveitar- eða bæj-
arstjórinn á Vesturlandi og önn-
ur af tveimur konum sem gegna
þessu embætti nú en hin er
Björg Agústsdóttir bæjarstjóri í
Grundarfirði.
Skagamær
„Eg er fædd og uppalin á
Akranesi, árið 1973 nánar tiltek-
ið, og kláraði þar grunnskólann
eins og lög gera ráð fyrir og tók
síðan stúdentspróf frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands haustið
1992. Síðan fór ég í bameigna-
leyfi en árið 1994 fór ég í Sam-
vinnuháskólann á Bifröst og út-
skrifaðist þaðan sem rekstrar-
fræðingur 1996,“ segir Linda.
Eiginmaður Lindu er Karvel
Lindberg Karvelsson bústjóri á
svínabúinu Hýmmel en hann fór
til náms að Hvanneyri árið 1996
og flutti Linda með honum
þangað og starfaði við kennslu
og einnig á skrifstofu Landbún-
aðarháskólans. „Við fluttum síð-
an í Reykholt árið 1999 á meðan
við vomm að byggja okkur hús á
Hýmmel en það tók reyndar
ekki nema tvo mánuði. Karvel
bauðst þessi vinna á Hýmmel
eftir að hann útskrifaðist ffá
Hvanneyri 1999 og síðan fór
hann í samstarf við Gunnar
bónda með svínabúið á Staf-
holtsveggjum sem þeir eiga sam-
an. Þetta varð til að við ílengd-
umst í sveitinni en reyndar kom
aldrei til greina að flytja aftur á
mölina. Það er best að vera í
sveitinni, það er ekkert flóknara
en það.“
Byrjað smátt
Linda hóf störf hjá sveitarfé-
laginu Borgarfjarðarsveit um
það leyti sem fjölskyldan flutti að
Hýmmel og var fyrst í hálfu
starfi á skrifstofu Borgarfjarðar-
sveitar og hálfu starfi hjá Islands-
pósti sem er í sama húsi í Reyk-
holti. Hún var ráðin sem launa-
fulltrúi sveitarfélagsins skömmu
síðar en eftir sveitarstjórnar-
kosningarnar í fyrra er hún ráð-
in í fullt starf sem skrifstofu-
stjóri.
„Það var samið
við okkur Vilborgu
Pétursdóttur um að
við myndum bæta á
okkur hluta af þeim
störfum sem sveitar-
stjóri hafði áður
sinnt en einnig tók
oddvitinn á sig ýmis
mál sem annars
væra á könnu sveit-
arstjóra en síðasta
árið hafa ekki verið
nema tvö stöðugildi
hér á skrifstofunni
sem er mjög lítið
miðað við sambæri-
leg sveitarfélög.
Þetta hefúr hinsveg-
ar gengið með mik-
illi vinnu og hefur
einnig haft sína
kosti þar sem þetta
var í og með hugsað
sem tækifæri fyrir
nýja sveitarstjórnar-
menn til að átta sig á hvernig
þetta virkaði og hugsað sem svo
að það væri auðveldara að bæta
við en skera niður. Þetta hefur
líka verið ágætt tækifæri fyrir
mig að átta mig á hvernig þetta
gengur allt fyrir sig því þótt ég sé
búin að vera hér í nokkur ár þá
kynnist maður hlumnum ekki
almennilega fyrr en maður þarf
að takast á við þá.“
Andlit sveitarfélagsins
Sem fyrr segir ákvað sveita-
stjórn Borgarfjarðarsveitar að
ráða Lindu sem sveitarstjóra frá
og með 1. desember s.l. en hefur
fjárhagsstaðan bamað það mikið
síðan í fyrravor að nú væri lag?
„Vxð emm svo sem ekki búin
að sjá hvemig árið kemur út en
ég held að við séum á ágætu róli
miðað við aðstæður. Eg held
hinsvegar að mönnum hafi þótt
nauðsynlegt að hafa sveitarstjóra
í þó þetta stóm sveitarfélagi. Það
er kostur að hafa ákveðinn aðila
til að koma fram fyrir hönd
sveitarfélagsins og vera andlit
þess út á við. Það má líka segja
að það sé utanaðkomandi krafa
að sumu leyti því margir sem
hafa samband hingað vilja endi-
lega tala við sveitarstjóra og eng-
an annan.“
Kom á óvart
Aðspurð um hvernig nýja
starfið eða öllu heldur nýi titill-
inn leggist í hana segir Linda að
henni lítist vel á það sem
ffamundan er. „Eg sé svo sem
ekki fram á neina rosalega breyt-
ingu. Eg held bara áfrarn að
takast á við sömu hluti og tmd-
anfarin ár og veit nokkurn veg-
inn að hverju ég geng. Það em
hinsvegar spennandi tímar
ffamundan og stór mál sem þarf
að takast á við en stærsta málið
er sameiningarviðræður við ná-
grannasveitarfélögin sem er
mjög áhugavert verkefúi. Þetta
var samt sem áður ekkert sem ég
hef verið að stefna að og það
kom mér reyndar nokkuð á ó-
vart þegar mér bauðst þetta
starf. Það er heldur ekki á hverj-
um degi sem fólk nær að vinna
sig upp í starfi með þessum
hætti og því finnst mér þetta
mikil viðurkenning.
Einn helsti kosturinn við
þetta starf er hvað það er gífur-
lega fjölbreytt en við eram það
lítil hér í sveitinni að maður fær
að vera með puttana í öllu. Við
höfum ekki sérfræðinga á
hverju sviði sem er reyndar ó-
kostur að sumu leyti en á móti
kemur að maður fær sjálfúr að
prófa flesta hluti.“
í karlaveldi
Það má segja að Linda sé
komin inn í hálfgerða hrútastíu
með sínum kollegum hér á
Vesturlandi því flestir em þeir
kallar á miðjum aldri. Hún seg-
ir það hafa verið svolítið skrítið
til að byrja með að vera nánast
eina konan í þessu karlaveldi en
það venjist. „Þeir eru ósköp
elskulegir við mig kallarnir og
tilbúnir til að aðstoða og leið-
beina ef á þarf að halda þannig
að mér líður bara vel í þessum
hópi,“ segir Linda og hlær við.
Ókostir smæðarinnar
Linda segir að þótt rekstur
Borgarfjarðarsveitar gangi upp
með almennu aðhaldi þá sé ljóst
að ekki sé um hagstæða rekstr-
areiningu að ræða. „Framtíðin
er að sjálfsögðu stærri og öfl-
ugri sveitarfélög sem geta boðið
íbúunum góða þjónustu. Ég
nefndi það sem kost að hafa
ekki sérfræðinga á hverju sviði
en það var kannski svolítil eig-
ingirni því auðvitað er það gott
að hafa sem mesta sérhæfingu
og kemur íbúunum til góða.
Okkar staða batnar að vísu svo-
lítið að þessu leyti með sam-
starfssamningi við Borgarbyggð
og Akranes en þar er meðal
annars kveðið á um að hugsan-
legt samstarf um tæknideild.
Við eigum enga tæknideild og
lítum oft öfúndaraugum á ná-
grannana þegar upp koma stór
mál á borð við gatnagerð og
veituframkvæmdir eða útboð á
sorpmálum svo dæmi sé tekið.
Þar skipta útboð og eftirlit með
verkum miklu máli og þá vantar
okkur oft sárlega menn með
sérþekkingu á þessum sviðum.
Við eram hinsvegar með samn-
ing um félagsþjónustu við
Borgarbyggð og höfum sameig-
inlegan félagsmálastjóra en það
er fyrirkomulag sem hefur
reynst vel.“
Sameining?
Linda er sannfærð um að þótt
samstarf sveitarfélaganna sé af
hinu góða þurfi að ganga alla
leið og sameina sveitarfélögin í
Borgarfirði norðan Skarðsheið-
ar. „Það er stefnt að kosningu
vorið 2005 en viðræðurnar em
rétt að fara af stað. Það hafa
verið haldnir tveir fundir en við
stefnum að því að opna umræð-
urnar sem fyrst þannig að íbú-
arnir hafi sem greiðastan að-
gang að upplýsingum en það
era jú þeir sem ráða á endanum.
Ég hef ekki heyrt mikið enn um
hvernig þessar hugmyndir
leggjast í fólk en það sem ég hef
heyrt er frekar jákvætt. Ég veit
samt að margir era ekki sérlega
spenntir en ég vona að það
breytist þegar menn fá upplýs-
ingar um hvaða kosti sameining
hefúr í för með sér. Meðal ann-
ars þá þarf að fara vel yfir skóla-
málin sem era eðlilega viðkvæm
og koma því til með að skipta
sköpum í þessari umræðu.“
Bjartsýn
Burtséð fá öllum sameiningar-
hugmyndum er hinn nýi sveitar-
stjóri bjartsýrm fyrir hönd sveit-
arfélagsins og telur þessa byggð
hafa alla burði til að vaxa og
dafna. „Við eigum ýmsa mögu-
leika og þeir felast ekki síst í
þessum byggðakjömum sem hér
era, í Reykholti og á Hvanneyri.
Snorrastofa á eflaust eftir að efl-
ast erm frekar og á Hvaimeyri
sjáum við fram á mikla uppbygg-
ingu á næstu árum ef allt gengur
að óskum. Þá er ferðaþjónustan
einn af okkar helstu vaxtar-
broddum og við sjáum það með-
al annars á því að sífellt er verið
að skipuleggja fleiri frístimda-
svæði hér í sveitarfélaginu. Það
er í öllu falli full ástæða til bjart-
sýni,“ segir Linda Björk Páls-
dóttir sveitarstjóri Borgarfjarð-
arsveitar að lokum.