Skessuhorn - 17.12.2003, Síða 20
20
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
^ssunu^
í tilefni af fertugsafmælinu mínu þann
18. desember verður opið hús í
Logalandi laugardaginn
20. desember frá kl. 16.
j H, Edda Þórarinsdóttir, Giljahlíð.
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
FASTEIGNIR í BORGARNESI
BRÁKARBRAUT 18-20
Iðnaðarhúsnæði
(bifreiðaverkstæði) 439
ferm. Hluti innréttaður
sem varahlutaverslun og
skrifstofur. Einnig
áhöld og tæki til reksturs
bifreiðaverkstæðis.
Verð: 20.000.000
HRAFNAKLETTUR 8
íbúð á 2. hæð í
fjölbýlishúsi, 62,9 ferm.
Hol flísalagt, stofa
parketlögð. Eldhús
parketlagt, viðarinnr.
Eitt herbergi dúklagt,
skápur. Baðherb.
dúklagt, kerlaug/sturta. Sérgeymsla, sameiginleg
hiólageymsla og þvottahús í kiallara.
Verð: 6.200.000
KVELDÚLFSGATA 22
íbúð á 3. hæð í
fjölbýlishúsi, Hol og
stofa teppalagt. Eldhús
dúklagt, eldri viðarinnr.
Þrjú herb. dúklögð.
Baðherb. dúklagt, ljós
viðarinnr., kerlaug.
Geymsla og þvottahús í íbúð með máluðum gólfum.
Sérgeymsla og sameiginl. hjólageymsla í kjallara.
Viðgerðir eru fyrirhugaðar utanhúss og ber kaupandi
kostnað af þeim.
Verð: 8.200.000
TILLEIGU:
Til leigu 120 ferm. húsnæði við Brúartorg, Borgamesi.
Húsnæðinu getur fylgt lausafé til reksturs
veitingastaðar.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
Ingi Tryggvason hdl.
löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61, 310 Borgarnes,
s. 4371700, 860 2181, fax 437 1017,
netfang: lit@isholf.is
veffang: simnet.is/lit
Atvinnuleysi vel undir
landsmeðaltali
Mikil aukning í starfstengdum úrræðum
Atvinnuleysi á landinu hefúr
lítillega aukist en í nóvember
mældist það 3% en var 2,8% á
sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi
á Vesturlandi í nóvember
mældist 1,8%. Mun fleiri konur
en karlar voru án atvinnu eða
2,7% kvenna á móti 1,2% karla.
Atvinnuleysi hefur vaxið tals-
vert sl. 2 ár. Hámarki náði það
í janúar á þessu ári en þá voru
um 320 atvinnuleitendur á skrá
á Vesturlandi. Að sögn Guð-
rúnar Gísladóttur forstöðukonu
Svæðisvinnumiðlunar Vestur-
lands er atvinnuleysi einnig
mælt í fjölda nýskráninga. I
samtali við Skessuhorn sagði
Guðrún að fjöldi nýskráninga
hafi aukist mikið á þessu ári og
því síðasta. Arið 2000 hafi ný-
skráningar verið 418, 414 árið
2001, 705 í fyrra og í ár væru
þær orðnar 845.
Guðrún segir að atvinnuleysi
á Vesturlandi væri þó heldur
minna núna enþað var á sama
tíma í fyrra. „A þessu ári hafa
mun fleiri atvinnuleitendur ver-
ið ráðnir í starfstengd úrræði en
árin á undan. Þessi verkefni eru
styrkt af Atvinnuleysistrygging-
arsjóði og teljast atvinnuleit-
endur ekki atvinnulausir á með-
an á úrræðinu stendur. I des-
ember eru t.a.m 20 fleiri í slík-
um úrræðum heldur en voru á
sama tíma í fyrra. I kjölfar vax-
andi atvinnuleysis í byrjun árs
2003 lögðumvið ,,ofur“ áherslu
á að efla starfstengd úrræði s.s.
starfsþjálfun, reynsluráðningu
og kynna styrki til sérstakra
verkefna. Þessi úrræði gengu
vel og nutuni við mikillar og
góðrar samvinnu við fjölmörg
fyrirtæki og stofnanir á Vestur-
landi“, segir Guðrún. Segir hún
að starfstilboðum hafi farið
íjölgandi hjá Svæðisvinnumiðl-
un með hverju árinu sem Iíður.
„Við teljum skrifstofuna vera að
festa sig betur í sessi sem vinnu-
miðlun og sífellt fleiri fyrirtæki
nýta sér þjónustu okkar.
Vinnuveitendur þekkja orðið þá
þjónustu sem við bjóðum upp á
og eru tilbúnir að láta á hana
reyna. Sumir hafa áhuga á að
auglýsa eftir fólki í gegnum
EES vinnumiðlunina og freist-
ast þannig til að fá til sín fagfólk
erlendis frá. Mikil aukning var
í ráðningum í gegnum skrifstof-
Guiírún Gísladóttir.
una á þessu ári, eða meira en
tvöföldun miðað við fyrri ár,
139 þessara starfa eru vegna
starfsúrræða en 185 eru verk-
beiðnir frá fyrirtækjum á svæð-
inu. Við höfum reynt eins og
kostur er að hanna úrræði
þannig að atvinnulausir ein-
staklingar fái a.m.k. einhverja
vinnu á hverju ári. A árinu
2003 tókst það, því það er eng-
inn atvinnuleitandi sem hefur
verið samfellt atvinnulaus allt
árið, sumir hafa að vfsu aðeins
fengið vinnu í skamman tíma
eða hlutastarf*, sagði Guðrún
Gísladóttir að lokum.
í félagsheimilinu Hótel Stykkishólmi
4. sýning: laugardaginn 27. des kl. 23.00 (miðnætursýning)
5. sýning sunnudaginn 28. des. kl. 16.00.
Miöaveró kr. 2.000,- Afsláttur fyrir hópa 20 og fleiri.
Upplýsingar og miðapantanir í s. 847 1077