Skessuhorn - 17.12.2003, Page 30
30
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
^saunuk.:
Lukka með
Lukkuriddara
Leikfélagið Grímnir í Stykk-
ishólmi frumsýndi leikritið
Lukkuriddarann þann 28. nóv-
ember sl. í félagsheimilinu,
Hótel Stykkishólmi. I lok
frumsýningar var leikurum og
leikstjóra ákaft fagnað og góður
rómur gerður að sýningunni.
Onnur sýning var miðnætur-
sýning þann 29. nóvember.
Uppselt var á báðar sýningarn-
ar og fullt hús á þriðju sýningu
þann 4. desember. Mikil og al-
menn ánægja hefur verið með
sýningarnar og er það mál
manna að vel hafi tekist til með
val á verki sem og val á leikur-
um í hlutverkin. I aðalhlutverk-
um eru' Alfreð Viktor Þórólfs-
son sem leikur lukkuriddarann,
Hólmfríður Friðjónsdóttir,
Sigurður Páll Jónsson, Arni
Valgeirsson, Margrét Asgeirs-
dóttir og Þorsteinn Sigurðsson.
Lukkuriddarinn er írskur
gamanleikur með söngívafi og
gerist í þorpi á Irlandi kringum
aldamótin 1900. Jónas Arnason
þýddi verkið, sem var fýrst sýnt
hér á landi árið 1966. Ari
seinna eða 1967 setti Leikfélag-
ið Grímnir Lukkuriddarann á
svið. Leikstjóri þessarar sýning-
ar er Jón Svanur Pétursson en
hann lék einmitt titilhlutverkið
í uppfærslunni árið 1967. Jón
Svanur hannaði leikmyndina og
er einnig tónlistarstjóri sýning-
arinnar og sér hann um undir-
leik ásamt Jósep Blöndal.
Aætlað er að sýna tvær sýn-
ingar á milli jóla og nýárs, mið-
nætursýningu laugardaginn
27.des. og síðasta sýningin
verður sunnudaginn 28. des-
ember kl. 16.00.
Jólamarkaður
Ullarselsins
Það var viargt um manninn á nýafstöðunum jólamarkaöi Ullarselsins, rnargir
aö selja og ennfleiri aó kaupa.
Hin árlegi jólamarkaður Ull-
arselsins var haldinn á fimmtu-
daginn í síðustu viku. Að vanda
var voru margir að selja sína
vöru og enn fleiri til að kaupa.
Jólamarkaðurinn byrjaði þegar
krakkar í Andakílsskóla óskuðu
eftír að fá að selja handunnin
jólakort. A jólamarkaðnum er
slakað á annars stífu gæðamatí
Ullarselsins og öllum leyft að
koma með sína handunnu smá-
vöru og selja.
Kristín Gunnarsdóttir gjald-
keri Ullarselsins sagði í samtali
við Skessuhorn að mikið væri
leitað í Ullarselið eftir jóla-
gjöfum. „Það er búið að vera
fín sala í haust og við finnum
að ferðamannatíminn er að
lengjast“. Það eru um 40 Vest-
lendingar sem selja sína vöru í
Ullarselinu sem er að verða
gróin verslun og þekkt fyrir
vandað íslenskt handverk.
J ólamúsíkfundir
Þessar ungu stúlkur skemmtu áhorfendum með hlokkflautuleik á einum af
jólamúsíkfundum Tónlistarskóla Akraness. Þar hafa nemendur haldið stutta
tónleika með tónlist sem tengist þessum árstíma.
Fyrir skómmu lauk tíu daga löngu
dansnámskeiði í Búðardal fyrir
krakka á aldrinum 4-16 ára.
Námskeiðinu, sem var í umsjón
Dansskóla Jóns Péturs og Köru, lauk
á stærðar halli þar sem krakkamir
sýndu fótafimi sýna.
Morgunstund í Brekkubæjarskóla
Föstudaginn 12. desember
héldu nemendur Brekkubæjar-
skóla morgunstund í íþróttahús-
inu við Vesturgötu.
Morgunstund er reglulegur
þáttur í skólastarfinu í Brekku-
bæjarskóla og þar mæta allir
nemendur skólans, starfsfólk og
einnig kemur stór hópur af for-
eldrum til að fýlgjast með.
Brekkubæjarskóli vinnur eftir
lífsleiknistefnu sem nefnist
Góður - Fróður. Unnið er með
dyggðir og eru nemendur hvatt-
ir til að iðka góða siði.
Dyggð þessarar annar var
hjálpsemi og á morgunstundinni
fengu nokkrir nemendur viður-
kenningar íýrir góða og fallega
ffamkomu.
Við þetta tækifæri voru einnig
veittar viðurkenningar til bekkja
fýrir góða umgengni.
Nokkrir bekkir fluttu atriði
sem tengdust hjálpsemi og að
lokum sungu allir saman.
I anddyri íþróttahússins var
búið að setja upp sýningu á verk-
um nemenda sem þeir unnu í
Comeniusarverkefninu sem
Brekkubæjarskóli tekur þátt í.
Comenius er yfirheiti á sam-
Góöir ogfróðir nemendur Brekkubæjarskóla tóku lagið á morgunstundinni.
starfsverkefhum skóla í
Evrópu. Brekkubæjar-
skóli vinnur með skólum
ffá Spáni, Bretlandi og
Austurríki og höfðu þeir
sent verkefnin sín til
Akraness fýrir þessa sýn-
ingu.
Verkefnið heitir The
Traveling Teddy, a
Journey through time
and tradition. Fyrsti
hlutí verkefhisins, þessa
önn, var að kynna skól- Fjölþjóðleg sýning nemenda hangir nú uppi í
ann sinn og heimabæ. anddyri lþóttahiissins við Vesturgötu.
Nemendur Laitgagerðisskóla hafa ekki slegið slöku við undanfama daga viðjólaundirbúninginn. Þegar Ijósmyndara
Skessuhoms bar að garði voru þau niðursokkin í að gera þessa glæsilegu jólamynd.