Skessuhorn - 17.12.2003, Page 32
32
MIDVIKUDAGUR 17. DKSEMBER 2003
■j«v£33Urnj.._
Mesta kikkið er að
stinga í samband
Þegar ekið er uin Akranes má
sjá mörg vel skreytt hús með
perum, slöngum og alls kyns
fígúrum. Það er þó líklega eitt
hús við Jörundarholt sem sker
sig hvað mest úr hvað varðar
magn jólaskreytinga. Húsráð-
andi þar er Daníel Arnason fast-
eignasali með meiru. Skessu-
horni tók Daníel tali og spurði
hvort alltaf sé hægt að bæta við
fleiri skreytingum.
„Það er stefhan að bæta alltaf
einhverju við á hverju ári. Það
liggur við að það sé verið að
undirbúa jólin 2004 núna. Það
er helmingurinn af kikkinu að
skreyta aðeins meira nú en í
fyrra. Við reynum að jafna
þessu sem mest á allt húsið. I
fyrra var norðurhliðin lítið
skreytt og bættum við úr því
núna. Mesta kikkið er svo að
stinga í samband og sjá hvort
þetta virki ekki allt saman.“ Það
er siður að laugardaginn fyrir
aðventuna sé skreytingardagur
hjá Daníel og fjölskyldu. „Oll
fjölskyldan tekur þátt í þessu,
við strákarnir erum úti og setj-
um upp seríur, slöngur og fígúr-
ur, meðan stelpurnar taka til
hendinni innan dyra og setja
upp aðventuskrautið. Við
tendruin svo ljósin á miðnætti
nóttina fyrir aðventu“
Daníel segist hafa fengið
mjög góð viðbrögð og bílaum-
ferð inn í botnlangann aukist til
muna á aðventunni sem og
gangandi fólks. „Vænst þykir
mér þó þegar aðstandendur
þeirra sem hvíla í kirkjugarðin-
um lýsa ánægju sinni með hvað
það kemur mikil birta inn f
garðinn“ Aðspurður hvort
þetta sé ekki mikið mál að
standa í öllum þessum skreyt-
ingum sagðist Daníel ekki telja
það eftir sér því ánægjan væri
meiri en erfiðið. „Maður byrjar
yfirleitt um miðjan nóvember
að fara yfir perur og þess háttar.
Það sem getur verið erfiðast í að
skreyta svona er að finna
geymslupláss fyrir allar fígúr-
urnar. Við erum svo heppin að
það er skriðkjallari undir öllu
húsinu og nýtist hann vel sem
geymsla, það er því ekki vanda-
mál hjá okkur.“
Daníel rekur fasteignasöluna
Hákot og á heimasíðu fyrirtæk-
isins www.hakot.is er að finna
myndavef með myndum af jóla-
lýsingum á Akranesi m.a. þessar
sem hér má sjá. Vefurinn opn-
aði nú í ár og segist Daníel taka
eftir því að þeir sem heimsæki
heimasíðuna nú í desember séu
flestir að skoða þessar myndir.
„Eg vil endilega hvetja alla þá
sem eiga góðar myndir sem lýsa
jólastemningunni hér á Skagan-
um að hafa samband til að setja
þær á vefmn. Jólalýsingar hafa
aukist svo mikið hér á Skagan-
um að með þessu áframhaldi
getum við farið að kalla Akranes
jólabæ“ sagði Daníel að lokum.
Haddi ráðinn
Haraldur Ingólfsson, knatt-
spyrnumaður með meiru, hef-
ur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Verkalýðsfélags Akra-
ness. Haraldur er viðskipta-
fræðingur að mennt og var val-
inn úr hópi 19 umsækjanda og
tók til starfa í byrjun þessarar
viku. Að sögn Vilhjálms Birg-
issonar formanns VLFA væntir
hann mikils af samstarfi við
Harald, en ráðning fram-
kvæmdastjóra var eitt af kosn-
ingamálum A-listans.
Jólatónleikar í
Reykholtskirkju
Nemendur Tónlistaskólans í
Reykjavík bjóða til tónlistar-
veislu í Reykholtskirkju laugar-
daginn 27. desember eða þriðja
dag jóla. Tónleikarnir hcfjast
kl. 15:00 og eru allir tónlist-
arunnendur hvattir til að mæta
og hlýða á fjölbreytta tónlist,
jólalög, klassísk og íslensk
sönglög. Gert er ráð fyrir að
tónleikunum ljúki kl. 16:30 og
eru allir velkomnir.
SíiíastlnYinn
fimmtudag var
jólafiindurdagur
bjá leikskólanutn
í Olafivík, en þá
fengti foreldrar
tœkifieri til að
fóndra undir
leiðsögn bama
sinna. Fórst
þeim það vel úr
hendi eins og
þessar myndir
bera með se'r en
af einhvetjum
ástæðum virtust
karlamir laðast
meira að kajfi-
könnunni en
ftmdurborðinu.
Handverkskonumar í Gallerí Grúsk í Grundarfirði hafa hreiðrað um sig í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði, þar sem þær
selja sitt handverk nú fyrir jólin.
Minningagrein um Auðunn Eyþórsson
Fæddur 1. ágúst 1946 og dáinn 1. des 2003
Utför frá Borgameskirkju 9. des 2003
Þriðjudaginn 9. desember sl.
fór útför frænda míns og vinar
Auðuns Eyþórssonar fram í
Borganeskirkju að viðstöddu
fjölmenni.
Auðunn fór um sex ára ald-
ur sem snúningspiltur að Auð-
stöðum til frændfólks síns og
var þar á sumrin fram að ferm-
ingu. Margar ferðir fór hann
síðar að Auðstöðum til Steina
frænda til að gera við hey-
vinnuvélar og bílinn, eða til að
jáma hesta, smala eða hvað
sem þurfti hverju sinni.
Auðunn hafði alla tíð yndi
af hestum, hann var ekki mikill
„hvítbuxnahestamaður.“ Hafði
meira gaman af ferðalögum í
frjálsu umhverfi en á þröngum
hringvöllum. Margar ferðir fór
hann vestur að Spágilsstöðum
til að hjálpa við smalamennsku
og réttir. Hann sagði það ekki
langt að skreppa á hestum
vestur í Dali.
Af hestaferðum hafði Auð-
unn mikið yndi, hann skipu-
lagði þær ævinlega með löng-
um fýrirvara. Fyrir rúmum
tveimur árum var hann að
skipuleggja ferð austur í Bisk-
upstungur, sem átti að fara á
liðnu sumri, en gekk því miður
ekki upp. Síðastliðinn vetur
var aftur farið að hugsa til
ferðar í Tungurnar sumarið
2004. Svona var fyrirhyggja
hans mikil.
Það var svartaþoka yfir
Borganesi þriðjudaginn 9. des.
en er við höfðum setið í kirkj-
unni í dágóða stund þá birti til
með glaða sólskini. Þá kom
upp í huga minn að nú væri
frændi búinn að finna sína
gömlu reiðhesta sem farnir
voru á undan honum og væri
að fara í smá ferðalag um gró-
ið og grösugt land.
Eg kveð hér með góðan vin
og frænda og megi guð fylgja
honum.
Móður hans, dóttir, systkin-
um og öðrum ástvinum votta
ég samúð mína.
Hinrik Oskar Guðmundsson
frá Auðstöðum