Skessuhorn


Skessuhorn - 17.12.2003, Page 47

Skessuhorn - 17.12.2003, Page 47
^saunuu. MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 47 um eitthundrað tonn að þyngd. Hvernig það var flutt, er ekki ljóst en líklegast er að hesta- sleðar hafi verið notaðir eða jafnvel að allt hafi verið reitt á klakk. Frost 2 til 6 stig með nokkurri úrkomu var mælt í Stykkishólmi flesta daga í mars og apríl þetta ár. Sleðafæri hef- ur því verið gott. Sementið mun hafa verið í tunnum eða kútum og sjálfsagt flutt á hest- um upp eftir svo og annað byggingarefni. Albert Jónsson yfirsmiður hefur verið afburða stjórnandi. Sumarmánuðina 1903 var sjálf- sagt unninn langur vinnudag- ur. Verkhraðinn var undra- verður. Vandvirkni var þó jafn- an í fyrirrúmi. Þegar saga þurfti úr steypu kirkjunnar við byggingu safnaðarheimilis árið 1995 kom í ljós steypa án nokkurra skemmda. Messuklæði, munir og gripir úr gömlu kirkjunni sem byggð var 1782 voru fluttir í nýju kirkjuna. Einnig tvær kirkju- klukkur, stór altaristafla frá 1709 og önnur minni en eldri o.m. fl. Þá var predikunarstóll- inn og altarið notað áfram í hinu nýja steinsteypta guðshúsi og sómdi sér þar vel. Vígsluathöfnin var mikil samkoma. Þar munu hafa verið um 400 manns. Kirkjan var vígð af Sigurði Gunnarssyni, héraðsprófasti. A eftir flutti sóknarpresturinn Helgi Arna- son venjulega messugjörð, skýrði 4 börn og fermdi 7 ung- menni. Sóknarnefndin sem skipar þá Andrés Kristjánsson, Jens Sig- urðsson og Hallgrím Jónsson ásamt með safnaðarfulltrúan- um Lárusi Skúlasyni og Alberti Jónssyni yfirsmið og öllum þeim sem að þessu verki komu á einn eða annan hátt - allir gátu þeir glaðst eins og um lokaþátt í ævintýri væri að ræða. Sjálfsagt hafa þeir sem báru ábyrgð á framkvæmdinni fagnað því fyrst og fremst að allt gekk eftir eins og áætlað var og áhyggjur vegna verkefn- isins væru að baki. Þeim hefur ekki komið til hugar að eftir eitthundrað ár væri kirkjan sem þarna stóð á hólnum nýbyggð og verið var að vígja væri þá orðin elsta steinsteypta kirkja í heimi. Sögulegt mannvirki á heimsmælikvarða. Þeir hafa ekki gert sér grein fýrir því hve framsýnir þeir voru og snjallir forystumenn. Ekki er ólíklegt að þeir hafi hugleitt það að með því að byggja steinsteypta kirkju á þessum fagra stað á Ingjalds- hóli væri verið að tryggja það að kristin trú ætti þar kirkju og vígðan reit um ókomin ár og aldir. Að eitthundrað árum liðnum hefur nú verið haldin hátíð til að minnast kirkjuvígslunnar og heiðra minningu þeirra manna sem fyrir kirkjubygg- ingunni stóðu. Þar var mætt þjónustufólk kirkjunnar bisk- up, prófastur auk sjö presta. Þar af tveir kvenprestar. Á- nægjulegt var hvað margir úr frændgarði þeirra sem fyrir einni öld stjórnuðu þessu verk- efni voru í þeim fjölmenna hópi sem þátt tóku í hátíðinni. Framanritað er lítið breytt erindi sem undirritaður flutti á afmælishátíðinni í félagsheim- ilinu Röst á Hellissandi. Við sama tækifæri sagði Smári Lúðvíksson sögu kirkjunnar frá vígsludegi. Myndarlegt safnað- arheimili var tekið í notkun 1997. Pípuorgel kemur í kirkj- una á komandi vetri. Vel er gengið frá útilýsingu, um- hverfi, aðkeyrslu og bílastæð- um við kirkjuna. Viðhald allt og umhirða eru til fyrirmynd- ar. I sóknarnefnd eru nú: Þor- björg Alexandersdóttir for- maður, Hulda Skúladóttir, Hjörtur Ársælsson, Jensína Guðmundsdóttir og Arni Jón Þorgeirsson. Sóknarprestur er séra Ragn- heiður Karítas Pétursdóttir. Prestsetrið er á Hellissandi. Skúli Alexandersson Heimildir: Vísitasíu- og fundargerðarbók Ingjaldshólskirkju og -safiiaðar. 1874 - 1971 Olafúr Elímundarson: Jókla hin nýja I, KIRKJUR UNDIR JÖKLI. Háskólaiígafan 2000. Bréfa- ogfundargerðabœkur Neshrepps utan Ennis á Þjóð- skjalasafni. Skúli Alexandersson: Þœttir um Lárus Skiílason. Handrit Ingjaldshólskirlja í dag Lesið í skóginn í Andakílsskóla nægju sinni með verkefnið. Magnús B. Jónsson rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri ávarpaði gesti og undirritaði hann og Elísabet samkomulag um afnot Anda- kílsskóla af grenndarskógi sem Mánudaginn 8. des var hald- in mikil hátíð í Andakílsskóla þegar gengið var frá samningi um þátttöku skólans í verkefn- inu Lesið í skóginn og grennd- arskógurinn formlega opnaður. Skógræktin bauð börnunum að Hvammi í Skorradal þar sem þau völdu jólatré sem sett var upp fyrir utan skólann og dag- skráin fór fram. Með dyggri að- stoð skógarvarð- Birgis Haukssonar gekk vel að finna tré sem síðan var komið fyrir á kerru sem börnin vildu auð- vitað sitja í. Elísabet Haralds- dóttir skólastjóri Anda- kílsskóla bauð gesti velkomna og lýsti á- að vísu eru aðeins skjólbeltin sem hýsa lífrænu ræktunina á Hvanneyri. Þau eru á sinn hátt söguleg því þau eru ein af elstu skjólbeltum landsins og gefa gott skjól og eru prýðis vett- vangur fyrir skógarfræðsluna. Birgir skógarvörður afhenti skólanum tákn verkefnisins, sem er veðurmælir úr tré og gat hann þess að gott væri að líta á hann áður en farið er út, því hann gæfi upplýsingar sem svöruðu því hvernig best væri að klæða sig í skógarferð- unum. Grýla lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og skapaði mikinn usla á athöfninni eins og henni er von og vísa, hrelldi suma og gladdi aðra með furðulegu hátterni sínu og orðbragði. Einnig komu fram bráð- skemmtilegir skógarálfar sem fluttu frumsamið ljóð. Hver bekkur lagði sitt af mörkum til að gera athöfnina hátíðlega og skemmtilega og tókst prýðilega að skapa hátíð- leika og gera athöfnina eftir- minnilega. Ollum var boðið í kakó og piparkökur að athöfn lokinni. Myndir og texti: OIO

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.