Skessuhorn - 17.12.2003, Page 51
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
51
o&casumsi..
vitnaði. Á daginn stundaði hann iðn sína af mikilli elju og þótti
manna dýrseldastur. Um hann var kveðið:
Syngjandi um sálarfrið,
safnandi tímans auð,
bendandi á himins hlið,
hugsandi um daglegt brauð.
Sjálfan mig seð e'g fyrst
síðan náungann.
Eg trúi á Jesúm Krist.
Eg breyti eins og hann.
Aldrað trúhneigt fólk lagði á það ríka áherslu við afkomend-
ur sína að reyna að líkjast HONUM og ýmsir hafa velt fýrir sér
hvernig HANN hefði brugðist við ýmsum daglegum vanda-
málum. Þegar Steindór Andersen lenti í því að fá visareikning
sem hann hafði vonast til að fá ekki, en ekki stóra vinninginn í
Háskólahappdrættinu sem hann hafði sterklega reiknað með
að fá og enda þrálega ámálgað þörf sína við forsjónina, fór
hann að rifja upp orð afa síns og reyna að finna leið til að líkj-
ast HONUM og leysa vandamálið. Á endanum greip hann til
þess ráðs að reyna að yrkja sig frá vandanum en þá kom upp
vandamál, hvora leiðina á að taka:
Heimsins bregðast höppin vonum
hált er á götunni,
langar því til að líkjast HONUM
og liggja í jötunni.
Allt sem fyrr ég átti í vonum
er illa farið á svig,
langar því til að líkjast HONUM
og láta krossfesta mig.
Hörður Þórleifsson orti lofsöng til Visa kortsins og hefst
hann á þessu erindi:
Plastið er það ágœtt eitt
ég ekki þarfað borga neitt,
efnahagsundur er oss veitt
efnýtti ég það sem bœri.
Með VISA söng í veskinu mínu hrœri
Lokaerindið er hins vegar á þessa leið:
Yfir mig breiðist óttinn snar
œ meir er líður janúar,
emja ég fullur iðrunar
ei mig um kort nú kœri.
Með VISA söng í veskinu mínu hrœri.
Að loknum jólum styttist óðfluga til áramótanna og sólin
strax farin að hækka örlítið á lofti og ekki úr vegi að rifja upp
vísu Bjarna frá Gröf:
Áfram tifar tímans kvörn,
tekst henni margt að gera.
Framhaldssaga fyrir börn
finnst mér lífið vera
Ósk Skarphéðinsdóttir orti að haustlagi:
Kvöldin lengjast, vantar vor,
vakir þrengjast, bilar þrekið.
Samt mín gengin gæfuspor
getur enginn frá mér tekið
Sláum svo botninn í þennan þá tt með vísu Sigurdórs Sig-
urðssonar:
Lít ég yfir liðin ár
lœt þau hugann kanna,
finn þar bœði bros og tár
bernskuminninganna.
Að endingu langar mig að biðja bæði almættið og kaup-
mennina fyrirgefningar á gálauslegum skrifum mínum og óska
öllum lesendum mínum gleðilegra jóla, árs og friðar. Eg vil
endilega hvetja þá sem finna hjá sér löngun til að tjá sig um
málefni þáttarins að láta undan henni og hafa samband við mig
og gauka að mér gömlum eða nýjum vísum eða einhverjum
fróðleik eftir atvikum.
Með þökkjýrir lesturinn
Dagbjartur Dagbjartsson
Refsstöðum 320 Reykholt
S 435 1367 - dd@binet.is
Leikdeild Ungmennafélagsins Dagrenningar sýnir:
Leikstjóri: Þórunn Magnea
Aðalhlutverk: Guðmundur Þorsteinsson
og Sigrún Sigurðardóttir
Aukasýning ^
laugardaginn 27. desember
kl. 21:00
í félagsheimilinu Brautartungu
Miðasala i sima 435 1391
netfang: madurogkona@vefurinn.is
simmn.is
Verslun Símans Akranesi, Stillholti 16-18, sími 430 3000
SÍMINN
Óskum Vestlendimeum cnR
landsmönnum öllum
^leóile^ra jóla farsæls
komandi árs.
bökkum vióskiptin á árinu
sem er aó liða.
Starfsfólk Þjónustumiðstöðvar
Símans Akranesi.