Skessuhorn


Skessuhorn - 07.01.2004, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 07.01.2004, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 1. tbl. 7. árg. 7. janúar 2004 Kr. 250 í lausasölu KB 100 ára Kaupfélag Borgfirðinga fagnaði 100 ára affnæli sínu í verslunarmiðstöðinni Hyrnu- torgi á sunnudag. Þar var saga félagsins m.a. rifjuð upp í máli og myndum. Sjá bls 8 Maður ársins I næstu viku verður kynnt hver verður fyrir valinu sem maður ársins á Vesturlandi en Skessuhom stendur fyrir útnefningunni sjötta árið í röð. Leitað hefur verið eftir tilnefningum frá lesendum Skessuhorns en sérstök dóm- neffid sker úr um endanlega niðurstöðu. Lesendur hafa tækifæri til að hafa áhrif á hver verður valinn maður ársins á Vesturlandi til og með fimmtudagsins 8. janúar. Hægt er að koma til- nefitingum á framfæri með rafpósti á netfangið: madurarsins@skessuhorn.is HB og Grandi í samningaviðræðum Samið fyrir luktum dyrum Fyrmm eigendur Haraldar Böðvarssonar hf á Akranesi og Grandi hf eiga í samning- arviðræðum um hugsanleg kaup á hlutafé Brims í HB. Samningsaðilar skrifuðu undir yfirlýsingu þess efriis að ekki yrði greint frá neinurn þáttum samningsins rneðan viðræður stæðu yfir. Sjá bls. 2 Skagamenn fjölmenntu að vanda á þrettándabrennuna á Jaðarsbökkum í gœrkvöld en auk þeirra mátti sjá þar álfa, tröll ogjólasveina svo einhvetjir séu nefndir. Teitur þjálfar í vinabæ Borgar- byggðar Skagamaðurinn Teitur Þórðarson hefúr tekið að sér þjálfun 2. deildarliðsins Ull/Kisa í Noregi en liðið kemur frá bænum Jessheim, skammt frá Gardenmoen flugvelli en Jessheim er einmitt vinabær Borgar- byggðar í Noregi. Hlutverk Teits er að byggja upp sterkt lið hjá félaginu og koma því upp um að minnsta kosti eina deild sem fyrst. Teitur hefur mikla reynslu af þjálfun í Noregi, þjálfaði þar Lynn, Brann og Lilleström en einnig hefur hann þjálfað lið í Svíþjóð og Eistneska landslið- ið um tíma. Teitur lék með Skagamönnum áður en hann fór í atvinnumennsku í Sví- þjóð, Frakklandi og Sviss. Menningin aðeins á Akureyri? Sveitarstjórnarmenn á Vesturlandi vonsviknir yfir nýjum samningi við Akureyringa Skömmu fyrir áramót var undirritaður menningarsamn- ingur milli ríkisins og Akur- eyrarbæjar sem felur í sér að Ak- ureyri sé miðstöð menningar- starfs utan höfuðborgarsvæð- isins og tryggir Akureyri umtals- vert fjármagn til eflingar menn- ingarstarfs. Samkvæmt samn- ingnum fær bærinn 240 milljón- ir í sinn hlut frá ríkinu á næstu þremur árum. Þessi tíðindi komu nokkuð flatt upp á sveitarstjómarmenn á Vesturlandi ekki síst þar sem menningarsamningi við Vestur- land var skotið á frest vegna skorts á fjármagni í þennan málaflokk. „Þessi samningur við Akureyri er að vísu endurnýjun á gömlum samningi en menn vissu ekkert um þetta hér fyrr en allt var um garð gengið og það kom okkur vissulega á óvart þar sem við stóðum í þeirri trú að við væmm næst,“ segir Helga Halldórsdóttir formaður Sam- taka sveitarfélaga á Vesturlandi. „Samningurinn við Vesturland hefur verið í undirbúningi ffá í maí 2001 þannig að nú er þriðji menntamálaráðherrann að koma að þessu niáli. Málið var vel und- irbúið hér heima fyrir af starfs- mönnum Atvinnuráðgjafar Vest- urlands og sérstökum vinnuhópi og síðustu misseri höfum við bara beðið. Við urðum því fyrir miklum vonbrigðum þegar við fréttum af þessum samningi við Helga Halldórsdóttir formaður SSV Akureyrarbæ þótt við getum að sjálfsögðu unnt Akureyringum að fá sinn skerf. Við viljum bara líka fá það sem við teljum okkur eiga inni, „segir Helga. Aðspurð um hvort umræddur ráðherra sé þama að hygla eigin kjördæmi á kostnað annarra segir Helga að vissulega líti máhð þannig út. „Það eiga allir landshlutar rétt á að fá fé til menningarmála og við getum ekki annað en litdð á þetta sem ákveðna lítilsvirðingu. Hver ætlar svosem að meta það hvort það sé rneiri menning í einum landshluta en öðrum?“ Helga segir að sveitarfélögin á Vesturlandi bindi miklar von- ir við að nýr menntamálaráð- herra taki málaumleitan þeirra vel þannig að Vesturland fái langþráðan menningarsamning árið 2005. Utsala nj.falatd£i afsláttur Sími: 430 5533 Verið veikomin !

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.