Skessuhorn - 07.01.2004, Blaðsíða 5
5
^nCiSautii/kw
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004
Vestlendingum fækkar nokkuð
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofunnar um íliúafjölda í
einstökum sveitarfélögum hinn
1. desember 2003 þá fækkar
Vestlendingum um 64 eða um
0,4%. A sama tíma er þölgun á
landsvísu um 0,79% og ætti íbú-
um á Vesturlandi að hafa fjölgað
um 58 ef sama íbúaþróun hefði
verið hér og yfir landið allt.
Mest er fækkunin á Snæfells-
nesi en íbúar þar voru 127 færri
1. desember 2003 miðað við
sama tíma árið 2002. Eyja- og
Miklaholtshreppur sker sig einn
úr á Nesinu en þar fjölgar um
12 annars fækkar talsvert í öll-
um sveitarfélögum mest þó í
Stykkishólmi. Oli Jón Gunn-
arsson bæjarstjóri í Stykkis-
hólmi sagðist í samtali við
Skessuhorn að þama kæmi í ljós
hve stöðvun á skelfiskveiðum
vægi þungt. Oli Jón telur að nú
sé botninum í náð og allar líkur
til að íbúum fjölgi á Snæfellsnesi
á næstu ámm.
I Dölunum fækkar um 16
milli ára og er um svipaða fækk-
un að ræða eins og verið hefur
síðasta áramg. Ibúum í Borgar-
fjarðarhéraði fjölgar hins vegar
tun 79 og er mesta fjölgunin í
Borgarbyggð. Ef rýnt er í töl-
urnar fyrir Borgarfjarðarhérað
má sjá að mest öll fjölgunin
tengist háskólasamfélögunum
en Biffestingum fjölgar um 52
og Hvanneyringum um 23. Páll
S. Brynjarsson bæjarstjóri í
Borgarbyggð er ánægður með
fjölgun íbúa í Borgarbyggð. „Eg
tel að það verði áframhald á
þessari fjölgun á næstu áram.
Búsetuskilyrðin eru alltaf að
batna og munar mjög mikið um
vaxandi háskóla“. Það vekur hins
vegar nokkra athygli að Skaga-
mönnum fækkar um 5 en fjöld-
inn allur af íbúðum var byggður
og seldur á síðasta ári. Gísli
Gíslason bæjarstjóri á Akranesi
telur að ekki sé ástæða til neinn-
ar svartsýni. „Það hefur verið
stöðugur vöxtur hjá okkur und-
anfarin ár og ekkert óeðlilegt þó
um einhverjar sveiflur sé að
ræða. Auðvitað hefði maður
vilja sá fjölgun en með tilliti til
þess að nokkur fækkun hefur
verið á störfum hjá stóram fyrir-
tækjum eins og Sementsverk-
sntiðjunni og Járnblendinu þá
höldum við sjó.“ Gísli er bjart-
sýnn eins og kollegar hans og
reiknar með að Skagamönnum
fjölgi aftur á árinu.
Sveitarfélag, svæði 2003 2002 Breyting %breyting
Akranes 5582 5578 4 0,1%
Hvalfjarðarstrandarhreppur 154 169 -15 -8,9%
Skilmannahreppur 152 144 8 5,6%
Innri-Akraneshreppur 121 114 7 6,1%
Leirár- og Melahreppur 132 120 12 10,0%
Skorradalshreppur 55 65 -10 -15,4%
Borgaríjarðarsveit 696 693 3 0,4%
- þar af er Hvanneyri 193 170 23 13,5%
Hvítársíðuhreppur 85 84 1 1,2%
Borgarbyggð 2589 2520 69 2,7%
- þar af er Bifföst 209 157 52 33,1%
Kolbeinsstaðahreppur 105 109 -4 -3,7%
Grundarfjarðarbær 936 964 -28 -2,9%
Helgafellssveit 52 56 -4 -7,1%
Stykkishólmur 1161 1228 -67 -5,5%
Eyja- og Miklaholtshreppur 130 116 14 12,1%
Snæfellsbær 1742 1780 -38 -2,1%
Saurbæjarhreppur 88 93 -5 -5,4%
Dalabyggð 651 662 -11 -1,7%
Vesturland 14431 14495 -64 -0,4%
Taflan sýnir íbúaþróun á Vesturlandi á síðasta ári. Um er að rœða bráðabirgð-
artölur 1. desember 2003 fi'á Hagstofunni bomar saman við endanlegar tölur
jýrir 1. desember 2002.
Firma- og hópakeppni
CAFÉ 67 og Meistaraflokks karla í
knattspyrnu, verður haldin þann 24. janúar
í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum.
Keppt verður í 5 manna liðum án markmanns.
Þátttökugjald er kr. 8.000.
Skráning í síma 892 2314 (Haraldur) í síðasta lagi 21. janúar.
ATH! Hægt verður að kaupa einn leikmann
að eigin vali úr Meistaraflokki karla, til
þátttöku í mótinu, fyrir kr. 5.000.
-------------------------------------------
Auglýsing
um deiliskipulag í Innri-Akraneshreppi
Borgarfjarðarsýslu
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi fyrir 3
íbúðarhús í landi Ytra-Hólms l. Tillagan nær til 3 lóða
fyrir 1 íbúðarhús og bílgeymslu á hverri lóð, ásamt
aðkomuvegi.
Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmálum
Iiggur frammi á skrifstofu oddvita, Miðgarði frá
9. janúar til 6. febrúar 2004 á venjulegum
skrifstofutíma.
o
s Athugasemdum skal skila fyrir 20. febrúar 2004 og
1 skulu þær vera skriflegar.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
V_____________________________________________)
Borgarfjarðarsveit
Til leigu
Til leigu Árberg 4 og 4a á
Kleppjárnsreykjum, Borgarfjarbarsveit
íbúðirnar eru í nýju parhúsi, 11 6 fm. hvor með
3 svefnherbergjum.
Önnur leigist otímabundið en hin frá
15. janúar - 1. ágúst 2004.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar nk.
! Nánari upplýsingar á skrifstofu
I Borgarfjarðarsveitar, Litla - Hvammi, 320
I Reykhoít, sími 435 1140 en þangað skal
s umsóknum skilað.
Sveitarstjóri Borgarfjaröarsveitar
Akraneskaupstaður
Auglýsing um breytingu
á deiliskipulagi
Breiöarsvæbis, Akranesi
Á fundi bæjarstjórnar Akraness sem haldinn
var þann 16. desember 2003, var samþykkt
breyting á deiliskipulagi Breiðarsvæðis a
Akranesi, vegna loðarinnar nr. 25a við
Vesturgötu.
Breytingin felst í stækkun lóðarinnar og
jafnframt er skilgreind aðkoma að lóðinni.
Deiliskipulaqsbreytingin var kynnt skv. 2. mgr.
26. gr. skipuTags- og byggingarlaga nr. 73/1997
og hefur nlotið þá meðferð sem skipulags- og
byggingarlög mæla fyrir um.
Deiliskipulagsbreytingin tekur þegar gildi.
Akranesi 2. janúar 2004
Ólöf Cuöný Valdimarsdóttir
skipulagsfulltrúi Akraness
0